18.04.1978
Sameinað þing: 68. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3561 í B-deild Alþingistíðinda. (2717)
363. mál, framkvæmd grunnskólalaga
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir skýrslu hans. Hún er um margt fróðleg og mikill fengur er að henni, en það er vitanlega langt í frá á þessum síðustu og verstu dögum hér á Alþ., að þm, hafi getað kynnt sér hana sem skyldi og farið ofan í þau atriði sem kannske skipta mestu máli. Það er hins vegar staðreynd, að hin nýja grunnskólalöggjöf kom á mikilli hreyfingu í menntamálum okkar á grunnskólastigi, nýrri og um margt frjórri skipan á ýmis mál þar og hreyfingu sem ég hygg að hafi verið yfirgnæfandi til bóta. Ég efast ekki um að löggjöf sem slíkri fylgi vissir annmarkar, en þeir annmarkar, sem ég hef þó af veikum mætti reynt að finna vegna þess hve ég var ákafur fylgismaður þessarar löggjafar á sínum tíma, eru ekki slíkir að ég telji þá óeðlilega þegar um nýja og viðamikla löggjöf er að ræða. Það er að vísu rétt, eins og kom fram í máli hæstv. ráðh., að margt er enn ógert af því sem þarf að gera til að grunnskólalöggjöfin komist í rétt horf og þar verði allt framkvæmt svo sem vera skal. Einnig er rétt að mörgu hefur þar hægt miðað, og valda því ýmsar ástæður, m. a. fjárhagslegar.
Ég fór aldrei dult með eindregið fylgi við grunnskólafrv. á sínum tíma, þegar það var til umr. á Alþ., og þá fyrst og fremst við meginmarkmið grunnskólalaganna og þær mörgu og merku nýjungar, sem þar voru. en margar af þeim hafa þegar sannað gildi sitt. Ég get ekki farið að telja upp þau mörgu merku nýmæli, sem grunnskólalögin fólu í sér, en ég hygg þó, af því að það hefur komið nú þegar til umr., að aukið jafnrétti til náms hvar sem var, sem var eiginlega rauður þráður í þessum grunnskólalögum, hafi kannske verið það merkasta við þau, þó við höfum reyndar haft löggjöf sem átti að tryggja það, en ekki hafði komist í fulla framkvæmd þó á mörgum árum hefði verið. Það er hins vegar gleðiefni, að gert hefur verið miklu meira nú á þessum þó stutta tíma til þess að koma þessum lögum í framkvæmd en var á sínum tíma um fræðslulöggjöfina frá 1946, enda var það kannske eðlilegt því að sú löggjöf var sett af menntmrh. og komið í gegn af menntmrh. sem var áreiðanlega mjög á undan sínum tíma í þessum efnum og framsýnni en a. m. k. þeir sem tóku við af honum í stjórn menntamála og fóru með menntamál og fjármál þar á eftir.
Ég get aðeins nefnt það, hve geysimikilvægt er fyrir skólana að hafa fengið inn þau nýju ákvæði sem grunnskólalögin fela í sér og reglugerð hefur síðan verið sett um varðandi seinfæra nemendur, að ekki sé nú talað um alla þroskahefta nemendur. Með þessari löggjöf var þetta fyrst tryggt, tryggt það vel að hægt væri að framkvæma það. Það höfðu staðið áður í lögunum ákvæði þetta varðandi, en þau voru þokukennd og alls ekki nógu markviss og gátu þess vegna eðlilega ekki náð þeim tilgangi, sem þau hafa eflaust átt að gera, og þá á ég við þau reglugerðarákvæði sem voru sett með þessari lagasetningu. Ég held að það fari ekki heldur milli mála, að það hafi verið ómetanlegt fyrir skólana að fá það aukna rými inn í skólastarf sitt fyrir félagsstarfsemi hvers konar, sem fólst í grunnskólalögunum og einnig er nú komið inn í reglugerð að hluta. Og ég nefni síðast en ekki síst fræðsluskrifstofurnar úti á landi, sem hafa sannað gildi sitt. A. m. k. veit ég það ótvírætt, að fræðsluskrifstofan eystra hefur sannað gildi sitt svo sannarlega, bætt stórkostlega aðstöðu skólamanna á öllu svæðinu til þess að hafa samband við höfuðstöðvar menntamála hér syðra og létt þeim margt starfið. Hitt er svo annað mál, að mér hefur þótt allt of hægt miða í því að koma á frambúðaraðstöðu fyrir þessar fræðsluskrifstofur og búa í haginn fyrir starf þeirra sem þeim eiga að veita forstöðu, — þessu miði allt of hægt og því að veita þeim þá aðstöðu sem þeir þurfa. Þar á hefur orðið mikill málsbrestur og þó alveg sérstaklega í fjárveitingum eða í því að tryggja fræðsluskrifstofunum eðlilegan starfsgrundvöll fjárhagslega.
Ég ætla ekki að fara að deila um það mál, sem hefur kannske helst komið hér til umr. enn einu sinni, lengd skólaársins eða skólaskylduna. Sú umr. átti á sínum tíma svo mikinn áhuga manna, að ýmislegt annað týndist gersamlega. Mér liggur við að segja: sumir ærðust í þessum ræðustól út af þessum atriðum og dæmdu grunnskólalögin öll út frá því einu, hvernig þeir litu á þetta tvennt: lengd skólaársins og hver lengd skólaskyldunnar ætti að vera. En öll þau jákvæðu atriði, sem í grunnskólalögunum fólust, fóru algerlega fram hjá þessum mönnum eða þeir vildu hreinlega ekki sjá þau. Ég hlustaði á nokkrar slíkar ræður. En guði sé lof að við losnuðum að mestu leyti við svona ræður í Ed., þó að slíkar væru þar einnig fluttar, og lenti jafnvel í því málþófi, að spurningin um mismunandi fiskverkunaraðferðir yrði að uppistöðu í ræðum manna. En greinilegt var að andstaðan við grunnskólalögin var byggð á annaðhvort vanþekkingu manna eða gífurlegri þröngsýni, sem mér var illskiljanleg sem skólamanni, — skólamanni sem þekkti til þeirra aðstæðna, sem alltaf var verið að vitna til sí og æ af þessum sömu mönnum, þ. e. a. s. aðstæðnanna úti á landsbyggðinni, sem áttu að valda því, að þar þyrfti að hafa sérstaka fyrirvara, einhverjar sérstakar undanþágur og gæta þess vandlega að það fólk væri ekki skyldað til þess að hafa sama rétt og fólk á þéttbýlissvæðum. Ég ætla enn síður að fara að deila um einkunnagjöf, þó að ég sé þar mjög á sama máli í ýmsu því sem skólamenn halda fram um námsmat, en ég er jafnframt á því, að þar þurfi að finna heppilega millileið milli prófanna og milli námsmatsins. Hvorugt verður einhlítt. Það væri mjög heppilegt ef hægt væri að finna þá millileið sem fær væri.
En varðandi skólaskylduna, sem kom til umr. áðan, get ég ekki stillt mig um að segja örfá orð. Ég þekki mjög vel erfiðleikana, sem voru á því áður en grunnskólalögin tóku gildi, á litlum skólastað að koma á fyrst 8. skólaárinu og síðan því 9. þrátt fyrir eindreginn vilja þeirra, sem að stóðu, foreldra og nemenda. Tvívegis var neitað um leyfi til þess að halda áfram með 9. skólaárið í mínum skóla, þó að allir nemendur þess árgangs hefðu skrifað upp á beiðni um að fá þessa kennslu heim í hérað. Og það var gert einfaldlega vegna þess að ákveðin lagastoð var vitanlega ekki fyrir hendi og nemendurnir voru fáir. Það breytti engu þó að við kennarar byðumst til þess að leggja fram kennslu í þessum bekkjum að 1/3 án endurgjalds. Hvers vegna hefur prósentan lækkað sem hæstv. ráðh. kom inn á áðan? Hún hefur lækkað t. d. vegna þess, hve miklu betur hefur gengið fyrir hin smærri skólahverfi að koma 9. bekknum á nú en áður var. Ég ansa nú ekki slíku og held að hv. þm. Pálmi Jónsson hafi verið að tala í einhverju óráði áðan þegar hann var að tala um að hverfa til baka, meira að segja frá fræðslulöggjöfinni 1946, og fara bara í skóla í sjö ár. Ég eiginlega trúi ekki slíkri afturhaldskenningu frá svo ágætum manni. En einnig hefur prósentan lækkað, það er ekki vert að draga neina fjöður yfir það, vegna þess að fólk hefur almennt lítið svo á, að með grunnskólalögunum hafi komist á níu ára skólaskylda strax og var byrjað að framkvæma þau. Nemendur hafa þess vegna farið inn í þetta níu ára nám, að því er ég best veit, og af því svæði, sem ég þekki til, af fúsum og frjálsum vilja, enda man ég ekki einu sinni eftir þessum 5%, nema bara í þeim tilfellum þar sem við neyddumst til þess að láta þetta fólk hætta vegna þess að við höfðum enga aðstöðu til þess að láta það halda áfram framhaldsnámi, vegna þess hve það var seinfært og jafnvel enn verra og við höfðum ekki aðstæður til þess að láta það halda áfram.
Ég held þess vegna að ég sé enn sannfærðari en áður um það, að við eigum að halda okkur við níu ára skólaskylduna. Og upplýsingar hæstv. ráðh. áðan sönnuðu mál mitt, sem ég hélt fram í umr. á Alþ. á sínum tíma, hvað hér væri um lága prósentu að ræða, sem hætti námi, og sem betur fer enn lækkandi varðandi þá sem eru seinfærir og ég tala nú ekki um þá sem eru þroskaheftir, vegna þess að nú er svo fyrir séð að einmitt þeir eiga kost á þessu framhaldsnámi sem betur fer, og það eiga þessir sömu nemendur fyrst og fremst grunnskólalöggjöfinni að þakka. Það er hins vegar rétt, að enn vantar nokkuð á að nám þessara aðila sé komið í þann farveg, sem það þyrfti að falla í, því að auðvitað þurfa þessir aðilar miklu lengra nám en þau níu ár. Þó að heimildarákvæði sé til í reglugerð varðandi lengingu náms fyrir þetta fólk, þá hygg ég að fullkomlega sé tímabært, þar sem svo stendur á, að það heimildarákvæði verði enn rýmkað. Ansi margt af þessu fólki þarf mörg ár í viðbót, sem við eigum að viðurkenna og eigum beinlínis að taka inn í löggjöf okkar að þetta fólk eigi rétt á.
Hv. þm. Pálmi Jónsson fór yfir þau atriði, sem hér var komið inn á varðandi skólaskylduna, og þær röksemdir, sem í skýrslunni eru tindar til, jákvæðar þar með. Hann dró þær í efa. Ég ætla ekki að fara að deila við hann um það. Það hefur oft áður á þingi verið deilt um þetta. En ég vildi — með leyfi hæstv. forseta — lesa rökstuðninginn, sem hér er fyrir, og gera þann sama rökstuðning að mínum rökstuðningi fyrir níu ára skólaskyldunni. Þar segir svo:
„Verði aftur horfið að átta ára skólaskyldu rofnar samhengi grunnskólanáms á unglingastigi og er þar með horfið til hliðstæðs fyrirkomulags og þess sem ríkti samkv. lögum nr. 48 1946, um gagnfræðanám. Samkv. þeim lögum voru 3. og 4. bekkur gagnfræðastigs valfrjálsir, en nemendur 1. og 2. bekkjar skólaskyldir. Þetta fyrirkomulag leiddi til tvenns konar misréttis eða stéttaskiptingar innan skólans: annars vegar milli þeirra sem hættu við unglingapróf og hinna sem héldu áfram, hins vegar innbyrðis milli þeirra sem héldu áfram, en fóru í mismunandi „fínar“ eða álitlegar deildir. Verði grunnskólalögum breytt þannig að grunnskóli verði níu ára skóli, en þó aðeins átta fyrstu ár hans skólaskyld, er víst að fyrri stéttaskipting kemur upp aftur og það, sem þegar hefur náðst í jafnréttisátt á fjögurra ára framkvæmdatíma grunnskólalaga, tapast.
Með því að hverfa aftur til átta ára skólaskyldu rofna þau tengsl milli grunnskólastigsins og framhaldsskólastigsins sem nú er verið að koma á með framkvæmd grunnskólalaga — þar sem verið er að undirbúa fulla níu ára skólaskyldu — og breyttum og opnari inntökureglum framhaldsskóla sem miða starf sitt nú þegar í æ ríkara mæli við að taka við megninu af hinum fjölbreytta nemendahópi grunnskólans. Það að rjúfa þessi tengsl gengur þvert á sjálfan grundvöll fjölbrautaskólanna, b. e. þá hugsjón og stefnu sem þeir eru reistir á.“
Ég vona að ég þurfi ekki að fara að tíunda fyrir mönnum hér, hvað í þessu er fólgið. En þar er kannske fyrst og fremst að því vikið að reyna að hefja verknámið til aukins vegs og virðingar, svo sem það á skilið, og tengja einnig framhaldsnámið atvinnulífi okkar meira en orðið hefur. Þó veit ég að á því er sá misbrestur núna, að við höfum ekki þá framhaldsskólalöggjöf, sem eftir þarf að fara til þess að tryggja að hér fari ekki allt úr skorðum þegar að framkvæmdinni kemur.
Hæstv. ráðh. minntist á framhaldsskólafrv. sem mundi verða kynnt í lok þessa þings. Ég hef lýst því áður, að ég teldi miður að ekki skyldi þegar vera komin þar nokkuð föst skipan á. Það stafar auðvitað af því, og þar skilur auðvitað á milli okkar hv. þm. Pálma Jónssonar, sem vill fara í þessu varlega og kanna þetta enn betur, að ég er það ákafur fylgismaður grunnskólalaganna, að ég taldi engan vanda að halda beint áfram og setja framhaldsskólalöggjöf sem tryggði þetta tvennt, þó fyrst og fremst aukið og bætt verknám og aukið og bætt nám í tengslum við höfuðatvinnuvegi okkar. Ég vona að framhaldsskólafrv., þegar það kemur fram, og þau lög, sem verða sett í framhaldi af því, beri þessi höfuðeinkenni. Að því ber að stefna og á það skal treyst. Ég treysti því a. m. k., að ekki dragist lengur en til næsta vors að Alþ. afgreiði lög sem feli í sér þessi meginmarkmið sem ég tel að eigi að vera í framhaldsskólalöggjöfinni.
Ég skal ekki lengja þetta mál miklu meira. Ég vil aðeins harma það; eins og ég hef gert reyndar áður, hve endurskoðun námsefnisins, sem er grundvöllur námsins á grunnskólastiginu, hefur dregist eða dregist saman og þeirri endurskoðun hefur seinkað vegna ónógra fjárveitinga og því gengið þar svo hægt að nú er fyrirsjáanlegt að þar getur orðið í sumum námsgreinum stöðvun á, sem hefur slæmar afleiðingar. En við skulum vona, að á því verði breyting til batnaðar. Ég tek hins vegar undir það með hæstv. ráðh., að það þarf að fara með allri gát að skipan í skólahverfi og engin ástæða er til þess að herða sérstaklega á því, nema þar sem nauðsyn kallar á vegna t. d. sérstaks fámennis í einhverju því skólahverfi sem nú er haldið uppi sem sjálfstæðu og hefur í raun og veru enga möguleika til þess að starfa sem slíkt.
Ég held að ekki hafi verið rétt af menntmrn. að láta frá sér fara þá bók sem almennt var kölluð „Litla gula hænan“ á sínum tíma, um skipun í skólahverfi. Þessi bók vakti mikinn úlfaþyt. Menn töldu að þarna væri um það að ræða, þrátt fyrir það sem stóð í skýringum þarna með, sem menntmrn. ætlaði að þrengja upp á íbúana með góðu eða illu. Þó sá misskilningur, sem í þessu fólst, hafi nú verið leiðréttur nokkuð, þá held ég að það hefði nú verið heppilegra að fara örlítið hægar í sakirnar og ekki senda svona róttækar till. út til manna, þó að sú skýring kunni kannske að vera tiltæk og kannske réttlætanleg, sem maður hefur heyrt frá þeim ráðuneytismönnum, að það væri um að gera að gera fólk nógu dauðhrætt fyrst og vekja það til nógu mikilla andsvara við svona fráleitum till. eins og þeir höfðu þarna sett fram til þess að geta svo komist að einhverju skynsamlegu samkomulagi við fólkið á eftir.