24.04.1978
Efri deild: 85. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3821 í B-deild Alþingistíðinda. (2967)

170. mál, Þjóðleikhús

Frsm. (Axel Jónsson):

Herra forseti. Eins og fram kemur á þskj. 631 hefur menntmn. þessarar hv. deildar fjallað um þetta frv. á nokkrum fundum sínum. Raunar er frv. ekki nýtt hér í deildinni. Það hefur legið fyrir hv. Alþ. nú undanfarin ár. Eins og fram kemur í nál. fékk n. á sinn fund nokkra aðila: Þjóðleikhússtjóra, fulltrúa frá stjórn Starfsmannafélags Þjóðleikhússins og fulltrúa frá Félagi einsöngvara sem óskuðu eftir fundi með nefndinni.

Það er rétt að það komi fram, að fulltrúar Starfsmannafélags Þjóðleikhússins lögðu áherslu á að starfsmannafélagið fengi aukin áhrif á stjórn Þjóðleikhússins. Þjóðleikhússtjóri tók og undir þetta álit þeirra, en lagði samt áherslu á að þjóðleikhússtjóri hefði þar allveigamikið úrskurðarvald. Fulltrúar frá Félagi einsöngvara lögðu áherslu á að inn í frv. kæmu breytingar sem gætu stuðlað að frekari starfsemi Þjóðleikhússins sem miðaði að því að íslenskir einsöngvarar hefðu þar meiri atvinnumöguleika.

Herra forseti. Ég vísa til framsöguræðu menntmrh. sem hann hélt fyrir þessu frv. 9. febr. s. l. Þar kom fram að frv. er fyrst og fremst lögð áhersla á það annars vegar að viðurkenna þá þróun, sem átt hefur sér stað á undangengnum árum, og í annan stað að opna möguleika til þess að starfsemi Þjóðleikhússins megi enn færast út. Gert er ráð fyrir í frv. að um nokkrar nýjar stöðuveitingar verði að ræða. Sumar eru þegar orðnar að veruleika, en aðrar eru nýjar. En eins og fram kemur er það allt háð samþykki fjvn. á hverjum tíma, eins og eðlilegt er.

Menntmn. sá sér ekki fært að gera breytingar á frv. og leggur til að það verði samþykkt óbreytt. Fjarverandi afgreiðslu málsins voru þeir Þorv. Garðar Kristjánsson og Ólafur Þ. Þórðarson, en einn nm., Ragnar Arnalds, skrifar undir með fyrirvara og hefur flutt brtt., sem hann mun gera grein fyrir. Menntmn. mælir að öðru leyti með því, að frv. verði samþykkt óbreytt.