22.04.1978
Efri deild: 82. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3777 í B-deild Alþingistíðinda. (2906)
292. mál, ríkisreikningurinn 1976
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Frv. til laga um samþykkt á ríkisreikningi fyrir árið 1976 liggur hér fyrir á þskj. 622. Þá hefur verið lagt fram í Sþ. frv. til fjáraukalaga vegna sama árs, en fyrir því var mælt í gær.
Eins og fram kemur í aths. með frv. er það samið eftir ríkisreikningi fyrir árið 1976. Reikningurinn, A-hluti hans, var afhentur yfirskoðunarmönnum til meðferðar og lagður óendurskoðaður fyrir Alþ. í maímánuði 1977, en B-hlutinn í nóv. Nú er hann lagður fyrir Alþ. endurskoðaður með aths. og till. yfirskoðunarmanna og svörum ráðh.
Við 1. umr. fjárlagafrv. fyrir þetta ár gerði ég nokkra grein fyrir afkomu ríkissjóðs á árinu 1976 og ríkisreikningi. Í maímánuði 1977 lagði ég einnig fram skýrslu um afkomu ríkissjóðs á árinu 1976 og hinn 11. jan. það ár gaf fjmrn. út fréttatilkynningu um afkomu ríkissjóðs samkv. bráðabirgðatölum ríkisbókhalds. Skýrsla mín til Alþ. var síðan nánari grg. um afkomuna. Enda þótt niðurstöðutölur reikningsins séu aðrar en bráðabirgðatölur skýrslunnar, m. a. vegna þess að hún var fyrst og fremst byggð á niðurstöðum greiðsluhreyfinga, en reikningurinn er gerður upp af rekstrargrunni, eru efnislegar breytingar óverulegar og mun ég því ekki gera nema örstutta grein fyrir ríkisreikningi nú, enda hafa þm. haft hann til athugunar, eins og ég sagði, frá vori 1977.
Yfirskoðunarmenn gerðu fsp. í 14 liðum og birtu auk þeirra yfirlit um viðskipti innheimtuembætta við ríkissjóð samkv. bókhaldi ríkisbókhaldsins fyrir árið 1976 með hliðstæðum hætti og áður hefur verið gert. Svör við fyrirspurnum sínum telja yfirskoðunarmenn ýmist fullnægjandi eða rétt að viðkomandi atriði verði til athugunar. Till. sínum skiluðu yfirskoðunarmenn í þessum mánuði, og leyfi ég mér að vísa í ríkisreikninginn varðandi þær svo og sjálfar fyrirspurnir þeirra og svör við þeim. Tel ég ekki ástæðu til að gera nánari grein fyrir þeim að svo stöddu.
Með frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1976 gerði ég stutta grein fyrir helstu frávikum reiknings og fjárlaga þess árs, en hér mun ég rekja stærstu liði í gjöldum og tekjum A-hluta ríkisreikningsins.
Ég vil eins og áður vekja athygli á tveimur meginreglum við uppgjör A-hluta ríkisreikningsins samkv. núgildandi lögum, nr. 52 frá 1966, um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga. Önnur er sú, að álagðar tekjur og áfallin gjöld eru lögð til grundvallar við uppgjör rekstrarreiknings, en ekki greiðslufjárhreyfing þessara liða, þ. e. innheimta tekna og útgreiðsla gjalda. Af því leiðir, að í efnahagsyfirliti eru óinnheimtar tekjur meðal eignaliða og ógreiddar gjaldskuldbindingar meðal skuldaliða. Hin meginreglan er sú, að fjárfestingarútgjöld A-hlutans eru talin með gjöldum þess árs þegar til þeirra er stofnað, en þeim ekki dreift með afskriftum á þann árafjölda, sem gert er ráð fyrir að fjárfestingin endist, eins og gildir um uppgjör fyrirtækja og sjóða ríkisins í B-hluta reikningsins.
Heildarniðurstaða rekstrarreiknings A-hluta ríkisreikningsins fyrir árið 1976 var sú, að gjöld námu 70 milljörðum 507 millj. 766 þús. kr. Tekjur námu 71 milljarði 323 millj. 851 þús. kr. Afgangur á rekstrarreikningi var því 816 millj. 85 þús. kr. Greiðsluafkoma ríkissjóðs á árinu 1976 samkv. breytingum sjóðseignar, innistæðu og skulda á ávísunar- og hlaupareikningi við Seðlabanka Íslands og innlánsstofnanir ásamt breytingum reiknings við Seðlabankann var hins vegar óhagstæð á árinu 1976 um 518 millj. Lausafjárstaða við aðra en Seðlabankann og innlánsstofnanir batnaði hins vegar um 2 milljarða 739 millj. kr.
Gjöld ríkisreiknings fyrir árið 1976 skiptast í stórum dráttum þannig: Gjöld menntmrn. námu 11 milljörðum 392 millj. 165 þús. kr., þar af vegna héraðsskóla og grunnskóla 5 milljarðar 318 millj. 692 þús. kr. — Gjöld landbrn. námu 3 milljörðum 725 millj. 84 þús. kr., þar af var eytt 1545 millj. 979 þús. vegna uppbóta á útfluttar landbúnaðarafurðir. — Gjöld sjútvrn. námu 2 milljörðum 57 millj. 318 þús., þar af 594 millj. 585 þús. vegna Hafrannsóknastofnunar. Gjöld dóms- og kirkjumrn. námu 4 milljörðum 535 millj. 108 þús. kr. þar af vegna landhelgisgæslu 1 milljarður 358 millj. 419 þús. og dómgæslu og lögreglumála 2 milljarðar 802 millj. 134 þús. kr. Af þeirri fjárhæð eru tæpar 1500 millj. vegna beins löggæslukostnaðar. — Gjöld félmrn. námu 3 milljörðum 227 millj. 321 þús., þar af 2 milljarðar 568 millj. 10 þús. kr. til Byggingarsjóðs ríkisins eða Húsnæðismálastofnunar. Gjöld heilbr.- og trmrn. námu 22 milljörðum 632 millj. 976 þús., þar af 19 milljarðar 905 millj. 183 þús. til Tryggingastofnunar ríkisins. — Gjöld fjmrn. námu 2 milljörðum 901 millj. 382 þús. Gjöld vegna tolla og skattheimtu námu 773 millj. 636 þús. og til uppbóta á lífeyri og eftirlaun 728 millj. 790 þús. kr. Framlag til ríkisábyrgðasjóðs, m. a. til lánagreiðslna vegna togara, nam 612 millj. 496 þús. kr. — Gjöld samgrn. námu 7 milljörðum 945 millj. 139 þús., þar af vegna vegagerðar 4 milljarðar 852 millj. 613 þús., til samgangna á sjó 2 milljarðar 155 millj. 422 þús. og til flugmála 648 millj. 523 þús. kr. — Gjöld iðnrn. námu 1 milljarði 638 millj. 46 þús., þar af til orkumála 1 milljarður 186 millj. 730 þús. Kröfluvirkjun er þar ekki meðtalin frekar en aðrar virkjanir sem gerð er grein fyrir í B-hluta ríkisreiknings. — Gjöld viðskrn. námu 5 milljörðum 241 millj. 558 þús. kr., þar af vegna niðurgreiðslna á vöruverði 5 milljarðar 156 millj. 773 þús. kr. Gjöld vegna greiðslna á vöxtum og verðbótum lána, sem ríkissjóður hefur tekið, ásamt vöxtum af viðskiptaskuld við Seðlabankann, námu alls 2 milljörðum 371 millj. 604 þús.
Stærstu einstakir gjaldaliðir A-hluta ríkisreiknings voru eins og áður vegna Tryggingastofnunar, niðurgreiðslna og uppbóta á útfluttar landbúnaðarafurðir og vegagerðar, nema samtals 31 milljarði 460 millj. 548 þús. kr., sem var um 45% gjalda A-hlutans í heild á árinu 1976. Á árinu 1975 var þessi hlutfallstala 46% og á árinu 1974 48%.
Tekjurnar í heild námu, eins og áður sagði, 71 milljarði 323 millj. 851 þús. kr. samkv. tekjufærslu, þ. e. a. s. álagningu tekna. Innheimtan á árinu nam hins vegar, eins og gerð er grein fyrir z bls. 61–63 í ríkisreikningi, 68 milljörðum 312 millj. 115 þús. kr. Stærstu teknaliðir A-hluta ríkisreiknings voru eins og áður söluskattur, almenn aðflutningsgjöld, tekju- og eignarskattur og hagnaður af Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Söluskatturinn nam í tekjufærslu 24 milljörðum 851 millj. 219 þús. og í innheimtu 23 milljörðum 593 millj. 602 þús. Almenn aðflutningsgjöld námu 11 milljörðum 907 millj. 341 þús. í tekjufærslu og svo til sömu fjárhæð í innheimtu. Tekju- og eignarskattur, þar með erfðafjárskattur, nam í álagningu 9 milljörðum 186 millj. 370 þús. og í innheimtu 8 milljörðum 193 millj. 442 þús. Barnabætur og persónuafsláttur að fjárhæð 3 milljarðar 933 millj. 689 þús. hefur þá verið dregið frá. Hagnaður Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins nam 6 milljörðum 144 millj. 616 þús. Þessir fjórir liðir námu í tekjufærslu alls 52 milljörðum 89 millj. 546 þús. kr. eða 73% af heildartekjum A-hluta ríkisreiknings árið 1976. Þessi hlutfallstala var um 76% árið 1975 og 80% árið 1974. Fimmti stærsti tekjuliðurinn var launaskattur, er nam 4 milljörðum 39 millj. 133 þús. kr. í álagningu. Innheimta nam 3 milljörðum 720 milli. 862 þús. Að launaskatti meðtöldum námu þessir fimm tekjuliðir um 79% heildartekna A-hlutans árið 1976, um 82% árið 1975 og um 84% árið 1974. Ég mun ekki gera nánari grein fyrir niðurstöðum ríkisreiknings fyrir árið 1976. Um frávik reiknings og fjárlaga fjallaði ég, eins og áður sagði. í framsögn fyrir frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1976.
Ég legg svo til, herra forseti. að frv. þessu verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. Jafnframt vænti ég þess, að unnt verði að afgreiða frv. sem lög á þessu þingi ásamt frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1976 og þar með verði stefnt að því að afgreiða þessi frv. ávallt eigi síðar en á öðru vori eftir lok reikningsárs.