02.11.1977
Efri deild: 11. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 375 í B-deild Alþingistíðinda. (302)
36. mál, stjórnarskipunarlög
Flm. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Ég má til með að leiðrétta augljósan misskilning sem fram kemur í máli hv. 4. þm. Suðurl., Jóns Helgasonar. Hann hélt því fram, að þar sem svo stæði á að afréttarlönd hefðu verið seld, þar sem sala hefði farið fram, eins og hann komst að orði, þar væri ekki vefengt að um ótvíræða eign viðkomandi aðila væri að ræða, þ.e.a.s. kaupandans eða þeirra sem leiddu rétt sinn frá honum. Þetta er mikill misskilningur, því að í þeim tilvikum þar sem Hæstaréttur hefur fjallað um eignarrétt að afréttum, þá hefur einmitt verið um það að ræða að menn hafa vísað til þess að þeir hafi keypt viðkomandi afrétti af ákveðnum aðilum. T.d. var það þannig, að Skagfirðingar bentu á að þeir hefðu keypt afrétt Nýjabæjarlands af ákveðnum bújörðum í Eyjafirði, og þannig var reynt að rekja málið nokkur hundruð ár aftur í tímann. En aðalgallinn var bara sá, að Hæstiréttur féllst ekki á það raunverulega að þeir, sem seldu, hafi nokkurn tíma haft rétt yfir því sem þeir voru að selja, og það er þar sem hnífurinn stendur í kúnni. (Gripið fram í.) Þarna er um að ræða land sem sannanlega hefur verið afréttur, þetta eru afréttarlönd. Og jafnvel þótt sala hafi farið fram, þá er það ekkert sönnunargagn fyrir því að sá sem seldi hafi átt þann rétt sem hann var að selja.
Við Alþb.-menn teljum einmitt að það sé óhjákvæmilegt vegna þeirrar miklu óvissu, sem í þessum efnum er, að slá því föstu að afréttir almennt, það sem menn geta verið sammála um að geti talist til afrétta, sé sameign. Hins vegar geta Skagfirðingar haft afnotarétt af því afréttarlandi sem þeir töldu sig kaupa. Það er allt annað mál. Hæstiréttur viðurkennir í dómum sínum að það kunni að vera full ástæða til fyrir þá að krefjast þess.