01.11.1977
Sameinað þing: 11. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 343 í B-deild Alþingistíðinda. (269)
313. mál, bifreiðahlunnindi bankastjóra
Fyrirspyrjandi (Stefán Jónsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. Svör hans voru jafnskýr og ég bjóst við.
Ég hlýt að taka það fram, eins og í sambandi við fyrirspurnina sem kom til umræðu áðan, að ég er alls ekki að gefa það í skyn, á því hef ég ekki gert neina könnun, hef ekkert velt því fyrir mér, hvort laun bankastjóra séu óhæfilega há eða ekki. Hitt er aftur á móti staðföst skoðun mín. að ekkert það sé í starfi bankastjóranna eða í ráðningu þeirra sem geri það að verkum að þeir séu í neinu undanþegnir íslenskum lögum, og ég er staðfastlega þeirrar skoðunar, að bankaráð hafi ekkert umboð til þess að undanþiggja þá slíkum lögum, og ekki segja bankaráð fyrir um tollgreiðslur þessarar manna af innfluttum varningi eða söluskatti. Við vitum þess mörg dæmi, með hvaða hætti starf bankastjórans eða embætti bankastjórans gerir hann að nokkurs konar yfirmanni bankaráðs. Hér er um að ræða sjálftekt í nokkurri mynd. Eins og ég vék að í stuttri grg. minni fyrir þessari fyrirspurn áðan, þá hafa — að því er mér skilst og ég vildi gjarnan að það væri leiðrétt ef það reyndist rangt — forstjórar Framkvæmdastofnunar nú riðið út á þetta sama vað eins og bankastjórarnir með bifreiðafríðindi. Og hvað sem öðru líður — og enn ítreka ég það, að ég ætla alls ekki að fara að gagnrýna á nokkurn hátt þau laun sem bankastjórunum eru ætluð — en hvað sem öðru líður, þá eru úr hópi þessara ágætu embættismanna einmitt þeir sem gjarnan ganga fram á ritvöllinn ef um það er að ræða að einstakar stéttir, miklu fjölmennari stéttir en bankastjórastéttin, leitast við að bæta kjör sín. Þá eru það venjulega menn úr þessum hópi sem ganga fram á ritvöllinn og sýna fram á það ljósum orðum að efnahagur þjóðarinnar leyfi ekki neitt slíkt og þörf sé á því fyrir hinn sameiginlega sjóð okkar landsmanna allra að afla að sama skapi aukinna tekna frá öðrum í tollum og söluskatti.
Einnig um þetta mál, þar sem í ljós kemur að einstaklingar eru með undarlegum hætti undanþegnir lögum, hygg ég að Alþ. þurfi að fjalla.