19.04.1978
Efri deild: 81. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3632 í B-deild Alþingistíðinda. (2803)
151. mál, samkeppni í verðmyndun og samruni fyrirtækja
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Ég finn mig tilneyddan til þess að lýsa yfir miklum vonbrigðum mínum með það nál. sem liggur frammi á þskj. 524 frá meiri hl. fjh.- og viðskn., en eins og kom fram hjá frsm. n. afgreiðist þetta frv., sem ég hef leyft mér að flytja á þskj. 312, til laga um samkeppni, verðmyndun og samruna fyrirtækja, með rökstuddri dagskrá á þeim forsendum, eins og þar kemur fram, að fyrir Alþ. liggi frv. frá ríkisstj. um sama efni á þskj. 462. Það frv., sem nú er til umr. í Nd., til laga um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti ráðgerir breytingu á gildandi verðmyndunarreglum og innleiðir einnig ný vikvæði um samkeppni milli fyrirtækja. Jafnframt er breytt lögum um óréttmæta verslunarhætti frá 1933 og sett inn nokkur ákvæði sem varða viðskipti neytenda við fyrirtæki. Frv. þetta fjallar því að mörgu leyti um svipað efni og þetta frv. sem ég flyt að tilhlutan Verslunarráðs Íslands um samkeppni, verðmyndun og samruna fyrirtækja. Sé hins vegar grannt skoðað kemur í ljós að munurinn á þessum tveimur frv. er mikill. Ég vil í fáum orðum gera grein fyrir því, í hverju munurinn er aðallega fólginn.
Í því frv., sem ég flyt, er aðalreglan sú, að verðmyndun skuli vera frjáls ákvörðun einstakra fyrirtækja. Þó er gerð sú undantekning, að markaðsráðandi fyrirtæki þurfa að bera verðákvarðanir sínar undir viðkomandi yfirvöld sem geta hafnað verðbreytingunni. Ef verðbreytingu er hafnað þarf markaðsráðandi fyrirtæki að verðleggja vöru sína að nýju og bera þá ákvörðun undir réttmæt yfirvöld. Í því frv., sem er til umr. í Nd. nú, er þessu öðruvísi farið. Aðalreglan er að vísu sú, eins og segir í 8. gr., að verðlagning skuli vera frjáls þegar samkeppni er nægileg til að tryggja æskilega verðmyndun og sanngjarnt verð. Sá galli er hins vegar á þessu stefnuatriði, að nægilegar skilgreiningar vantar á því, hvað sé nægileg samkeppni, og einnig hvað sé takmörkuð samkeppni og hvað teljist vera markaðsráðandi fyrirtæki. Á þessu stefnuatriði er einnig annar galli, sem er sá, að því tengist ákvæði til bráðabirgða þar sem verðlagsráði er fengið það vald að taka afstöðu til gildandi verðlagsákvæða án stefnumörkunar frá Alþ. Í þessu efni eru verðlagsráði ekki sett nein tímamörk innan hve langs tíma ráðið þarf að taka afstöðu til gildandi ákvæða. Verði þetta samþ. þannig óbreytt er mönnum, sem enginn veit hverjir verða, gefið vald til þess að taka ákvarðanir sem ættu að vera stefnumörkunaratriði Alþingis. Það, sem ég óttast, er að framkvæmd þessa ákvæðis gæti orðið með svipuðum hætti og var á haftaárunum þegar stefnuatriðið var að innflutningur til landsins skyldi vera frjáls nema öðruvísi væri ákveðið, en eins og við munum var öðruvísi ákveðið á þeim árum og gildir enn.
Ef við víkjum þá að samkeppnislöggjöfinni má margt svipað segja. Í því frv., sem ég flyt, er ákvæði sem gerir viðtækt eftirlit með markaðsráðandi fyrirtækjum og samkeppnisháttum þeirra mögulegt. Sömuleiðis eru þar ákvæði til að koma í veg fyrir fjölmargar aðferðir til þvingunar og beitingu samkeppnishamlandi viðskiptahátta. Skilgreiningar á nauðsynlegum atriðum eru í frv. sjálfu sem ættu að auðvelda framkvæmd laganna og gera þau skýrari til eftirbreytni fyrirtækjum og stjórnvöldum. Ákvæði um samkeppni fyrirtækja eru hins vegar mun fátækari að innihaldi og allóljós og illa skilgreind í frv. um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti sem nú er verið að ræða í Nd. Í það frv. vantar t. d. algjörlega mikilvægasta atriðið sem er í allri samkeppnislöggjöf, þ. e. að markaðsráðandi fyrirtæki geti selt vörur langt undir kostnaðarverði til þess að knésetja keppinauta, hvað teljast markaðsráðandi fyrirtæki er ekki skilgreint og þannig mætti lengi telja.
Um þau stjórnvöld, sem annast eiga framkvæmd laganna, vildi ég fátt segja. Þó vildi ég taka fram að valdsvið, embættistakmörk og skyldur í því frv., sem ég flyt, eru mun skýrar afmörkuð en í því frv. sem nú er til umr. í Nd. Alþ. Í þessu frv., sem ég flyt, eru einungis þau atriði um óréttmæta viðskiptahætti sem tengjast samkeppnishamlandi viðskiptaháttum, enda til um þau sérstök löggjöf. Samtökum fyrirtækja er hins vegar heimilað að koma á fót samkeppnisreglum til þess að skilgreina betur góða viðskiptahætti í landinu.
Um sérstaka neytendavernd er ekki ákvæði, enda tel ég það annað og óskylt mál sem ætti að koma fyrir í sérstakri löggjöf. Á slíkri löggjöf er fyllilega þörf og þykir mér miður að slík löggjöf skuli ekki undirbúin í heild sinni, heldur tind til örfá atriði, sem ekki skipta verulegu máli, og sett inn í það frv. sem nú liggur fyrir og er verið að ræða í Nd.
Að lokum vil ég hvetja þm. til þess að samþ. þetta frv. og stuðla að því, að það hljóti endanlega afgreiðslu fyrir þingslit í vor. Á slíkri löggjöf hefur lengi verið þörf, og við vitum allir að nú er það knýjandi þörf. Ef við höfnum því frv. sem ég flyt, en veljum í stað þess það frv. óbreytt sem nú liggur fyrir Nd., er Alþ. að mínu mati að samþ. rammalöggjöf sem enginn veit hvernig framkvæmd verður eða hvort í nokkru bætir það ófremdarástand sem nú er á þessu sviði og verður að ráða bót á.
Ég veit ekki hvort menn hafa gefið sér tíma til þess að ganga úr skugga um hvort frv. gengur lengra í frelsisátt, en við erum allir sammála um að í þá átt þurfum við að stefna í þessum málum.
Ég get ekki annað en lagt til að rökstudda dagskráin, sem liggur fyrir á þskj. 524, verði ekki samþ., og ítreka, að hv. þdm. veiti þessu frv. mínu brautargengi. Þetta er ósk mín til þm. En mér er líka ljóst að afskaplega lítið er eflaust á mig hlustað í þessu máli, þannig að ég geri ekki ráð fyrir að mér verði að óskum mínum. Það breytir ekki þeirri staðreynd, að þetta frv., sem ég hef hér lagt fram, gengur lengra í frelsisátt um verðlagningu og verðmyndun og í átt til eðlilegri viðskiptahátta en það frv. sem ríkisstj. hefur lagt fram. Staðreyndin er því miður sú, að aukið frelsi á sér líklega ekki nógu marga talsmenn á hv. Alþingi Íslendinga.