19.04.1978
Efri deild: 80. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3622 í B-deild Alþingistíðinda. (2755)
206. mál, Lífeyrissjóður barnakennara
Frsm. (Jón Helgason) :
Herra forseti. Efni frv. til l. um breyt. á lögum um lífeyrissjóð barnakennara er hið sama og hinna tveggja fyrri. Félmn. hefur fjallað um þetta mál eins og hin og leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt. Sömu nm, voru fjarverandi við afgreiðslu þess.