19.04.1978
Efri deild: 80. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3619 í B-deild Alþingistíðinda. (2745)
286. mál, eftirlit með framleiðslu á fóðurvörum
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson) :
Herra forseti. Á bls 605 er frv. til laga um eftirlit með framleiðslu á fóðurvörum, áburði og sáðvörum og verslun með þær vörur, ástæðan til þess, að þetta frv. er flutt, er sú að komið hefur fram á Búnaðarþingi og hjá bændasamtökum og fleiri aðilum, að eftirlit með þessari framleiðslu og sölu á þessum vörum væri ekki sem skyldi. Til eru eldri lög um sum af þessum atriðum, en þau eru ekki talin fullnægjandi svo að fullkomið eftirlit væri með þessu í heild. Sérstaklega er það að því er varðar áburð.
Frv. þetta sem hér liggur fyrir, hefur verið samið af Hauki Jörundssyni skrifstofustjóra í landbrn. ásamt Óttari Geirssyni ráðunaut og Rögnvaldi Friðjónssyni eftirlitsmanni.
Ekki er gert ráð fyrir að þetta frv. hafi í för með sér kostnað, því gert er ráð fyrir að þeir framleiðsluaðilar, sem eftirlit er haft með, annist þann kostnað sem af því leiðir, en ríkissjóður ekki.
Ég hef ekki sett þetta mál á skrá með þeim frv. sem ég óskaði eftir að afgreidd yrðu á þessu þingi. Hins vegar er málið með þeim hætti, að ég tel að það muni ekki valda neinum deilum og æskilegt væri að það gæti orðið afgreitt, en tíminn verður að ráða því. Það fjallar sérstaklega um eftirlit með áburði sem hefur verið talin brýn nauðsyn að koma á, en hefur ekki verið, og svo að fá í eina löggjöf þessa þætti sem framleiðslu og sölu varða. Það er hin mesta nauðsyn og þess vegna er frv. flutt.
Ég sé ekki ástæðu til að halda um frv. langa ræðu, því það skýrir sig sjálft ásamt þeirri grg. sem fylgir. Legg ég til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. landbn. Væri ég að sjálfsögðu þakklátur ef n. sæi sér fært að hraða afgreiðslu þess.