19.04.1978
Efri deild: 80. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3617 í B-deild Alþingistíðinda. (2742)
228. mál, Sölustofnun lagmetisiðnaðarins
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég tek undir aths. hv. þm. Jóns Árm. Héðinssonar varðandi tímasetningu þessa frv. Ég hefði talið ákaflega æskilegt, að frv. hefði komið fyrr fram, og hafði raunar vænst þess, að okkur yrði sparaður tími, því að von var á þessu frv., vitað var að það mundi koma fram núna, — okkur yrði sparaður tími í iðnn. með sameiginlegum fundum þar sem við ættum þess kost að ræða við forsvarsmenn þeirra úr hrognkelsasamtökunum og hlýða á álit þeirra á þessu máli. Nú þykist ég hafa sannfrétt að forsvarsmenn hrognaframleiðenda hafi tekið allvel undir þetta frv., þeir telji að hér sé hlutur þeirra bættur frá því sem áður var, þegar tekin voru af þeim 6% til Sölustofnunar lagmetisiðnaðarins, eins og hv. þm. Jón Árm. Héðinsson sagði, án þess að hrognaframleiðendur fengju neitt í staðinn. Þeim þykir sá kostur betri sem nú verður upp tekinn, að þetta gjald verði lækkað í 3% og samtök þeirra í einni eða annarri mynd fái 1% til sinna þarfa.
Ég hygg að meiri hl. hv. dm. sé þeirrar skoðunar, að upp á Alþ. standi nú að tryggja áframhaldandi starfsemi Sölustofnunarinnar með einhverjum hætti. Óráðlegt væri að bregða fæti fyrir stofnunina nú, því að ljóst er af þeim upplýsingum, sem frv. fylgja, og öðrum upplýsingum, sem fyrir liggja, að nú er þó þrátt fyrir allt að rofa dálítið til fyrir þessari stofnun og að hún er líkleg til þess, ef gifta vill, að gera okkur býsna mikið gagn þegar til lengdar lætur.
Ýmislegt mætti segja um útflutninginn á grásleppuhrognum frá Íslandi. Þó ég taki undir það, sem Jón Árm. Héðinsson sagði um stopulleika prósentunnar sem upplýsingamiðils, þá leyfi ég mér að geta þess, að haft er fyrir satt að Íslendingar ráði yfir allt að 90% af grásleppuhrognaframleiðslu heimsins. Við höfum flutt verulegan hluta, langmestan hluta af grásleppuhrognunum út söltuð, þar sem keppinautar okkar um markaðinn hafa síðan lagt hrognin niður í neysluumbúðir og selt. Hið allra æskilegasta væri náttúrlega að við flyttum ekkert af þessum hrognum út öðruvísi en í neytendaumbúðum. Bráðnauðsynlegt er fyrir okkur að haga útflutningi hráefnisins, á meðan við enn flytjum hráefnið út, á þann veg, að síst verði til tjóns fyrir Sölustofnun lagmetisiðnaðarins og þar af leiðandi alveg bráðnauðsynlegt að sem best samstarf verði á milli samtaka þeirra hrognkelsaveiðimanna og Sölustofnunarinnar. Mikið vantar á að fyrir hendi sé efnahagslegur grundvöllur og viðskiptalegur fyrir því að leggja öll þessi grásleppuhrogn niður í dósir nú þegar hér heima. En hugsanlegt væri að hemja framboðið á grásleppuhrognunum héðan með tilliti til heildarhagsmunanna, hemja framboðið t. d. með þeim hætti að tryggja lán út á söltuð grásleppuhrogn þannig að hægt væri að geyma þau óseld á landi hér og auðvelda með þeim hætti að komast hjá offramboði á markaðnum og stuðla að því að farið verði að leggja grásleppuhrognin niður í þeim mæli hérlendis að við getum haft raunveruleg áhrif á heimsmarkaðsverðið. Ef í ljós skyldi koma að við gætum náð sömu heildartekjum til grásleppuveiðimanna okkar með því að skera aflamagnið niður um helming og spara þannig bæði net og tíma og aðra kostnaðarliði við útgerðina, þá væri ekki til einskis unnið, sérstaklega með tilliti til þess, að við höfum ástæðu til þess að ætla að hrognkelsin séu ofveidd nú með þeirri stundun, sem tíðkast hefur upp á síðkastið, og með þeirri stundun, sem blasir við að verði með hækkandi verði á grásleppuhrognunum.
Ég styð frv. að svo komnu máli með fyrirvara og óska þess, að við fáum þrátt fyrir nauman tíma, tækifæri til þess að afla okkur upplýsinga í n. í líkingu við þær sem Jón Árm. Héðinsson drap á áðan. Ég mun að öðru leyti láta atfylgi mitt við frv. ráðast af þeim upplýsingum sem þar koma fram.