22.04.1978
Efri deild: 82. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3783 í B-deild Alþingistíðinda. (2918)
103. mál, gjaldþrotalög
Frsm. (Halldór Ásgrímsson) :
Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um frv. til gjaldþrotalaga. Mál þetta hefur verið til meðferðar á Alþ. í allan vetur og nefndarstarf var einkum unnið sameiginlega með allshn. Nd. Í Nd. voru samþ. allmargar brtt. og má segja að báðar n. hafi staðið að þeim breytingum þar sem málið var unnið sameiginlega.
Lög um gjaldþrotaskipti voru fyrst sett hér á landi fyrir aldamót og að vísu hafa nokkrar breytingar verið gerðar á þeim lögum, en að stofni til eru lögin frá 1894 — þau lög sem nú eru í gildi. Þessi lög voru samin við allt aðrar þjóðfélagsaðstæður en nú eru og eru þess vegna orðin löngu úrelt. Meðferð gjaldþrotamála hefur verið mjög þunglamaleg og seinvirk og kostnaður oft mikill. Er langt síðan orðið var nauðsynlegt að setja ný lög um gjaldþrotaskipti.
Það hefur farið fram mikið starf og endurskoðun á norrænni gjaldþrotalöggjöf. Er þeirri endurskoðun að vísu ekki að fullu lokið, en ákveðnar meginlínur hafa þó verið markaðar í því starfi. Mun þetta frv. taka að allmiklu leyti mið af því.
Í þessu frv. er leitast við að koma á nokkrum meginbreytingum sem eru þessar helstar: 1) Að meðferð búa annarra en smábúa hverfi frá skiptaráðanda til sérstaks bústjóra. 2) Að kostnaður af starfi bústjóra, skiptastjóra og aðstoðarmanns skiptaráðanda skal greiddur af fé þrotabúsins. 3) Einn kafli frv. fjallar um greiðslustöðvun, sem er nýmæli, sem á að hamla gegn því, að einstakir lánardrottnar fái óeðlilega mikið í sínu hlut. 4) Bústjóra eða þeim, sem annast búskiptin, eru gefnar mun frjálsari hendur um meðferð búsins. 5) Riftun á ráðstöfun þrotamanns og vissar fullnustuaðgerðir lánardrottna verði greiðari en nú er. 6) Mörg ákvæði eru í frv. sem miða að því að leysa úr vafaatriðum og einfalda skiptameðferð.
Ég sé ekki ástæðu til að rekja efni þessa frv.
Það var gert ítarlega við framsögu málsins og einnig hefur allshn. Nd. skilað ítarlegu nál., þar sem brtt. þeirrar n. voru mjög greinilega skýrðar. Ég vil aðeins að lokum ítreka að allshn. Ed. leggur einróma til að frv. verði samþ.