18.04.1978
Sameinað þing: 67. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3544 í B-deild Alþingistíðinda. (2697)

346. mál, hönnun Þjóðarbókhlöðu

Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson) :

Herra forseti. Vegna þessarar fsp. hefur rn. beðið arkitekta þjóðarbókhlöðuhússins að gera grein fyrir aðstöðu þeirri sem fötluðu fólki er þar búin. Fer frásögn þeirra hér á eftir:

Aðalinngangur í bókhlöðuna verður að sunnan og er gert ráð fyrir að gengið verði inn á 2. hæð. Eru annars vegar til hægri fyrst nokkrar tröppur, þá pallur og nokkrar tröppur til viðbótar, uns komið er upp á skörina. Þeir, sem aftur á móti eiga erfitt með að ganga tröppur eða eru t. a. m. í hjólastól, fara til vinstri upp aflíðandi brú, fyrst góðan spöl til vesturs og síðan til austurs og eru þá komnir með hægu móti upp á inngönguhæðina.

Þegar inn í safnið kemur er gert ráð fyrir að þeir, sem geta ekki gengið stigana, hvort heldur er niður á jarðhæðina eða upp á efri hæðirnar tvær, noti lyftur safnsins, sem ætlaðar eru þeim og starfsliði safnsins, einkum vegna bókaflutninga milli hæða. En öllum þorra gesta er ætlað að ganga stigana. Í tveim af þremur lyftum safnsins verður gott hjólastólsrými.

Loks skal þess getið, að sérstök snyrtiaðstaða er í safninu fyrir fatlað fólk.

Leiðbeiningar verða látnar í té þegar við komuna inn í safnið, þannig að engin hætta verður á að ekki verði í hvívetna greidd gata þeirra, er örðugt eiga um gang.

Á vesturhlið hússins og jarðhæð er enn fremur inngangur ætlaður starfsliði safnsins og er þaðan vitaskuld greiður aðgangur að lyftum hússins.

Vegna hins tvíþætta hlutverks hússins, að vera í senn landsbókasafn og háskólabókasafn, þótti langhentugast að gengið yrði inn í bókhlöðuna á 2. hæð, þar sem verður eins konar miðstöð bókhlöðunnar. Með þessari lausn sparast enn fremur að hafa lyfturnar til annarra þarfa en áður hafa verið greindar.

Þetta er frásögn hönnuða.

Þessu til viðbótar þykir mér rétt að geta þess, að á fundi menntmrh. Norðurlanda í Reykjavík 14. júní 1974 voru ráðh. sammála um að leggja áherslu á að í menningarsamstarfi beri að taka sérstakt tillit til fatlaðra og búa þannig í haginn fyrir þá, að þeir geti í sem ríkustum mæli tekið þátt í og notið þess sem um er að ræða á sviði menningarmála. Að því er menntmrn. Íslands varðar, þá sendi það orðsendingu um þetta efni til fjölmiðla 15. júlí 1974 og var þar beint þeim tilmælum til allra, sem hanna byggingar er varða starfssvið menntmrn. að einhverju leyti, svo sem skólahús, félagsheimili, safnahús o. s. frv., að þess sé vandlega gætt að gera fötluðu fólki sem auðveldast að komast inn í húsin og fara um þau. Í bréfi til Arkitektafélags Íslands og Sambands ísl. sveitarfélaga 11. mars 1975 minnti rn. á þetta mál og æskti góðrar og árangursríkrar samvinnu allra, er um þessi mál fjalla. Einnig var þá minnt á málið í fréttabréfi rn. Í auglýsingu 9. febr. 1978 hefur rn. enn minnt á þessi viðhorf sín og tekið fram í auglýsingunni, að það muni ekki fallast á teikningar að byggingum nema framangreindra atriða sé gætt. Með þessari auglýsingu vildi menntmrn. árétta þann skilning sinn í eitt skipti fyrir öll, að hér sé um grundvallaratriði að ræða sem ekki megi sniðganga þegar opinberar byggingar eru hannaðar.

Þetta vildi ég láta koma fram um leið og ég svaraði þeim beinu spurningum sem til rn. var beint.