18.04.1978
Neðri deild: 78. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3600 í B-deild Alþingistíðinda. (2729)
282. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Landbrh. (Halldór E, Sigurðsson) :
Herra forseti. Það er fjarri mér að halda því fram, að þau lög, sem voru sett um tekju- og eignarskatt á árunum 1972–1974, hafi verið svo fullkomin að þar hafi ekki verið breytinga þörf. Það væri afskaplega fráleitt ef ég héldi því fram, vegna þess m. a. að þegar ég hætti sem fjmrh. var ég búinn að láta vinna mikið verk í því að endurskoða og breyta heildarlöggjöf skattamála. Þess vegna vil ég segja það í upphafi máls míns nú, að ég tel, að því leyti sem ég hef kynnt mér þetta mál, að hér sé um breytingar til batnaðar að ræða. Ég teldi það mjög illa farið, ef þetta frv. að lögum um tekju- og eignarskatt yrði ekki afgreitt nú á þessu hv. Alþ., þó ég skuli viðurkenna að seint er að staðið. Það væri mjög illa farið ef á þriðja kjörtímabili og þrem ríkisstj. tækist ekki að breyta þessari heildarlöggjöf.
Það var nú svo, að þrátt fyrir að hv. 9. þm. Reykv. hefði setið í ríkisstj. samfleytt í 15 ár, lengur en nokkur annar Íslendingur hefur setið í ríkisstj. samfleytt, þá var þannig ástatt í þjóðmálunum á eftir, að ýmislegt þurfti að bæta. M. a. voru skattalögin, sem sú ríkisstj., sem hann sat í, setti með þeim hætti að á þeim þurfti að gera endurbætur og þær verulegar. Og það er nú svo enn í dag, að stofni til búum við nú við þau lög.
Þær breytingar, sem voru gerðar á skattalögunum 1972, voru ekki hugsaðar til frambúðar nema að mjög takmörkuðu leyti. Hins vegar er ég jafnsannfærður um það nú og ég var þá, að þær voru til bóta. M. a. voru þær nauðsynlegar vegna þess að þá höfðu verið gerðar breytingar á ellilaunum og öryrkja. Þær breytingar gerðu það að verkum, að lækka varð meira skatta á eldra fólkinu en lögin höfðu upphaflega gert ráð fyrir, vegna þess að þessar breytingar skiluðu þessum þegnum meiri tekjum en áður hafði verið.
Ég ætla ekki að fara út í langar umr., en ég vil líka minna á að það voru mín síðustu verk í skattamálum, sem fram komu á Alþ., að breyta lögunum frá 1972 með samkomulagi við stéttarfélögin í landinu, ASÍ, og einmitt um lækkun á tekjuskatti. Þá var svo komið fyrir þeirri ríkisstj., sem ég var þá fjmrh. í, að hún hafði ekki þingmeirihluta til þess að koma þessari breytingu fram. Hún hafði ekki heldur möguleika til þess að lækka tekjuskattinn nema fá aftur á móti hækkun á söluskatti. M. a. var það af því að þessi ríkisstj. hefði orðið að lækka tolltekjurnar til þess að standa við EFTA-samninginn. Það féll í minn hlut sem fjmrh. að ákveða að við samninginn yrði staðið, jafnvel þó að þáv. stjórnarandstaða hefði meinað mér að koma í gegn breytingum á hv. Alþ. í tekjuöflun í söluskatti til þess að mæta þessum tekjumissi. Hins vegar var það svo, að til þess að hægt væri að koma í gegn hækkun á söluskattinum til þess að verða við ósk félaga í ASÍ, þá varð að gera samkomulag við aðra en þá sem ríkisstj. studdu. Og þeir, sem ég gerði samkomulag við, voru Alþfl.-mennirnir undir forustu hv. núv. 9. þm. Reykv., Gylfa Þ. Gíslasonar, og hv. þáv. 5. þm. Vesturl., Benedikts Gröndals. Við báða þessa aðila samdi ég til þess að tryggja að hægt væri að lækka tekjuskattinn að ósk þessara aðila, en þá að ná tekjum aftur af söluskatti. Ég hafði fyrir því fyrirheit, m. a. og fyrst og fremst hv. 3, þm. Reykv. núv., að það samkomulag, sem ég næði við ASÍ-mennina, skyldu þeir samþykkja. Þetta fyrirheit hafði ég. Og áður en ég fór á fund ASÍ-manna til þess að ræða þessi mál, þá talaði ég við þáv. hv. 5. þm. Vesturl., Benedikt Gröndal, vegna þess að hv. 9. þm. Reykv. var þá erlendis — aldrei þessu vant og var hann ekki þá farinn að halda fyrirlestra um landbúnaðarmál eins og hann er farinn að gera nú, en það sýnir að framför hefur orðið mikil hjá þessum hv. þm. þó að mikilhæfur væri fyrir. Ég talaði þá við varaformanninn og hann endurtók að þetta hefði verið samþykkt af þingflokki Alþfl., Karl Steinar Guðnason færi með umboð fyrir þá á ASÍ-þinginu og það sem hann féllist á mætti ég treysta að fengi staðist.
Nú skal ég ekki fara að rekja þessa sögu lengur, því að samkomulag náðist á ASÍ-þinginu. En það var á málinu brotalöm þegar það kom á hv. Alþ. Það veit ég að hv. 9. þm. Reykv. man. Og það urðu mér vonbrigði, að samkomulagið, sem ég hafði náð við forustumenn og þingheim á ASÍ-þinginu, skyldi ekki standa þegar ég kom með það á hv. Alþ. Hins vegar til þess að bjarga því sem bjargað varð komst ég einu skrefi skemmra en ég hafði náð samkomulagi um í tekjuáætluninni þar.
Nú dettur mér ekki í hug að halda því fram að skattalög, sem ég hafði staðið að, hafi ekki haft sína vankanta. Mér hefur aldrei dottið annað í hug en þau væru á þeim tíma gerð til bráðabirgða. Síðan hafa verið gerðar á þeim breytingar og um þessa síðustu breytingu, sem ég hafði forustu um, — ég man nú ekki hvort hv. 9. þm. Reykv. notaði orðið „svívirðilega“, en það var allt að því, — segi ég eins og er, að ég mun ekki telja mér það neitt til vansæmdar að hafa náð samkomulagi við ASÍ-menn um slíka breytingu. Og ég held að hv. þm. muni yfirleitt ekki gera það og telja mig fullsæmdan af því, að það skuli verða minn síðasti þáttur í skattamálum á hv. Alþ. sem fjmrh. sem ég þá stóð að. Hins hefði ég óskað, að þá hefði verið hægt að ljúka við endurskoðun á þessari skattalöggjöf í heild, því að til þess bar brýna nauðsyn. En það fór sem fór, að ekki var þingfylgi fyrir því. Þess vegna hef ég sagt það oft í ríkisstj. og endurtek það hér, að ég mun leggja áherslu á að þetta skattafrv. nái fram að ganga á þessu hv. Alþ. áður en því er lokið. Ég óttast, ef það dagaði uppi nú, að þá geti sagan kannske endurtekið sig, því að það er svo, þó að ekkert sé annað, að hraðinn í þjóðlífi okkar er það mikill að það sem er gott í dag er ekki orðið jafngott á morgun. Þess vegna er ekki nema eðlilegt, að þegar mannaskipti verða í embætti eins veigamiklu og fjmrh: embætti, þá breytist viðhorf til þeirra mála, sem um er fjallað.
Mér er fullkomlega ljóst að hæstv. núv. fjmrh. hefur lagt mikla vinnu í að vinna að þessari skattalöggjöf sem nú er til meðferðar. Og það er ekkert undarlegt, þótt það hafi tekið sinn tíma fyrir hann eins og mig, eins og er þegar menn koma í nýtt starf slíkt sem þetta, að meðhöndla þessi mál. Ekki síst er ástæða til að líta á það, að jafnhliða því sem ég hætti sem fjmrh. hætti þáv. ráðuneytisstjóri um skeið og kom raunverulega ekki til starfa nema um stuttan tíma á þessu kjörtímabili. Hann var sá maður í fjmrn. sem var þessum málum best kunnugur og hefði auðvitað, ef hann hefði verið þar áfram að störfum, getað hraðað því að koma þessum málum áfram. Þetta er m. a. ein ástæðan fyrir því, að svo seint hefur gengið, en auðvitað einnig margvísleg sjónarmið sem hafa komið upp á þessum árum.
Nú skal ég ekki orðlengja þetta. Ég vil aðeins endurtaka að þær breytingar, sem voru gerðar á skattalögunum þau ár sem ég var fjmrh., voru til bóta, ekki síst fyrir þá sem lægstar tekjur höfðu. M. a. sé ég í ræðu, sem ég hélt að rætt er sérstaklega um lækkanir á sköttum hjá öldruðum og öryrkjum sem voru þá gerðar. En hitt er ljóst, að þessi mál eru eins og annar þáttur efnahagsmála, þar er engin eilífðarlausn á ferðinni. Mér er alveg ljóst einnig, að þetta frv. er að stofni til það gott og það mikil bót frá því sem núv. skattalög eru, með öllum þeim breytingum sem á þeim hafa verið gerðar, að það ber brýna nauðsyn til þess að frv. nái fram að ganga. Það mun þó koma á daginn, að þessu skattafrv. þarf að breyta eins og öðrum þáttum skattamála fyrr en seinna, þegar reynslan sýnir, hvernig til hefur tekist, en það er ekkert nýtt.
Ég lít svo á í sambandi við staðgreiðslukerfið, að enn þá lengri tími sé síðan farið var að vinna að því máli. Ég minnist þess frá sveitarstjóraárum mínum, þá sat ég í nefnd sem fjallaði um þann þátt mála, og það hefur verið svo, að hik hefur verið á mörgum að gera þessa breytingu. M. a. hika menn vegna þess, hvernig til tókst hjá frændum okkar Dönum þegar þeir breyttu yfir í þetta kerfi, en á Norðurlöndunum hefur það gefist misjafnlega vel. Nú mun þó hafa tekist að komast yfir ég held veigamestu þættina í þeim veilum sem þar fundust. Hins vegar sýnist mér að það mundi ekki saka þó að afgreiðsla þess máls biði haustsins, þar sem gildistakan er svo rúm sem gert er ráð fyrir.
Nú skal ég ekki hafa þessi orð fleiri, nema endurtaka það, að ég varð að gera samkomulag við hv. 9. þm. Reykv, og hans flokk til þess að koma fram síðustu breytingum á tekjuskattslögunum. Og þó að þær yrðu ekki á þann veg sem ég hafði vonast til, þá voru þær samt til bóta. Það skal tekið fram. Og ég endurtek líka, að brýn nauðsyn er að koma þessu skattalagafrv. í gegnum hv. Alþ., vegna þess að það hefur margt gott inni að halda. Ég er alveg sannfærður um að kostirnir eru langt umfram veilurnar, þótt einhverjar kynnu að leynast þar.