01.11.1977
Sameinað þing: 11. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í B-deild Alþingistíðinda. (285)
325. mál, aðstoð Þjóðleikhússins við áhugaleikfélögin
Fyrirspyrjandi (Helgi F. Seljan):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. menntmrh. svör hans. Það kemur auðvitað glöggt fram í þeim, að varðandi það atriði sem ég spurði sérstaklega um hefur Þjóðleikhúsið ekki staðið neitt sérstaklega rausnarlega að. Það er ekki í sambandi við leikstjóra og gistileikara því að það er tíundað, að á tveim leikárum hafi samtals 7 fastráðnir starfsmenn starfað með áhugaleikfélögum úti á landsbyggðinni. Leikfélag Akureyrar kemur þessu auðvitað ekki við, en þar er um atvinnuleikhús að ræða. Og það er rétt, þeir tóku full laun hjá Þjóðleikhúsinu þennan tíma, en mér er líka kunnugt um að leikfélögin borguðu full leikstjórnarlaun, ég held öll, svo að það var ekki um fjárhagslega aðstoð frá Þjóðleikhúsinu að ræða þó að áhugaleikfélögin nytu út af fyrir sig góðra starfskrafta þessara manna, því að þeir fengu tvöfalda greiðslu þennan tíma, velflestir eða líklega allir. Ég veit ekki vel um fyrra leikárið sem þarna var tekið. Hins vegar er mér sagt að hvíslari í Þjóðleikhúsinu hafi fengið launalaust leyfi til að fara út á land og vinna með áhugaleikfélagi að uppsetningu leikrits, hann hafi fengið launalaust leyfi hjá Þjóðleikhúsinu, en honum voru auðvitað greidd full leikstjórnarlaun af því félagi sem réð hann.
Ég skal hins vegar taka undir það, að Þjóðleikhúsið veitir ýmiss konar aðstoð við áhugaleikfélögin. Ég veit ekki um þennan búningaútreikning og dreg hann satt að segja stórlega í efa, þetta ársstarf í hálfu starfi. En hins vegar viðurkenni ég eitt sérstaklega í þessu, og það er mikilvæg aðstoð Þjóðleikhússins varðandi námskeiðahaldið. Þar hefur Þjóðleikhúsið komið myndarlega til móts við áhugaleikfélögin og þar hefur komið til góður vilji þjóðleikhússtjóra í þessu máli sem og reyndar öðrum málefnum áhugaleikfélaganna. Það er ekki við hann að sakast vegna þess, hvað fáir menn eru þarna sem koma til liðs við áhugafélögin. Ég held sem sagt að ástæðan sé sú að þeir kjósi miklu fremur að vera hér kyrrir á sínum stað, þrátt fyrir að margir þeirra hafi við lítil verkefni að vera að manni sýnist.
Ég vil aðeins koma að því, að áhugaleikfélögin eru, eins og hér hefur verið tekið fram áður miklu betur, ákaflega fjárvana og þau greiða í formi söluskatts mörg hver margfalt á við þann ríkisstyrk sem þau fá. Það var áður svo, að leikfélögin fengu almennt ríkisstyrk sem nægði þeim til leikstjóralauna. Nú er þessi ríkisstyrkur aðeins rúmlega 1/3 af því, þ.e.a.s. hæsti styrkurinn er rúmlega 1/3 af leikstjóralaunum. Ég er ekki að sjá ofsjónum yfir fjárframlögum til Þjóðleikhússins. En hlutfallið 1/50 hluti til yfir 50 verkefna áhugaleikfélaganna, margra mjög athyglisverðra, 1/50 af ríkisstyrk Þjóðleikhússins er nokkuð sem ég get varla talið eðlilegt. Þess vegna finnst mér að Þjóðleikhúsinu með sínu ríflega fjárframlagi af hálfu ríkisins beri viss skylda til þess að styðja við áhugaleikfélögin í landinu, en það tel ég að það hafi ekki gert í því formi sem ég spurði sérstaklega um, þ.e.a.s. í formi gestaleikara og leikstjóra.
Ég treysti hæstv. ráðh. til að ýta hér á eftir með Þjóðleikhúsið og svo auðvitað á hv. alþm. að stórhækka fjárveitingu til áhugaleikfélaganna, svo að þau koðni ekki niður eins og allt útlit er fyrir með áframhaldandi svipuðum fjárveitingum af hálfu Alþingis.