22.04.1978
Neðri deild: 80. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3801 í B-deild Alþingistíðinda. (2960)

245. mál, verðlag, samkeppnishömlur og óréttmætir viðskiptahættir

Magnús T. Ólafsson:

Hæstv. forseti. Það hefur nógsamlega komið fram í umr. um þetta mál, að það er flestra manna mál, sem láta þær til sín taka, að hér ríki nánast ófremdarástand eða a. m. k. mjög bágborið ástand í verðlagsmálum og ástæða sé til að láta þau mál sérstaklega til sín taka. Menn hafa lýst því mjög átakanlega og þá alveg sér í lagi hv. 8. landsk. þm., sem hélt því fram, að verðlagsmál á Íslandi væru í einna verstu lagi af þeim löndum sem hann hafði spurnir af hér nærlendis, og komst að mig minnir, svo að orði, að verðlag hér á algengri neysluvöru væri tvöfalt hærra en í þeim löndum sem byggju við tvöfalt hærra kaupgjald heldur en ríkti á Íslandi. Má nú segja með sanni að ljótt er, ef satt er að ástandið sé svona slæmt.

Ég held þó að þessar lýsingar séu smávegis orðum auknar, en þótt svo sé, þá er ábyggilegt að verðlagslöggjöf í landinu þarfnast mjög endurskoðunar og breytinga til bóta, ekki endilega vegna þess að ekki sé ákvæði að finna í lögum um verðlagseftirlit sem frá hendi löggjafans höfðu þann tilgang að hafa áhrif í þá átt að verðlag héldist svo lágt sem unnt væri að ætlast til með þeim ráðum sem þar var beitt. En hafi nú þróunin gengið æðimikið á mis við tilgang löggjafans, þá held ég að eðlilegt sé að til þess sé litið, hvort ástæðuna sé ekki að einhverju leyti og kannske aðallega að finna í því, að ekki hafi verið beitt réttum ráðum. Það er skoðun mín, að þessi sé fyrst og fremst ástæðan til þess sem úr lagi hefur farið. Menn hafa gert sér í hugarlund að með álagningareftirliti svokölluðu, reglum um hámarksálagningu og ráðstöfunum í sambandi við hana, væri hægt að halda verðlagi niðri að einhverju marki. En reynsla annarra þjóða, einmitt þjóðanna sem hv. 8. landsk. þm. var að vitna til, sýnir að í þessum efnum dugar verðlagseftirlit og verðlagshömlur af þessu tagi ekki nema við alveg sérstakar aðstæður. Þær eiga við og geta dugað um takmarkaðan tíma, þegar um vöruskort er að ræða, þegar um það er að ræða að framboð á vörum nægir ekki til að fullnægja eftirspurninni. Þegar hins vegar um það er að ræða, að vöruframboðið er nóg, verður að líta til þess, að framleiðendur og seljendur vörunnar búi við þau skilyrði að þeim sé beinlínis hvati að halda verðlagi í hófi og sér í lagi að reistar séu skorður við því, að þeir taki sig til, bindist samtökum, myndi hringi og taki á sig sameiginlegar skuldbindingar um að halda verði uppi á ákveðnum sviðum, ákveðnum vöruflokkum eða í ákveðinni hráefnisframleiðslu. Því er það skoðun mín að sú breyting, sem lögð er til í þessu frv., sé tímabær og sé þörf. Þar er ekki gert ráð fyrir fráhvarfi frá verðlagseftirliti, en það er fellt í nýjar skorður, þar sem gert er ráð fyrir að á þeim sviðum, þar sem skilyrði, samkeppni um vöruverð, vörugæði og viðskiptakjör, eru fyrir hendi, þá sé gengið svo frá málum að sú samkeppni fái að njóta sín til að tryggja neytandanum sanngjarnt og réttlátt vöruverð. Þessu mega menn alls ekki gleyma þegar þeir ræða um þá breytingu sem hér er gert ráð fyrir. Það er engin von til þess, að á tiltölulega takmörkuðum markaði eins og þeim íslenska geti þrifist eðlileg samkeppni ef söluaðilar eru frjálsir að því að taka hana úr sambandi með einhverjum gerningum sín í milli. Það hafa þeir í rauninni verið fram til þessa. Við þessu verður gert ef þetta frv. verður að lögum. Þar er sérstök áhersla á það lögð að greina á milli þeirra sviða, þar sem skilyrði ríkja til raunverulegrar samkeppni um framboð og verðlag á varningi og þjónustu, og þeirra sviða, þar sem ríkir annaðhvort einokun eða takmörkuð samkeppni. Og auk þess sem um þessi mál er fjallað í frv. er þar einnig gert ráð fyrir ákveðnum ráðstöfunum til þess að tryggja stöðu neytandans almennt betur en hingað til hefur verið gert.

Ég tel að það fyrirkomulag, sem ríkt hefur um álagningarreglur einar út af fyrir sig, hafi algerlega gengið sér til húðar. Það hefur sýnt sig, að það ýtir síður en svo undir samkeppni eða verður nokkur hvati til hagstæðra innkaupa, en þau verða að sjálfsögðu að vera undirstaðan undir hagstæðu útsöluverði. Ég er þó ekki frá því, að í þessu frv. eins og það liggur fyrir sé fullskammt gengið að verja neytendahagsmunina. En ráðið til þess að bæta úr því er þá að ganga lengra á sömu braut, eins og reynslan krefst þegar þar að kemur.

Menn skulu virða það fyrir sér, sem kunnugir eru viðskiptakjörum og verðlagi í öðrum löndum en hér, hvar verðlagið er hagstæðast neytendunum og hvar það er óhagstæðast. Er verðlag og vöruframboð hagstætt neytendum í ríkjum þar sem opinberir aðilar ákveða vöruframboð og vöruverð? Mér kemur ekki til hugar að nokkur maður, sem þekkir ástandið í þeim löndum, svari því játandi. Þvert á móti ríkir þar vöruskortur, verðlagið er hátt og neysluvörurnar oft og tíðum lélegar. Fyrsta flokks varningur er þar ekki fáanlegur oft og tíðum nema á svörtum markaði. Verðlagið er hagstæðast neytendum þar sem samkeppni fær að njóta sín, þar sem haldið er uppi ströngu eftirliti af stjórnvalda hálfu til að hindra einokun og samkeppnishömlur og þar sem neytendur beita þungum þrýstingi á stjórnvöldin til að koma þessu til leiðar. Þessi almennu skilyrði, sem skapa raunverulegan hag eða óhag neytenda, eru svo augljós, að ég fæ ekki skilið hvernig nokkrum manni getur dottið í hug að Ísland sé þarna einhver alger undantekning, þó hér ríki að sumu leyti sérstæð skilyrði vegna markaðssmæðarinnar, eins og ég vék að áðan.

Í málflutningi hv. 8. landsk. þm., sem því miður er ekki staddur hér í dag, gætti að sumu leyti slíkra öfga, að ég get ekki látið þeim ómótmælt. Hv. þm. hélt því fram, að algengt væri að í verslunum í Reykjavík væru vörur verðmerktar þannig, að hver verðmiðinn væri ofan á öðrum í heilli hrúgu, þar sem eldri vörubirgðir væru hækkaðar í verði jafnóðum og önnur vara kæmi sem hækkaði verð á nýrri sendingu. Ég veit ekki hvar þessi hv. þm. verslar. En ég veit að í verslunum þar sem ég hef mín viðskipti tíðkast þetta ekki. Þvert á móti. Þar getur athugull neytandi, ef hann lítur aftarlega í hillurnar eða neðarlega í netin, oft og tíðum fundið leifar af eldri vörusendingum á lægra verði, stundum mun lægra verði en nýju sendingarnar eru á, sem bætt hefur verið ofan á í söluinnréttingar verslananna. Það varð því að mínum dómi afskaplega mikið öfugmæli þegar hv. þm. Sighvatur Björgvinsson staðhæfði það úr þessum ræðustól, að hér í horginni væri það í rauninni regla, að kaupmenn teldu sig eiga allan rétt gagnvart neytendum, en neytandinn ætti engan rétt. Vafalaust eru í þessari starfsgrein eins og öðrum undantekningar. En þetta eru ekki kynni mín eða þeirra, sem ég umgengst, af þeim aðilum sem stunda verslun fyrir almenna neytendur hér í borg. Því vil ég hafna þeim ályktunum sem hv. þm. dró af þessum lýsingum sem hann gaf. Ég held því þvert á móti fram, að að svo miklu leyti sem lýsing hans á verðlagsmálum hér er samkvæm staðreyndum, þá sýni hún, svo að ekki verði um villst, að ástæða sé að leita nýrra leiða í verðlagsmálum til að tryggja hagsmuni neytandans, að við svo búið megi ekki standa ef við ætlum að standa þannig að þessum málum að skammlaust sé og í samræmi við eðlilegar kröfur neytandans um þjónustu.

Þá vil ég víkja örfáum orðum að þeirri lýsingu hv. þm. sem hann gaf á hugsunarhætti neytenda hér á landi. Ekki varð annað á honum skilið en neytendur væru hér hinir vanþróuðustu í heimi og þeim væri alls ekki treystandi á nokkurn hátt til þess að líta eftir hagsmunum sínum og þörfum. Svona tal er að mínum dómi algerlega tilefnislaust. Ég held að Íslendingar séu ekki vanþróaðri þjóð á þessu sviði en öðrum. Fólk hér þekkir sinn hag og kann að sjá honum borgið, jafnt sem neytendur sem í öðrum hlutverkum sem fólk þarf að gegna í þjóðfélaginu. Það er skoðun mín að fólk sé reiðubúið að taka á sig ábyrgð og gegna eftirlitshlutverki í þessu efni, það sé aftur á móti þreytt á því barnfóstruviðhorfi sem lýsir sér í orðum eins og hér voru viðhöfð fyrst í þessum umr., að fólk flest sé hálfósjálfbjarga nema einhver forsjá að ofan sjái fótum þess forráð við hvert fótmál.