02.11.1977
Efri deild: 11. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 367 í B-deild Alþingistíðinda. (292)
36. mál, stjórnarskipunarlög
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða efnislega það langa mál sem frummælandi og I. flm. lét fylgja þessu frv. til stjórnarskipunarlaga, en aðeins gera nokkrar athugasemdir til að það fylgi sem veganesti til allshn. með þeim orðum sem ég hlustaði á og féllu hér frá 1. flm.
En vil þó biðja um skýringar á einu. Hann talaði um að bændur ættu ekki að láta líma sig utan í atvinnurekendur eða auðvaldsöflin, en halda sér að verkalýðshreyfingunni — ég held að ég hafi heyrt rétt — samvinnuhreyfingunni. (Gripið fram í.) Þá skulum við álíta það rétt eftir haft.
Þetta sýnir strax þann anda sem fylgir frumvarpsgerðinni. En mér er ekki alveg ljóst hvort auðvaldsöfl eru meira hjá atvinnurekendum eða þeim auðhringum sem hv. flm. óskaði eftir að bændur límdu sig aftan í. Ég veit ekki betur en að auðvald það, sem safnast hefur saman, hafi safnast í sjóðum verkalýðshreyfingarinnar og samvinnuhreyfingarinnar, skulum við segja, því að ekki minna en helmingur af öllum viðskiptum fer í gegnum samvinnuhreyfinguna, á eiginlega hvaða stigi þjóðlífsins sem er. Ég vil mótmæla því að hér séu annars vegar vond öfl og hins vegar góð öfl. Þarna eru, skulum við segja, auðvaldsöfl, en þau eru ekkert mismunandi góð.
Ég held að bændur ættu að lesa á milli línanna þegar þetta er sagt. Ég álít að það sé rétt að menn átti sig á því, sem sagt var í framhaldi af þessu, að hér er lögð til ákveðin skerðing á eignarrétti einstaklinga.
Það er margt í þessu frv. sem ég get fallist á, en það er líka margt sem ég get ekki fallist á í fljótu bragði og mun gera athugasemdir við á seinna stigi. Ég mun gera tilraun til þess að menn átti sig á því, að landeigendur missi engan rétt, sem þeir hafa haft til hlunninda, hvort sem þeir heita bændur eða tilheyra þéttbýliskjörnum, þó þeir hafi einhver hlunnindi haft utan við sinn búsetustað.
Ég ætla mér ekki að fara að tala hér um að þeir sem búa t.d. í höfuðborginni og hafa haft rétt og hlunnindi utan höfuðborgarinnar, missi hann frekar en að bændur og utanbæjarmenn missi þau hlunnindi sem þeir kunna að hafa í Reykjavík. Það vitum við að er gagnkvæmt á báða bóga.
Ég vil sem sagt að það veganesti fylgi frá mér inn í allshn., að menn haldi vöku sinni gegn lævíslegum till. til breytinga á stjórnarskránni í átt til sósíalisma eða kommúnisma, sem ég er andstæður.