01.11.1977
Sameinað þing: 11. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í B-deild Alþingistíðinda. (273)

313. mál, bifreiðahlunnindi bankastjóra

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það hefur verið upplýst í þessum umr., að ákvörðun um þau fríðindi bankastjóra, sem nú gilda og hér er spurt um, hefur verið tekin á árinu 1970, þ.e.a.s. í tíð þeirrar ríkisstj. sem nefnd var viðreisnarstjórn. Hæstv. viðskrh. og bankamálaráðh. sagði áðan að þessi ákvörðun hefði verið tekin af bankaráðum og þá hefðu allir stjórnmálaflokkar væntanlega átt fulltrúa í bankaráðum. Þá hefur hann að sjálfsögðu átt við þá stjórnmálaflokka sem þá voru starfandi í landinu. Ég tel rétt að vekja athygli á því, að síðan hefur komið til einn stjórnmálaflokkur sem ekki er samábyrgur um þessa ákvörðun þeirra aðila sem að henni stóðu á sínum tíma, en það eru SF. Þau áttu eðlilega ekki á þessum tíma fulltrúa í bankaráðum og eru því ekki aðili að þessari ákvarðanatöku. Þetta skiptir kannske ekki meginmáli, en það er rétt að koma því hér að.

Það er spurning alltaf, a.m.k. er það í mínum huga, hvort þau fríðindi, sem ráðh. hafa, eru réttlætanleg gagnvart almenningi. Ég er þeirrar skoðunar, að það sé ekkert óeðlilegt að ætla að ráðh. og vel launaður embættismaður taki á sig kvaðir t. d, gagnvart bílarekstri og bílaeign eins og hinn almenni maður í landinu verður að gera vinnu sinnar vegna. En hvað um það, ef menn eru sammála um að ráðh. séu þess verðir að njóta slíkra réttinda, er þá jafneðlilegt að t.d. bankastjórar hafi sömu fríðindi? Ég líki því ekki saman, bankastjóraembætti t.d. og ráðherraembætti. Þó að menn yrðu um það sammála að ráðh. ættu að njóta slíkra forréttinda eða fríðinda, þá tel ég það síður en svo sjálfgefið að bankastjórar eigi að njóta þeirra á sama hátt. Ég er þeirrar skoðunar, að bankastjórastarfið sé ekki þess eðlis að það sé nauðsynlegt að þeir njóti þessara fríðinda á borð við ráðh. Það er því ástæða til fyrir bankaráðin, og þá beini ég auðvitað máli mínu til þeirra hv. þm. sem eru formenn bankaráða og sitja hér í sætum, að taka upp þetta mál til breytinga, því að það er ekkert sem sérstaklega réttlætir það að bankastjórar haldi þessum sömu fríðindum og ráðh. hafa.