19.04.1978
Efri deild: 81. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3634 í B-deild Alþingistíðinda. (2804)

151. mál, samkeppni í verðmyndun og samruni fyrirtækja

Jón G. Sólnes:

Herra forseti. Þegar þetta frv., sem hér liggur fyrir til meðferðar, var til 1. umr. í þessari hv. d., þá atvikaðist það þannig að ég kom örfáum augnablikum of seint inn í fundarsalinn til þess að geta kvatt mér hljóðs. Umr. hafði verið slitið. Ég eyddi allmiklum tíma í að kynna mér innihald þessa frv., og um leið og ég viðurkenni, að stefna þessa frv. felur í meginatriðum í sér ýmsar nauðsynlegar lagfæringar á því að mínu áliti slæma ástandi sem þjóðin hefur búið við undanfarna áratugi í sambandi við verðlagsmálin, þá er hitt og þetta sem ég hef við þetta frv. að athuga og innihald þess. En sú staðreynd liggur fyrir, að samkomulag hefur náðst milli núverandi stjórnarflokka um að flytja frv. sem gerir ráð fyrir verulegum breytingum á núverandi verðlagslöggjöf. Frv. fullnægir að vísu ekki út í æsar óskum mínum um þær breytingar sem mér væri helst að skapi að gera, en ég viðurkenni þó að það er til mikilla bóta. Með tilliti til þeirrar staðreyndar, að um þetta mál hefur náðst samkomulag og líkur eru á að það frv. verði að lögum, tel ég ekki ástæðu til þess nú, herra forseti, við þessa umr. að fara að eyða tíma d. í að láta þm. hlusta á þær aths. sem ég kynni að hafa fram að bera við ákvæði þess frv. sem hér liggur fyrir til umr. Það mundi vera alllangt mál og taka nokkurn tíma. Ég hef því kosið að vera aðili að því nál. sem hér liggur fyrir frá meiri hl. fjh.- og viðskn. og leggur til að frv. verði afgr. með rökstuddri dagskrá, og mun styðja þá tillögu.