19.04.1978
Efri deild: 80. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3614 í B-deild Alþingistíðinda. (2740)
228. mál, Sölustofnun lagmetisiðnaðarins
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen) :
Herra forseti. Árið 1972 voru sett lög um Sölustofnun lagmetisiðnaðarins og nokkur breyting gerð á þeim á árinu 1974. Sum ákvæði þessara laga, svo sem um fjáröflun og fjárstyrk úr ríkissjóði, voru ákveðin til 5 ára og er því nauðsynlegt að gera nýjar ákvarðanir af Alþ. hálfu um nokkur þau atriði sem þannig voru tímabundin í lögunum.
Þetta frv. fer fyrst og fremst fram á það, að Sölustofnun lagmetisiðnaðarins sé áfram tryggt fé til sinnar mikilvægu starfsemi. Er gert ráð fyrir að það sé fyrst og fremst gert með fullvinnslugjaldi af söltuðum grásleppuhrognum, söltuðum matarhrognum og frystum þorskhrognum, sem flutt eru til útlanda, svo og útfluttu lagmeti. Þetta fullvinnslugjald skal vera 3% af fob-verði áðurnefndra hrogna, en 1% af fob-verði lagmetis, eins og segir í 3. gr. frv.
Þetta frv. var lagt fyrir hv. Nd. og var samþ. þar með nokkrum breytingum, eins og fram kemur á þskj. 523, 573, 574 og 597.
Frv. fylgir það ítarleg grg., að ég sé ekki ástæðu til þess að hafa langa framsögu fyrir þessu máli, en ég vil aðeins taka það fram í sambandi við 3. gr. og vildi beina því sérstaklega til hv. iðnn. sem málinu verður væntanlega vísað til, að við prentun á þskj. 574, þ. e. uppprentun á brtt. frá hv. iðnn., hefur fallið niður setning sem þar átti að vera og var flutt af iðnn.: „Af fullvinnslugjaldi á grásleppuhrogn skal Þróunarsjóður lagmetis greiða 1/3 hluta til samtaka grásleppuhrognaframleiðenda.“ Þannig hafði þetta verið flutt af hálfu iðnn., sbr. þskj. 523, en af einhverjum ástæðum hefur þessi setning fallið niður í síðari prentun. Vil ég beina því til n., að hún taki upp þessa leiðréttingu. En við meðferð málsins varð það að samkomulagi við þessi umræddu Samtök grásleppuhrognaframleiðenda, að þau fengju þriðjung af þessu fullvinnslugjaldi.
Ég vænti þess, að frv. þetta hljóti góðar undirtektir í þessari hv. d., og legg til, að því verði vísað til 2. umr. og iðnn.