19.04.1978
Efri deild: 80. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3621 í B-deild Alþingistíðinda. (2751)
134. mál, lífeyrissjóður sjómanna
Frsm. (Jón Helgason) :
Herra forseti. Félmn. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á l. um lífeyrissjóð sjómanna, sem er á þskj. 189. Eins og fram kemur í grg. frv. er efni þess fólgið í því að veita heimild til þess að mega lána úr lífeyrissjóðnum til félagsmanna án þess að um 1. veðrétt sé að ræða. N. mælir með því, að þetta frv. verði samþykkt, en leggur fram á þskj. 582 brtt. við 4. tölul. 1. gr., en eins og frv. kom frá Nd. er komist þannig að orði: „Í vaxtabréfum veðdeildar Landsbankans eða Búnaðarbankans.“ Félmn. leggur til, að 4. tölul. hljóði svo: „Í skuldabréfum fjárfestingarlánasjóða, sem starfa samkv. lögum, þ. á m. veðdeild banka.“
Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru Axel Jónsson og Helgi F. Seljan.