22.04.1978
Efri deild: 82. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3772 í B-deild Alþingistíðinda. (2898)

281. mál, tannsmiðir

Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Þetta frv. til l. um tannsmiði var samið af stjórnskipaðri nefnd og er lagt fram til kynningar nú, þegar væntanlega er stutt til þingloka. Ég vil benda á að það getur verið álitamál um fyrirsögn þessa frv., að réttara væri að kalla þetta mál frv. um kennslu tannsmiða. Hvort tveggja er, að þetta frv. er einvörðungu lagt hér fram til kynningar og að með frv. fylgja nokkuð ítarlegar aths., þá sé ég ekki ástæðu til að hafa um það langa framsögu, en læt nægja að vísa til aths. og svo frv. sjálfs sem að mínum dómi er einfalt að gerð.

Ég legg svo til, herra forseti, að þessu frv. verði að lokinni umr. vísað til hv. menntmn.