18.04.1978
Sameinað þing: 67. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3543 í B-deild Alþingistíðinda. (2694)
164. mál, kostnaður vegna ráðgjafarstarfa um rekstur ríkisfyrirtækja eða stofnana
Lúðvík Jósepsson:
Herra forseti. Ég vildi aðeins í tilefni af því, sem komið hefur fram í sambandi við þær upplýsingar, sem hér voru gefnar, óska eftir því að þeim upplýsingum, sem hæstv. fjmrh. gaf, verði dreift prentuðum til allra þm. Hér var um svo mikilvægar upplýsingar að ræða, að ég býst við að allir þm. vilji gjarnan fá að kanna þær betur. Mér sýndist t. d., að svonefnd ráðgjafarþjónusta væri þegar farin að vaxa hvað kostnað snertir yfir höfuð þeim kostnaði sem er á embættunum sjálfum sumum hverjum. En hvað um það, hér var um slíkar upplýsingar að ræða, að ég óska eftir því, að þeim verði dreift prentuðum meðal þm. Ég tek því undir það, sem kom fram hjá hæstv. fjmrh. Hann fann sjálfur, að á slíku þurfti að halda. Í þessu tilfelli liggur alveg augljóslega fyrir, að eðlilegt er að þetta sé geri. Ég fer fram á það verði gert í þessu tilfelli.