02.11.1977
Efri deild: 11. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í B-deild Alþingistíðinda. (288)
63. mál, innkaupastofnun ríkisins
Flm. (Albert Guðmundsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 69 frv. til l. um breyt. á l. nr. 72 frá 5. júní 1917, um innkaupa stofnun ríkisins.
„1. gr.: 2. gr. laganna hljóði svo:
Stjórn innkaupastofnunar ríkisins skipa 5 menn, sem Alþ. kýs hlutbundinni kosningu til fjögurra ára í senn ásamt jafnmörgum til vara. Stjórnin hefur yfirumsjón með starfsemi stofnunarinnar, tekur lokaákvarðanir um öll innkaup og framkvæmdir og ákveður starfshætti. Fjmrh. skipar formann stjórnar til eins kjörtímabils í senn.
Forstöðumaður stofnunarinnar skal skipaður af fjmrh. að fenginni till. stjórnar.
Að öðru leyti skal starfssvið stofnunarinnar ákveðið með reglugerð, er fjmrh. setur.
2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.“
Ég vil leyfa mér að lesa þá grg., sem hér er prentuð með, en hún er svo hljóðandi:
„Frv. þetta er efnislega shlj. frv. sem flm. lagði fram á síðasta þingi, en varð þá ekki afgreitt. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að starfsemi innkaupastofnunar ríkisins hefur sætt nokkurri opinberri gagnrýni á liðnum árum. Skoðanir hafa verið skiptar um sum þeirra atriða sem gagnrýnd hafa verið, en um önnur hefur ekki þurft að deila. Í sjötta kafla laga um skipan opinberra framkvæmda, nr. 63 frá 1970, eru umsvif innkaupastofnunarinnar aukin verulega frá því sem eldri lög kváðu á um. Þar er henni fengið vald til að taka ákvarðanir um veigamiklar framkvæmdir sem snerta verulega hagsmuni almennings og afkomu þjóðarbúsins í heild. Veltur því á miklu að starfsemi stofnunarinnar og ákvarðanir, er hún tekur, séu í fullu samræmi við vilja þings og þjóðar. Láta mun nærri að velta stofnunarinnar á síðasta ári hafi numið 2.7 milljörðum kr. og eru þá ekki taldir með verksamningar, sem stofnunin hefur annast og ber ábyrgð á, en þar er um mjög verulegar fjárhæðir að ræða.
Með frv. þessu er því lagt til að Alþ. kjósi sjálft stjórn stofnunarinnar og tryggi með því að stefnu þess sé fylgt í öllum meiri háttar málum, er stofnunin á ákvörðunarvald í, og þess sé jafnan gætt að starfseminni sé gert að fylgja viðteknum viðskiptavenjum.“
Ég vil bæta við þetta, að Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar starfar eftir ákveðnum samþykktum um þá stofnun og hefur sérstaka stjórn, þó svo að Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar sé í meiri tengslum við sjálft stjórnkerfið, þar sem allar fundargerðir Innkaupastofnunar Reykjavikurborgar eru sendar að fundum loknum til borgarstjóra, sem síðan leggur þær fyrir borgarráð, og að athuguðum fundargerðum innkaupastofnunarinnar, fyrst af borgarstjóra, síðan af borgarráði, eru þær lagðar fyrir borgarstjórn til umr, og samþykktar, þannig að það hefur verið talsvert miklu meiri hreinsunareldur sem ákvarðanir Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar verða að ganga í gegnum.
Í þessum samþykktum um Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, sem ég er með hér hjá mér, er fyrst talað um markmið stofnunarinnar og síðan er farið út í verkefni hennar, í þriðja lagi stjórnskipulag, í fjórða lagi verksvið stjórnar og í fimmta lagi verksvið forstjóra stofnunarinnar, í sjötta lagi er talað um starfshætti og í sjöunda lagi eru almenn ákvæði.
Ég held að það þurfi ekki að orðlengja um þetta mál. Ég held að öllum sé ljóst að ekkert slíkt kerfi er til í ríkisgeiranum. Ég veit ekki til að þar sé nein hliðstæð stofnun borgarráði, reikna ekki með að fundargerðir Innkaupastofnunar ríkisins séu lagðar fyrir ríkisstj., sem er hliðstæð borgarráði í borgaruppbyggingunni, né heldur fyrir Alþ., sem er hliðstæða borgarstjórnar í ríkiskerfinu.
Ég legg til að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar.