18.04.1978
Sameinað þing: 68. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3557 í B-deild Alþingistíðinda. (2716)

363. mál, framkvæmd grunnskólalaga

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Hinn 28. febr. s. l. var útbýtt á hv. Alþ. fsp. frá mér, sem ég flutti á þskj. 405, 208. máli Sþ., til hæstv. menntmrh. um framkvæmd grunnskólalaga. Fsp. var svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Hvenær verður Alþ. gerð grein fyrir framkvæmd grunnskólalaga, ásamt því að ályktað verði á ný um níu ára skólaskyldu samkv. ákvæðum til bráðabirgða í grunnskólalögum nr. 63/1974.“

Það hefur dregist nokkuð að svara þessari fsp. eða þangað til skýrsla sú, sem hér hefur verið mælt fyrir af hæstv. menntmrh., var lögð fram. Ég taldi einsýnt, úr því að svo var komið, að draga þessa fsp. til baka á dagskránni til þess að ræða þá þessi mál frekar undir þeim dagskrárlið sem nú er á dagskrá.

Ég hafði talið, er ég flutti þessa fsp., eðlilegt að fá úr því skorið, hvort hæstv. menntmrh. hygðist leggja fram skýrslu um þetta efni nú fyrir þinglok, og ekki síður hitt, hvort á þessu þingi yrði að nýju ályktað um níu ára skólaskyldu eins og hið tilvitnaða bráðabirgðaákvæði gefur tilefni til að gert verði. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir þá skýrslu, sem hér hefur verið lögð fram og hann hefur skýrt að nokkru leyti. Ég tel að mikill fengur sé að því, að hún skuli komin, og með þeirri skýrslu er auðvitað að fullu staðið við þau ákvæði grunnskólalaganna frá 1974, sem hér hefur verið vitnað til. Í máli hæstv. ráðh. komu hins vegar ekki fram nein skýlaus svör við því, hvenær yrði að nýju ályktað á hv. Alþ. um níu ára skólaskyldu, hvort staðið skyldi við þá fyrirætlan eða frá þeirri hugmynd horfið. Hæstv. ráðh. taldi hins vegar eðlilegt, að það færi fram nokkuð samtímis því sem umr. yrðu um nýja framhaldsskólalöggjöf hér á hv. Alþ. Skal ég ekki um það deila. Ég hefði hins vegar talið æskilegt. að áður en þessu kjörtímabili yrði lokið væri að nýju tekin ákvörðun um þetta mál, svo sem ráð er í rauninni fyrir gert í lögunum, og þess freistað af þeim ríkisstjórnarflokkum, sem nú starfa saman að stjórn landsins, að komast þar að niðurstöðu sem takast mætti samkomulag um.

Það verður að segja að sú skýrsla. sem hér er lögð fram, er viðamikið plagg, sem mér hefur ekki unnist tóm til að kynna mér nema að mjög óverulegu leyti. Hún er enda mikið á annað hundrað blaðsíður, að verulegu leyti í töfluformi og ekki fljótlesin, en það hefði auðvitað verið æskilegt að mér hefði unnist tími til að kynna mér hana meira en raun er á áður en ég færi í umr. sem þessa. Ég mun því aðeins segja örfá orð og ekki fjalla um þetta í löngu máli.

Í formála þessarar skýrslu er að finna margar athyglisverðar upplýsingar um þróun þessara mála frá því að grunnskólalögin voru sett. Þar kemur fram og einnig í máli hæstv. ráðh. áðan, að mjög hefur dregið úr því hlutfalli nemenda, sem ekki sækir 9. bekk grunnskóla, sem ekki er skólaskyldur miðað við núverandi skipan, þannig að einungis 5% nemenda hverfa frá námi að loknum 8. bekk grunnskóla í stað 15%, eins og var fyrir 4 árum. Hér hefur orðið á mikil breyting. Sannast sagna kemur mér sú breyting ekki á óvart, vegna þess að verulega hefur áunnist í uppbyggingu skólamannvirkja, aðstöðu fyrir nemendur að sækja sér nám sem næst heimabyggð sinni og oft í sinni heimabyggð og til viðbótar að þróun þjóðfélagsins færist í þá átt, að skilningur bæði æskufólks og foreldra vex á því, hver nauðsyn er að fólk sæki nám og afli sér menntunar. Þess vegna vil ég taka undir það, sem segir í þessari skýrslu, að sú spurning hljóti að vakna, hvort jafnknýjandi sé nú og var fyrir 4 árum að lögfesta níu ára skólaskyldu.

Naumast þarf að rifja það upp hér á hv. Alþ., að þegar grunnskólalögin voru til meðferðar fyrir 4 árum voru þau mjög svo umdeild, þ. e. a. s. nokkur ákvæði þeirra. Var ég í hópi þeirra sem gagnrýndu vissa þætti þeirrar löggjafar. Ég taldi að níu ára skólaskylda mundi ekki horfa til heilla, fremur hið gagnstæða, og leiddi til þess mörg rök, m. a. þau rök, að það hefði óheppileg uppeldisáhrif á skólafólkið að það skyldi sitja í skóla að lagaboði, hvort sem það vildi eða vildi ekki, í stað þess að sækja skóla af frjálsum vilja, sem því væri gefinn fullur kostur á með svokallaðri fræðsluskyldu. Á þessu er mikill munur og ég hef ekki dregið til baka þær röksemdir mínar, sem ég flutti þá og skal ekki tíunda hér. Ég er enn þeirrar skoðunar, að það væri skref til óþurftar að lengja skólaskyldu, og ég tel að við ættum fremur að hverfa að því ráði að stytta skólaskyldu um eitt ár, þannig að hún næði eigi nema til og með 7. bekk grunnskóla.

Í formála skýrslu hæstv. menntmrh. er fjallað um þetta efni í nokkrum liðum, eftir að þó hafa komið fram efasemdir, hvort nú sé lengur jafnrík þörf og áður fyrir langa skólaskyldu. Ég verð að segja að allir þeir liðir, sem þar eru taldir fram, eru nokkuð svo einhliða í þá átt að telja fram röksemdir með skólaskyldunni, þrátt fyrir það, sem í upphafi kemur fram, að tvímæli séu á. Ef tvímæli eru, þá hefði að mínum dómi verið réttmætt í slíkri skýrslu að telja einnig fram þær röksemdir sem mæltu gegn því.

Ég skal ekki ræða þessi atriði, sem hér eru talin, mörgum orðum. Þó má aðeins drepa á örfá þeirra. T. d. er talið, að með því að koma á níu ára skólaskyldu sé tryggt jafnrétti til náms og lögð nokkur áhersla á. að það sé skilyrði til þess að jafnrétti verði náð. Þetta vil ég draga stórlega í efa. Ég tel vafasamt að í því sé fólgið sérstakt jafnrétti að þau 2, 3, 4 eða 5% skólanemenda, sem ekki kjósa eða geta ekki af einhverjum ástæðum setið í 9. bekk grunnskóla, skuli vera þar að lagaboði. Ég tel hins vegar að fræðsluskylda, þar sem hið opinbera sér um að æskufólki gefist fullnægjandi aðstaða til þess að afla sér menntunar, ætti að tryggja þetta jafnrétti. Lagaboð um að allir nemendur á 9. bekkjar aldursskeiði skuli sækja skóla á ekkert skylt við jafnrétti.

Þá er því haldið fram, að verði horfið aftur, eins og það er orðað, að átta ára skólaskyldu, þá rofni samhengi grunnskólanáms á unglingastigi við framhaldsskólanámið. Þetta leyfi ég mér einnig að draga mjög í efa, vegna þess að þó svo að skólaskylda væri stytt og væri einungis sjö ár, sem ég tel hæfilegt, þá mætti eigi að síður reka grunnskóla í sama formi þau tvö ár sem eftir eru, eða 8. og 9. bekk, með fræðsluskyldu. Og ef menn kjósa að hafa þá skipan, sem nú er á um námsmat að loknum grunnskóla, og þau réttindi, sem það námsmat gefur til inngöngu í framhaldsskóla, þá er það alveg jafngilt nám þótt um fræðsluskyldu sé að ræða eins og um nám eftir skólaskyldu. Þessar hugleiðingar í formála skýrslunnar um þessi efni orka því að mínum dómi mjög svo tvímælis.

Í þriðja lagi segir undir lok formála skýrslunnar, að talið sé mjög óheppilegt að synjað skyldi um fjárveitingu, sem menntmrn. hafi farið fram á við undirbúning fjárlaga fyrir árið 1977 til vísindalegra rannsóknar á áhrifum lengri eða skemmri skólaskyldu á nemendur og þjóðfélagið. Það má vel vera að þetta hafi verið óheppilegt, en ég verð að segja að ég dreg það nokkuð í efa, að vísindastofnun og jafnvel rn. sjálft sé nokkru hæfara til þess að meta hvort heppilegt sé að hafa langa eða stutta skólaskyldu en skólamennirnir sjálfir, sem eru starfandi í skólakerfinu. Ég hygg að þeir séu betur færir um það en nokkrir menn aðrir, og þeir eru a. m. k. mjög margir andvígir langri skólaskyldu enn í dag og voru það einnig við setningu grunnskólalaga. Ég dreg það sem sagt mjög í efa, að einhver vísindaleg rannsókn, úttekt vísindalegrar stofnunar um þetta efni, jafnvel menntmrn. sjálfs, sé nokkru hæfari til þess að meta slíkt en þeir menn sem gerst kynnast þessum málum í skólastarfinu sjálfu.

Ýmsar fleiri aths. gæti ég látið falla um það, sem segir í þeim bollaleggingum, sem fram koma í þessum inngangi, en ég skal ekki gera það. Ég vil aðeins vekja athygli á því, að í margtilvitnuðum ákvæðum til bráðabirgða í grunnskólalögunum segir svo, með leyfi forseta:

„Að 4 árum liðnum frá gildistöku þessara laga skal menntmrh. gera Alþ. grein fyrir framkvæmd laganna og þá einkum undirbúningi að níu ára skólaskyldu, þannig að Alþ. gefist kostur á að álykta á ný um það ákvæði.“

Þar er nokkur blæmunur á þessu og því, sem kom fram í máli hæstv. ráðh. um það, hvort ætti að álykta um að bæta við 9. ári skólaskyldunnar eða taka ákvörðun um það, hvort skyldi vera níu ára skólaskylda eða eitthvað annað. Ég fæ sem sé ekki séð, að í þessu bráðabirgðaákvæði laganna felist annað en það, að að nýju skuli ályktað um það á hv. Alþ., hvort hér skuli vera níu ára skólaskylda eða eitthvað annað. Þess vegna getur það allt eins vel orðið sjö ára skólaskylda eins og átta ára skólaskylda, ef frá níu ára skólaskyldu væri horfið, en ekki einungis ályktað um það, hvort bæta skuli við 9. skólaskylduárinu eða ekki.

Ég tel að það séu ýmsir fleiri annmarkar á grunnskólalögunum, sem ekki er ástæða til þess að fara mörgum orðum um hér. Ég gagnrýndi á þeirri tíð, þegar þessi mál voru til meðferðar á Alþ., allharkalega lengd skólaársins, sem gert er ráð fyrir að sé níu mánuðir á ári með nokkrum heimildum til frávika. Þær heimildir komu inn í lögin við meðferð málsins og er það að mínum dómi mjög til bóta og var þakkarvert á þeirri tíð er þau lög voru afgreidd. Þrátt fyrir það fylgir mjög löngu skólaári að nemendur missa tengslin við atvinnulífið í landinu, og þess verður kannske ekki síst vart til sveita, en einnig í sjávarplássum þar sem fiskverkun er og útgerð, að skólafólkið missir tengslin við þessar undirstöður þjóðfélagsins í miklu ríkari mæli en æskilegt er. Það er, að ég hygg, flestum ljóst, að hér er um alvarlegt mál að tefla. Þess vegna var tekið inn í grunnskólalögin ákvæði þess efnis, að störf að atvinnuvegum eða í atvinnulífinu mætti meta til jafns við nám. Ég hef ekki séð neitt um það, en kannske er það í þessari skýrslu, hvernig þetta hefur tekist og hvernig það er t. d. metið til jafns við nám í grunnskóla, að unglingur á 7., 8. eða 9. ári grunnskóla starfi að búi foreldra sinna við sauðburð, við réttardag eða smalamennsku eða annað slíkt að haustinu eða úr sjávarþorpinu fari unglingur t. d. frá sumarmálum og vinni í fiski og kynnist þannig af eigin raun þeim lífæðum þjóðfélagsins sem þessir undirstöðuatvinnuvegir eru. Það væri fróðlegt, ef hæstv. ráðh. gæti gefið einhverjar upplýsingar um, hvernig slík störf að atvinnulífinu, eins og gefið er undir fótinn með í grunnskólalögunum, séu metin til jafns við nám og hvernig þau verka á rétt nemenda til inngöngu í framhaldsskóla.

Frá og með skólaárinu 1977–1978 eru felld niður svokölluð samræmd próf í grunnskóla, og í grunnskólanum gildir sú regla, að þar færast nemendur upp um einn bekk á ári, að því er virðist án árangurs sem þeir ná í námi. Jafnframt er kveðið svo á í grunnskólalögunum sjálfum, að bannað er að greina frá einkunnum nemenda — séu einkunnir gefnar — a. m. k. opinberlega. Þessi ákvæði og ýmis önnur í meðferð þessara mála sýnast mér til þess löguð að slæva metnað nemenda og draga úr krafti þeirra til þess að afla sér menntunar. Þetta tel ég ákaflega óheppilegt og get ekki annað en látið það í ljós. Enn fremur er svo háttað námsmati að loknum grunnskóla, að þar eiga allir eða nær allir nemendur rétt til inngöngu í framhaldsskóla — t. d. menntaskóla — án tillits til þess hvaða árangri þeir hafa náð. Má vera þó, að 5 eða 10% nemenda, án tillits til þess í sjálfu sér hvaða árangri þeir hafa náð, nái því ekki að fá inngöngu í menntaskóla t. d. Þetta veldur því, að miklu meiri fjöldi nemenda fer inn í framhaldsskólana en ella væri. Út af fyrir sig er gott um það að segja að gefa öllum kost á því að afla sér menntunar svo sem geta þeirra leyfir. En það er vitað mál að sumt af því fólki, sem þannig fer inn í framhaldsskólana, hefur hvorki vilja né getu til þess að afla sér þeirrar menntunar, sem þar fer fram, og að standast það nám, sem þar fer fram. En það kemur ekki í ljós fyrr en að loknu 1. eða 2. ári framhaldsskóla. Það má segja, að ekki væri aðfinnsluvert um þetta efni ef þjóðfélag okkar hefði úr nógum fjármunum að spila, en svo er bara ekki. Þetta hlýtur því að verða til þess að stórauka kostnað við skólakerfið.

Ég skal ekki lengja þetta mál mitt. Það eru væntanlega ýmsum kunnar þær aths. sem ég lét falla í umr. um grunnskólafrv. á sinni tíð. A. m. k. að flestu leyti tel ég að þær standi enn í fullu gildi. Þessi lög hafa þó í mörgum öðrum tilvíkum orðið til verulegra bóta, og er sjálfsagt og rétt og skylt að geta þess. En sú var skoðun mín þá, að gallana hefði mátt sniða af, en halda kostunum. Ég hefði talið ástæðu til að þess væri freistað af þeim flokkum, sem myndað hafa og stutt núv. hæstv. ríkisstj. að gera sér grein fyrir því, hverjir gallarnir hafa orðið í raun og ef þeir hefðu sýnst vera einhverjir og kannske eins veigamiklir og haldið var fram undir umr. um þetta mál fyrir 4 árum, þá að sniða þá af áður en þessu kjörtímabili lyki. Það hefði verið myndarlegt að gera slíka tilraun. Því miður verður hún ekki gerð. Það verður að bíða næsta kjörtímabils.