19.04.1978
Efri deild: 80. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3629 í B-deild Alþingistíðinda. (2773)
284. mál, lögsagnarumdæmi Reykjavíkur og Seltjarnarneskaupstaðar
Flm. (Albert Guðmundsson) :
Herra forseti. Hv. 10. landsk. þm. og ég leyfum okkur að flytja frv. til laga um breytingu á mörkum lögsagnarumdæma Reykjavíkur og Seltjarnarness.
Frv. til l. um breyt. á mörkum lögsagnarumdæma Reykjavíkur og Seltjarnarneskaupstaðar er flutt að beiðni borgarstjórnar Reykjavíkur og bæjarstjórnar Seltjarnarneskaupstaðar og til fullnustu ákvæði í 8. gr. samnings þessara aðila frá 20. febr. 1976 sem lagður er fram sem fskj. með frv.
Aðalatriði samningsins eru að Reykjavíkurborg afsalar til Seltjarnarneskaupstaðar 40 þús. fermetrum lands við vesturmörk borgarinnar og jafnframt fær Seltjarnarneskaupstaður lögsögu yfir því landi. Um þetta eru nánari ákvæði í 1. og 2. gr. samningsins á fskj. I, en auk þess hafa aðilar síðar komið sér saman um nánari mörk hins tiltekna landssvæðis, svo sem gert er ráð fyrir í 1. gr. samningsins, þannig að til viðbótar áður greindum 40 þús. fermetrum lands falla um 4550 fermetra úr landi borgarinnar við Nesveg undir lögsögumörk Seltjarnarneskaupstaðar, en jafnmargir fermetrar bætast hins vegar við lögsögu borgarinnar í landræmu á Eiðsgranda. Auk þeirra húsa, sem talin eru upp í 3. gr. samningsins og falla samkv. honum undir lögsögu Seltjarnarneskaupstaðar, fellur íbúðarhúsið Sindri því undir lögsögu kaupstaðarins.
Með 3. gr. samningsins tekur Seltjarnarneskaupstaður að sér allar kvaðir um uppgjör við eigendur húseigna sem flytjast úr lögsögu borgarinnar ef fjarlægja þarf mannvirki af skipulagsástæðum.
Samkv. 4. gr. samningsins tekur kaupstaðurinn við öllum skuldbindingum sveitarfélags, þ. á m. framfærsluskyldum, við þá íbúa Reykjavíkur sem flytjast milli lögsagnarumdæma. Um þetta atriði fjallar 3. gr. frv.
Eyjarnar Viðey, Engey og Akurey, sem verið hafa innan lögsögumarka Seltjarnarness, verða samkv. ákvæðum samningsins og 2. gr. frv. hér eftir í lögsögu Reykjavíkur.
Herra forseti. Aðdragandi samningsins frá 20. febr. 1976, sem með frv. þessu er leitað staðfestingar Alþ. á því er tekur til breytinga á lögsögumörkum, var alllangur. Samningaviðræður stóðu yfir í tæp 5 ár, en að vísu með hléum. Að vel athuguðu máli hafa samningsaðilar báðir orðið ásáttir um breytingar þær á lögsögumörkum sem frv. fjallar um og til viðmiðunar voru hafðar forsendur að skipulagsvinnu beggja vegna lögsögumarkanna á Eiðsgrandasvæðinu svo og landfræðileg lega eyjanna þriggja. Ég sé því ekki ástæðu til að orðlengja um ákvæði frv., en legg áherslu á, að það verði afgreitt frá hinu virðulega Alþ. fyrir þinglok. Ég leyfi mér að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og félmn.
Ég vil að lokum taka það fram, að ég hef sent til félmn. kort sem skýrir betur þá hnitpunkta sem getið er um í 1. gr. frv.