18.04.1978
Neðri deild: 78. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3605 í B-deild Alþingistíðinda. (2734)

283. mál, staðgreiðsla opinberra gjalda

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :

Virðulegi forseti. Frv. það, sem hér er til umr., er annað af tveimur, eins og fram hefur komið, sem liður í endurskoðun á skattalögum. frv. til l. um staðgreiðslu opinberra gjalda.

Upp úr lokum síðari heimsstyrjaldarinnar eða í ársbyrjun 1947 byrjaði að brydda á tali og till. um að stefna bæri að upptöku staðgreiðslu opinberra gjalda hér á landi. Í yfirlýsingu ríkisstj. á Alþ. 13. okt. 1965 var tekið fram, að eitt af þeim verkefnum, sem ríkisstj. mundi beita sér fyrir, væri að koma á staðgreiðslu opinberra gjalda hér á landi. Í framhaldi af þessari yfirlýsingu var ríkisskattstjóra, Sigurbirni Þorbjörnssyni, falið að sjá um undirbúning málsins og voru ráðnir honum til aðstoðar þeir Helgi V. Jónsson hrl. og löggiltur endurskoðandi og dr. Gísli Blöndal hagsýslustjóri. Undirbúningsrannsóknir fóru fram á árinu 1966 og hinn 11. okt. 1966 skilaði ríkisskattstjóri skýrslu og grg. til þáv. fjmrh. Magnúsar Jónssonar um þetta mál. Hinn 25. okt.1966 skipaði fjmrh. 7 manna nefnd embættismanna, fulltrúa sveitarfélaga og þáv. stjórnarflokka. Framkvæmdastjóri nefndarinnar var ríkiskattstjóri og ritari dr. Gísli Blöndal. Nefndin skilaði skýrslu sinni til í fjmrh. 14. mars 1967.

Hinn 18. apríl 1967 var á Alþ. samþ. þáltill. þess efnis, að Alþ. kysi 7 manna nefnd er héldi áfram athugun þessa máls og skyldi hún leita álits samtaka sveitarfélaga og helstu samtaka vinnumarkaðarins. Nefndin hélt fyrsta fund sinn hinn 10. maí 1967 og var formaður hennar Ólafur Björnsson prófessor. Guttormur Sigurbjörnsson gegndi störfum ritara. Viðræðunefndir voru skipaðar af hálfu Sambands ísl. sveitarfélaga, launþegasamtaka og vinnuveitenda. Ríkisskattstjóri starfaði með þessari nefnd. Í nál. mþn., sem útbýtt var á Alþ. í jan. 1970, kemur fram að nm. svo og allir aðilar viðræðunefnda, þ. e. fulltrúar Sambands ísl. sveitarfélaga, fulltrúar launþegasamtaka og fulltrúar vinnuveitenda, voru fylgjandi upptöku staðgreiðslu opinberra gjalda hér á landi í svipuðu formi og fram kom í nál. um skipan staðgreiðslukerfis, en sá hluti nál. var saminn af ríkisskattstjóra með hliðsjón af viðræðum nefndarinnar við greinda viðræðuhópa.

Áður en lengra er haldið þykir mér rétt að ræða örlítið um þá kosti og galla sem talið hefur verið að séu á staðgreiðslu opinberra gjalda, og tel þá upp kostina fyrst:

1. Öryggi gjaldenda, þar sem staðgreiðsla stuðlar að jafnvægi milli skattheimtu eða endurgreiðslu og greiðslugetu gjaldenda á teknaárinu.

2. Innheimta hins opinbera yrði öruggari og jafnari en nú er.

3. Staðgreiðslan mundi hafa jafnvægisáhrif á efnahagslífið. Unnt yrði að búa þannig um hnútana, að hið opinbera gæti beitt opinberum gjöldum meir í hagstjórnarskyni en hingað til.

4. Álag á launagreiðendur við innheimtu opinberra gjalda mundi minnka verulega frá því sem nú er. Þessi staðhæfing er vitanlega byggð á samanburði við gildandi kerfi hjá þeim launagreiðendum sem framfylgja í einu og öllu gildandi ákvæðum og fyrirmælum um innheimtu opinberra gjalda, um skyldusparnað svo og greiðslu orlofsfjár.

5. Möguleikar á einföldun skattframtala almennra launþega með hliðsjón af þeirri einföldun sem jafnframt er ráðgerð á skattalöggjöfinni, sem segja má að sé nauðsynleg hvort sem er.

Þá komum við að þeim atriðum sem talin hafa verið gallar.

1. Að framkvæmd staðgreiðslu mundi, a. m. k. fyrst í stað, krefjast aukins átaks og kostnaðar hins opinbera. Að vissu marki mundu skattyfirvöld yfirtaka vissar skyldur atvinnurekenda varðandi dreifingu á skilum á innheimtu opinberra gjalda til margra innheimtuaðila.

2. Að gjaldendur töpuðu því hagræði, sem gildir í dag, að geta dregið greiðslur opinberra gjalda sem lengst, þ. e. allt að hálfu til einu og hálfu ári eftir teknamyndun, eins og nú er. En eins og fram hefur komið hjá launþegasamtökunum telja flestir launþegar mikilvægara að vita, hvar þeir standa á hverjum tíma, og þurfa ekki að reikna með bakkröfum frá hinu opinbera í ríkari mæli en staðgreiðsla gæti tilefni til.

3. Að staðgreiðsla mundi ýta undir meiri kaupkröfur en ella, þar sem hluti þeirra kauphækkana, sem felast í nýjum kjarasamningum, yrði þegar í stað tekinn af launþegum í hækkuðum sköttum í stað greiðslufrests í gildandi innheimtufyrirkomulagi. Miðað við það horf, sem gerð kjarasamninga virðist hafa færst í að undanförnu í auknum mæli, virðist ekki mikið hald í þessum galla.

4. Að gjaldendur yrðu ófúsari að leggja á sig viðbótarvinnu og heildarframboð vinnuafls mundi því minnka af þeim sökum, þar sem launþegar yrðu strax varir við opinber gjöld í stað gjaldfrests þeirra að öllu óbreyttu.

5. Að gjaldþegnar færu að líta á laun að frádregnum opinberum gjöldum og taka mið af þessum nettólaunum við launakröfur sínar. Þetta mun aðallega geta átt við fámenna starfshópa sem geta að meira eða minna leyti ákveðið kjör sín sjálfir, en getur ekki átt við hinn almenna launamarkað.

6. Afstaða sumra gegn staðgreiðslu hefur mótast af því, að erfiðara sé að koma henni á hér á landi en víða annars staðar vegna atvinnuhátta okkar. Því er til að svara að sömu vandamál og ekki síðri blasa alls staðar við í gildandi innheimtu vegna atvinnuhátta okkar.

7. Afstaða sumra gegn staðgreiðslu hefur mótast af því, að betra sé að endurbæta gildandi kerfi en að taka upp staðgreiðslu. Gildandi kerfi verður aldrei endurbætt að neinu marki. Það byggir nú á og verður ávallt að byggjast á teknamyndun og fjölskylduaðstæðum sem voru fyrir hendi fullu einu eða tæpum tveimur árum áður en fyrirframgreiðsla hófst, en einu og hálfu og allt að tveimur og hálfu ári áður en henni lýkur, enn fremur að innheimta eftirstöðva álagðra gjalda á gjaldárinu byggist á sömu aðstæðum, sem eru þegar orðnar 7–19 mánaða gamlar við upphaf og ein til tveggja ára gamlar þegar lýkur. Sömu vandkvæðin verða nú uppi á teningnum varðandi endurgreiðslu barnabóta að hluta eða að fullu og þátttöku ríkissjóðs í útsvörum.

Í ársbyrjun 1975 fól ég ríkisskattstjóra að gera till. um með hvaða hætti og á hvaða grundvelli framkvæma megi staðgreiðslu opinberra gjalda hér á landi. Till. sínum skilaði ríkisskattstjóri mér í maí 1975. Í samræmi við það verkefni, sem honum var falið, gerði hann beinar till. um þetta efni, án beins eða nánari rökstuðnings. Till. vorn því nokkurs konar beinagrind að staðgreiðslukerfi sem ætti eftir að fylla út í og fullkomna við upptöku staðgreiðslu hér á landi.

Till. og grg. ríkisskattstjóra sendi ég 19 aðilum til umsagnar. 4 aðilar svöruðu ekki beiðni um umsögn, einn aðili var andvígur málinu, tveir aðilar blönduðu málinu saman við önnur kattaleg efni og svöruðu því efnislega óljóst, tveir aðilar töldu að ákveðnari hugmyndir um einföldun skattkerfis þyrftu að liggja fyrir, en studdu þó hugmyndina. Af þeim 15 aðilum, sem svöruðu, voru 10 aðilar fylgjandi málinu.

Í stefnuræðu hæstv. forsrh. á Alþ. 3. nóv. s. l. var boðað, að frv. til l. um staðgreiðslu opinberra gjalda yrði lagt fyrir Alþ., og í ræðu minni við 1. umr. um fjárlög þessa árs á Alþ. 8. nóv. s. l. vísaði ég til þess um þetta mál og taldi ljóst að stefna bæri að upptöku staðgreiðslu skatta í megindráttum með sama sniði og lýst er í skýrslu ríkisskattstjóra sem út kom í maí 1975. Í framhaldi af þessu hefur verið unnið að undirbúningi og samningu þessa frv., sem hér er til umr.

Frv. þetta er samið með hliðsjón af ákvæðum frv. til l. um tekjuskatt og eignarskatt, sem lagt er fram samhliða frv. þessu, af frv. til l. um breyt. á lögum nr. 67/1971, um almannatryggingar, sem lagt hefur verið fram, svo og væntanlega frv. til l. um atvinnuleysistryggingar. Þá er við það miðað, að lög nr. 36/1948, um sóknargjöld, verði breytt á þann veg, að sóknargjald reiknist sem hundraðshluti af álögðum útsvörum.

Í sambandi við gildissvið staðgreiðslu samkv. frv. vil ég vekja athygli á því, að innan þess fellur ekki söluskattur sem er í reynd skil innheimtufjár og staðgreitt. Með hliðsjón af væntanlegri athugun á breytingu söluskatts yfir í virðisaukaskatt þótti rétt að halda söluskatti utan við gildissvið staðgreiðslu samkv. þessu frv. þar til ljósari línur kæmu fram um framgang virðisaukaskatts eða breytingu á lögum um söluskatti. Ljóst er að meiri og minni breytingu verður að gera á ákvæðum allra þeirra laga, sem gilda í dag um þá skatta og gjöld sem upp eru talin í 1. gr. frv., að undanskildum tekjuskatti og álagi á hann og því er varðar ákvæði um innheimtu þeirra og í sumum tilfellum um ákvörðun stofns og gjaldstigs.

Gildissvið staðgreiðslu samkv. 1. gr. frv. nær til 13 skatta og gjalda, auk greiðslu orlofsfjár og skyldusparnaðar. Skattar og gjöld samkv. 1.–5. tölulið yrðu allir tengdir tekjum eða gjöldum sem eru álag á þá skatta sem eru tengdir tekjum, og má því gefa þeim samnefnið „tekjuskattar“. Ákvörðun fjárhæða orlofsfjár og skyldusparnaðar er nátengd launatekjum. Telja verður að hagræði sé að því fyrir alla aðila, að skil þess fjár tengist staðgreiðslu af launatekjum. Tekjuskattur, orlofsfé og skyldusparnaður eru þeir skattar og innheimtur sem snúa að launþegum og launagreiðendum, en auk launþega í þjónustu launagreiðenda teljast til þessa hóps þeir menn sem hafa með höndum atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi að því marki sem þeim ber að gjalda tekjuskatta og standa skil á skyldusparnaði af því endurgjaldi sem þeir telja sér til tekna og myndar í raun launagrundvöll hjá þeim.

Sköttum og gjöldum samkv. 6.–9. tölul. má gefa samnefnið „launatengd gjöld“, þar sem grunnur þeirra er byggður á launagreiðslum launagreiðenda. Ákvörðun greiðslufjárhæðar þessara launatengdu gjalda verður mjög einföld, þegar lítið er til frv. um breyt. á l. um almannatryggingar og væntanlegs frv. um breytingar á atvinnuleysistryggingargjöldum.

Gjöldum samkv. 10.–12. tölul. má gefa samnefnið „gjöld tengd rekstrargjöldum“, þar sem grunnur þeirra er byggður á rekstrargjöldum þeirra sem hafa með höndum atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi. Tekjuskatta þessara aðila og umrædd gjöld verður að áætla fyrir fram og innheimta á staðgreiðsluári með hliðsjón af slíkum áætlunum.

Meginreglur staðgreiðslu eru þær, að um er að ræða bráðabirgðagreiðslu allra gjalda eða greiðsluskyldu allra aðila á opinberum gjöldum, orlofsfé og skyldusparnaði á staðgreiðsluárinu.

Staðgreiðsla opinberra gjalda launþega í viðtækustu merkingu þess orðs byggist á svonefndri „einföldu reglu“ staðgreiðslu, í meginatriðum með notkun skattkorta launþega og skatttaflna fyrir launagreiðendur, á sama eða svipaðan hátt og tíðkast í Bandaríkjunum og Vestur-Þýskalandi.

Í A-hluta III. kafla frv. koma greinilega fram reglur um tilhögun staðgreiðslu launþega sem launagreiðendur sjá um fyrir hönd þeirra. Mun ég í örstuttu máli gera grein fyrir því.

Gerð skattkorta og útsending þeirra til launþega þarf að vera lokið fyrir upphaf staðgreiðsluárs, svo að launþegi hafi skattkort sitt handbært til afhendingar hjá launagreiðanda sínum strax við upphaf þess. Til þess að unnt sé að ná þessu tímamarki verður að byggja á frumgerð þjóðskrár 1. des. þess árs sem næst fer á undan staðgreiðsluári. Frá gerð þjóðskrár til loka ársins má vænta ýmissa breytinga á fjölskyldum sumra launþega vegna giftingar, skilnaðar, barnsfæðinga eða dauðsfalla. Þessar breytingar þurfa að koma fram þannig að leiðrétt skattkort beri með sér réttar upplýsingar um fjölskyldu launþegans í lok þess almanaksárs sem næst fer á undan staðgreiðsluári. Á sjálfu staðgreiðsluárinu verður hins vegar engin breyting gerð á skattkorti launþega vegna breytinga á fjölskyldustærð hans á því ári. Fæðing barns á staðgreiðsluárinu mundi því ekki veita launþega rétt til barnabóta vegna barns fædds á staðgreiðsluárinu sjálfu. Aftur á móti mun hann fá barnabætur greiddar fyrir barnið á því ári sem það verður 16 ára.

Gerð skatttaflna og útsendingu þeirra til launagreiðenda þarf að vera lokið fyrir upphaf staðgreiðsluárs, svo að þær séu handbærar fyrir lok fyrsta greiðslutímabils á staðgreiðsluári. Skattatöflurnar mundu byggjast á ákvæðum þeirra laga, sem um ræðir í 1.–5. tölul. 1. gr. frv., þ. e. um tekjuskatta, þó með ákveðnum frávikum að því er varðar útsvar, kirkjugarðsgjald og sóknargjald Við athugun á álagningu útsvars 1977 kemur í ljós, að 164 sveitarfélög af 224, eða 73.21%, notuðu álagningarhundraðshluta 10%, 10.5% eða 11%. Þessir álagningarhundraðshlutar útsvars náðu til 95.77% af fjölda útsvarsgjaldenda og til 97.68% af fjárhæð álagðra útsvara á gjaldárinu 1977, sem nemur samtals 13 789 millj. kr. Til þess að unnt sé að komast af með eina skatttöflu fyrir hvern einstakan fjölskyldukjarna og hvert einstakt greiðslutímabil er ráðgert að í skatttöflum verði ávallt reiknað með hámarkshundraðshluta af útsvarsskyldum tekjum samkv. ákvæðum i. mgr. 25. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga. Til þess að ná því markmiði að nota sem fæstar skatttöflur og haga staðgreiðslu launþega á sem einfaldastan hátt er gert ráð fyrir að í skatttöflum verði notað sama álag á útsvör við ákvörðun á staðgreiðslu kirkjugarðsgjalda og sóknargjalda og beitt er við álagningu þessara gjalda í Reykjavík á því álagningarári sem næst fer á undan staðgreiðsluári. Skatttöflur þyrftu að vera tvær fyrir hvert einstakt greiðslutímabil, annars vegar tafla fyrir einstaklinga með eða án barna, en til einstaklinga í þessu sambandi telst hvort hjóna um sig, og hins vegar tafla fyrir einstaklinga með eða án barna sem leggja skattkort maka síns inn til launagreiðanda sinna.

Þegar ákvörðun launþega fyrir ákveðið greiðslutímabil er lokið, er orlofsfé ákvarðað eftir því sem við á. Launagrundvöllur er hækkaður eða lækkaður með hliðsjón þar af svo og að teknu tilliti til skattskyldra hlunninda og launatengdra frádrátta. Af þannig leiðréttum launagrundvelli markast staðgreiðsla launþegans á opinberum gjöldum eða réttur hans til endurgreiðslu barnabóta, annars vegar með hliðsjón af skatttöflum greiðslutímabils launanna og hins vegar með hliðsjón af skattkorti launþegans. Á skatttöflum ákveðins greiðslutímabils kæmu fram ákveðnar fjárhæðir launa annars vegar og út frá þeirri launaupphæð í sömu línu skatttöflunnar kæmi fjárhæð þeirra opinberu gjalda, sem halda bæri eftir, eða barnabóta, sem bæri að endurgreiða miðað við þessa launaupphæð annars vegar og fjölskyldukjarnamerkingu á skattkorti launþegans hins vegar.

Í þessum hluta III. kafla frv. koma einnig fram skýrar reglur um hvernig með skuli fara ýmis afbrigði, svo sem ef aðstæður breytast hjá launþega að því er varðar skyldu til sparnaðar eða telji launþegi sig eiga rétt til hærri frádráttar frá tekjum en fastafrádrætti nemur, t. d. vegna vaxtabyrði, sbr. 14. gr. Þá er hægt að fá breytingu á skattkorti til að ná sem mestri nákvæmni milli staðgreiðslu og álagðra tekjuskatta að staðgreiðsluárinu loknu, enn fremur hvernig með skattkort skal fara ef einungis annað hjónanna er launþegi, en hitt hefur engar launatekjur á sama tíma, svo og hvernig ákvarða skuli staðgreiðslu hjá þeim aðilum sem ekki afhenda skattkort sitt til launagreiðandans.

Staðgreiðsla atvinnurekenda og manna, sem hefðu sjálfstæða starfsemi með höndum, byggðist á fyrir fram gerðri áætlun að því er varðaði alla tekjuskatta lögaðila og á þeim hluta tekjuskattamanna sem ekki yrði greiddur af þeim sem launþegum, auk fyrir fram gerðrar áætlunar um greiðsluskyldu gjalda sem tengd eru rekstrargjöldum hjá öllum þessum aðilum. Staðgreiðsla launagreiðenda á launatengdum gjöldum yrði byggð á launagreiðslum, eins og áður getur.

Í B-hluta III. kafla frv. koma greinilega fram þær reglur sem mundu gilda um staðgreiðslu opinberra gjalda atvinnurekenda og eigi þykir ástæða til að rekja hér lið fyrir lið.

Í IV. kafla frv. er fjallað um skil á staðgreiðslu sem byggist fyrst og fremst á ótilkvöddum greiðslum launagreiðenda og atvinnurekenda á því fé sem þeim ber að standa skil á sem skilafé og sem greiðsluskyldri fjárhæð eigin gjalda. Enn fremur er þar fjallað um skilagreinar sem þessum aðilum ber að skila ásamt greiðslu. Þessum aðilum verður gefið val á því að annast greiðslu sína til innheimtumanna ríkissjóðs, þar með taldar gjaldheimtur, eða inna greiðsluna af hendi í banka, sparisjóði eða á póststöð. Enn fremur er þeim gefið val á því, hvort þeir skili skilagreinum sínum til þessara aðila ásamt greiðslunni eða sendi skilagreinar sínar beint til skattstjóra.

Í V. kafla frv. er fjallað um stjórnun staðgreiðslu, sem alfarið er lagt til að verði undir yfirstjórn ríkisskattstjóra. Þar er ítarlega fjallað um skyldur ríkisskattstjóra, m. a. útgáfu reglna og leiðbeininga fyrir launþega, launagreiðendur og atvinnurekendur um notkun gagna og eyðublaða, en eitt mikilvægasta atriðið í allri framkvæmd er að þessum aðilum sé ljóst hver sé réttur þeirra og skyldur. Enn fremur er þar fjallað um skyldur skattstjóra. Svo og er þar að finna ákvæði um eftirlits- og rannsóknarheimildir skattyfirvalda, sem fela fyllilega í sér kvöð á skattyfirvöldum um að veita upplýsingar og ráðgjöf og gera fyrirbyggjandi ráðstafanir engu síður en eftirlits- og rannsóknarheimildir vegna gruns um brot á reglum þeim sem launagreiðendum og atvinnurekendum ber að fara eftir. Áríðandi er gott samstarf milli launagreiðenda og atvinnurekenda annars vegar og skattyfirvalda hins vegar um farsæla og örugga framkvæmd staðgreiðslunnar.

Í VI. kafla frv. er fjallað um viðurlög og innheimtu þeirra ásamt vanskilafé hjá launagreiðendum og atvinnurekendum. Þá innheimtu mundu innheimtumenn ríkissjóðs, þar með taldar gjaldheimtur, annast. Enn fremur er hér um að ræða viðurlög vegna vanrækslu á tilkynningarskyldu launagreiðenda og atvinnurekenda svo og viðurlög vegna vanrækslu greiðsluskila og skila skilagreina sem innheimtumenn ríkissjóðs, bankar, sparisjóðir og póststöðvar hafa móttekið frá launagreiðendum og atvinnurekendum eða innheimt hjá þeim. Viðurlög eru stíf, sérstaklega hjá þeim aðilum sem eigi standa í skilum á skilafé, þ. e. hjá launagreiðendum á því fé sem þeir hafa haldið eftir af launum launþega.

Í VII. kafla frv. er fjallað um skiptingu á innheimtufé staðgreiðslu sem bráðabirgðagreiðslu til rétthafa þeirra skatta og gjalda sem falla innan gildissviðs staðgreiðslunnar.

Í VIII. kafla er fjallað um álagningu þeirra skatta og gjalda sem falla innan gildissviðs staðgreiðslunnar, en álagningu þeirra skulu skattstjórar annast ásamt álagningu eignarskatts með álagi til Byggingarsjóðs ríkisins. Enn fremur er fjallað um uppgjör staðgreiðslu, þ. e. a. s. ákvörðun greiðslustöðu hvers og eins gjaldanda með hliðsjón af álagningu samkv. skattskrá annars vegar og staðgreiðslu hans á staðgreiðsluárinu hins vegar, en hún skal gerð af ríkisskattstjóra.

Að loknu uppgjöri á greiðslustöðu gerir ríkisskattstjóri innheimtuskrá fyrir þær gjaldheimtur, sem reynast skulda skatta og gjöld, og sendir þær til innheimtu hjá innheimtumönnum ríkis­ sjóðs að því er varðar þinggjöld, en til innheimtumanna sveitarsjóðs að því er varðar sveitarsjóðsgjöld (útsvör og aðstöðugjöld).

Reynist gjaldandi eiga inni eftirstöðvar af staðgreiðslu sinni ganga þær fyrst upp í vangoldin þinggjöld hans eða maka hans frá fyrri árum, ef fyrir hendi eru, síðan upp í vangoldin sveitasjóðsgjöld hans eða maka frá fyrri árum, ef fyrir hendi eru, og að lokum til beinnar endurgreiðslu til gjaldandans sjálfs ef einhverjar eftirstöðvar eru enn fyrir hendi. Við slíka skuldajöfnun reiknast ekki dráttarvextir á ógoldin gjöld nema til loka næsta árs á undan endurgreiðslu. Skuldi gjaldandinn engin þinggjöld eða sveitarsjóðsgjöld frá fyrri árum fær hann endurgreiðsluna greidda að fullu ásamt 1.5% vöxtum á mánuði eða brot úr mánuði frá 1. jan. á endurgreiðsluári.

Í IX. kafla frv. er fjallað um innheimtu og ábyrgð þinggjalda og sveitarsjóðsgjalda, sem innheimta skal samkv. áðurgreindum innheimtuskrám. Enn fremur er fjallað um innheimtu og ábyrgð þinggjalda og sveitarsjóðsgjalda vegna breytinga skatta og gjalda samkv. upphaflegri skattskrá. Þessi ákvæði eru í meginatriðum þau sömu og í gildi eru varðandi innheimtu þinggjalda og sveitarsjóðsgjalda í dag.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir því frv. sem hér er til umr. Ég leyfi mér að vonast til þess að þetta frv. eins og um frv. til l. um tekjuskatt og eignarskatt, að fjh.- og viðskn. beggja þd. starfi saman og til þeirra verði kallaðir þeir aðilar sem gerst þekkja þau mál, sem hér er um fjallað, og að þeim hafa unnið.

Ég leyfi mér svo að leggja til að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.