19.04.1978
Efri deild: 81. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3640 í B-deild Alþingistíðinda. (2810)
151. mál, samkeppni í verðmyndun og samruni fyrirtækja
Jón G. Sólnes:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja umr. um það mál sem hér er á dagskrá. Mér finnst þó skylt að drepa á ummæli hv. 5. þm. Norðurl. e., þar sem hann var að minna mig á hvað ég hefði einu sinni skrifað undir þegar ég tók sæti á þessu háa Alþ., að gæta þess að misstiga mig ekki á því. Þakka ég honum vinsamlega ábendingu í því efni.
Ég tók fram í máli mínu áðan, að ég hefði á sínum tíma kynnt mér þetta frv., sem hér er til umr., og ég hélt að ég hefði tekið mjög skýrt fram að það væri ýmislegt í því, sem ég hefði talið að ég þyrfti að fá breytt áður en ég gæti sætt mig við það, og æðimargt, sem ég þyrfti að gera athugasemdir við. En það verður svo hver sem vill að lá mér það, að þegar mál hafa skipast þannig, að til umr. er í þinginu mál sem fjallar eiginlega um lausn sama vandans og er um að ræða í frv., sem hér er til umr., og um leið er þannig staðið að að öll líkindi eru til þess að það mál fái afgreiðslu, en hins vegar engin líkindi til að þetta frv., sem við erum að fjalla um nú í dag, geti fengið afgreiðslu, þá finnst mér sá kosturinn skárri að láta þetta frv., sem hér er til umr., eiga sig í bili, ekki síst þar sem ég veit að umr. og athugasemdir mínar hefðu engu breytt um gang málsins, og taka þá heldur þann kostinn, hvað sem hv. 5. þm. Norðurl. e. segir um það, að bæta gráu ofan á svart og láta þetta frv., sem hér er til umr., víkja og styðja frv. sem samkomulag er um milli flokka, sem mynda núv. ríkisstj., — ríkisstj. sem ég styð og frv. sem, eins og ég gaf yfirlýsingu um áðan, að vissu leyti a. m. k. inniheldur verulegar úrbætur frá því ófremdarfyrirkomulagi sem er á verðlagsmálunum hjá okkur og hefur verið síðustu áratugi. Herra forseti. Ég lofaði því að lengja ekki þessar umr., en ég vil þó, áður en ég vík úr ræðustól, segja það, að ekki ætla ég að vera málsvari verðbólgunnar hér á hinu háa Alþ. og ekki vil ég gera lítið úr hlut verðbólgunnar í því ófremdarástandi sem ríkir í sambandi við verðmyndun og verðlag. Sjálfsagt á verðbólgan þátt í því að rugla verðskyn almennings. En skoðun mín er sú, að þar hafi átt meiri þátt í að skapa þann rugling, sem orðinn er á verðskyni almennings, það kolbrjálaða, úrelta og vitlausa fyrirkomulag sem hefur gilt um verðlagsákvæði hér í þessu landi — verðlagsákvæði sem byggjast að stofni til á því, að því óhagstæðari innkaup sem seljandi vörunnar gerir, því meiri hagnað fær hann. Er nema von að í þjóðfélagi, þar sem verðlagsákvæði — ströng verðlagsákvæði — eru búin að vera í gildi um ára tuga skeið, sé almenningur kominn að þeirri niðurstöðu, að það sé alveg útilokað annað en að verðlag í verslunum og annars staðar hljóti að vera innan þess ramma sem opinberir aðilar ákveða? Það er þetta sem ég held að hafi átt veigamesta þáttinn í því að deyfa skyn almennings fyrir því að vera vakandi fyrir almennu verðlagi yfirleitt.
Ég ætla að ljúka máli mínu í þetta sinn með því að endurtaka það, sem ég einu sinni sagði við ágætan vin minn, sem er framarlega sem foringi í verkalýðsstéttinni, að kannske yrðu það umtalsverðustu kjarabæturnar, sem hægt væri að veita almennu launafólki í þessu landi, að afnema með öllu lög sem setja hömlur á verðlag og verðmyndun.