24.04.1978
Efri deild: 85. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3839 í B-deild Alþingistíðinda. (2982)

250. mál, endurnýjum á stöðum forstöðumanna ríkisstofnana

Steingrímur Hermannason:

Herra forseti. Ég vil láta það koma fram, að ég er í öllum meginatriðum sammála því sem kom fram hjá hv. frsm. Ég er sammála flestum atriðum, ef ekki öllum, í frv. til laga, sem hann leggur fram um endurnýjun í stöðum forstöðumanna ríkisstofnana. Ég tel mig tala þar af nokkurri reynslu. Ég hef sjálfur verið í 20 ár forstöðumaður ríkisstofnunar. Ég er eindregið þeirrar skoðunar, að í flestum, ef ekki öllum tilfellum sé æskilegt að hreyfa til forstöðumenn ríkisstofnana, eins og reyndar kann að vera í mörgum öðrum embættum. Ég held að gott sé að fá inn, ef ég má kalla það svo, nýtt blóð og vissa hreyfingu í slíkar stöður. Ég hef reyndar hreyft þessu áður í umr. á hinu háa Alþ. Voru þá til umr. lög um rannsóknir í þágu atvinnuveganna. Ég þekki þar einna best til. Þegar ég segi, að ég tel að oft hafi komið fram að gott geti verið að fá endurnýjun í stöður, t. d. við slíkar stofnanir, þá er ég ekki á nokkurn máta að gagnrýna þá ágætu menn sem eru í stöðum forstöðumanna rannsóknastofnana. Hins vegar er það staðreynd, að á þeim sviðum eru ákaflega örar framfarir í heiminum og getur verið gott, jafnvel nauðsynlegt fyrir eðlilega þróun slíkrar starfsemi að fá inn nýtt blóð.

Hins vegar má vel vera að reynsla þeirra manna, sem veitt hafa slíkum stofnunum og öðrum stofnunum í stjórnkerfinu forustu, geti komið að fullt eins góðum notum við aðrar stofnanir. Mér finnst því að flutningur ætli ekki eingöngu að vera frá forstjórastöðu við eina ríkisstofnun í aðra stöðu innan þeirrar ríkisstofnunar, heldur mætti hann jafnvel vera meiri en nú er milli ríkisstofnana. Vitað er að hjá ýmsum þeim fyrirtækjum, sem þykja hafa tekið þessi mál föstustum tökum erlendis, eru slíkir flutningar föst regla.

Ég ætla ekki að hafa um þetta mörg orð. Ég vildi aðeins láta stuðning minn við þetta mál koma hér fram. Mér sýnist að skoða þurfi e. t. v. að einhverju leyti þær undanþágur sem eru gerðar í 3. gr. frv. Það er spurning í huga mér, hvort þetta megi ekki einnig ná til forstöðumanna skóla og þvers vegna eigi að undanþiggja 10 fastráðna starfsmenn eða færri, þannig að ekki verði flutt til þegar um færri en 10 fastráðna starfsmenn er að ræða. Fleira getur einnig komið til athugunar, eins og t. d. ráðningartímabilið. En í öllum meginatriðum vil ég lýsa samþykki mínu við þetta frv.