24.04.1978
Neðri deild: 82. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3868 í B-deild Alþingistíðinda. (3029)
272. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins
Frsm. minni hl. (Benedikt Gröndal):
Virðulegi forseti. Ég er í minni hl. í landbn. og get ekki stutt þetta frv., eins og fram kemur í nál. á þskj. 668.
Stofnlánadeild ]andbúnaðarins er nú rekin með halla, þar sem fjármagnskostnaður hennar er meiri en tekjur, eins og fram kom í máli frsm. n. Þetta verður að sjálfsögðu að leiðrétta og tryggja framtíð deildarinnar áður en í óefni er komið.
Sams konar og svipuð vandamál eru til víðar í þjóðfélagi okkar, og í öðrum atvinnugreinum og almennum viðskiptum hafa þau nú undanfarið samkv. stefnu núv. ríkisstj. verið leyst með vaxtahækkunum. Hefur óðaverðbólga síðustu ára leitt til hinna háu vaxta sem nú tíðkast. Hlutverk þeirra er eða á að vera að draga úr óarðbærri fjárfestingu og verðbólgugróða, en óneitanlega leggst vaxtabyrðin mjög þungt á allan rekstur svo og á íbúðabyggjendur.
Það er býsna fróðlegt þegar áhrifamenn í stjórnarliðinu, eins og hv. frsm. landbn., tala í ræðu á Alþ. um vaxtaskrið sem þeir telja réttilega vera algerlega óþolandi, og lýsa með ljótum orðum áhrifum þess. En það er ekki hægt að gera annað en vísa þeim til félaga sinna sem styðja núv. ríkisstj. og stefnu hennar, því að þeirra væri að bæta úr eða sjá svo um að þjóðin losnaði við þetta vaxtaokur.
Frv. gerir ráð fyrir að vextir á útlánum Stofnlánadeildarinnar, sem nýlega hafa verið hækkaðir, verði ekki hækkaðir á ný eins og efni standa til, heldur verði lagt 1% gjald á heildsöluverð allrar búvöru og komi það í staðinn fyrir vaxtahækkanirnar. Sagt er að þetta komi í einn stað fyrir neytendur, þar sem hærri vextir mundu hafa hækkunaráhrif á verðgrundvöll búvöru, og hef ég ekki ástæðu til að vefengja þá fullyrðingu.
En þessi aðgerð er að ýmsu leyti sérstæð og mun valda því, að atvinnuvegir sitji ekki við sama borð í vaxtamálum. Mætti ekki eins leggja gjald á allar íslenskar iðnaðarvörur til þess að greiða niður vexti Iðnlánasjóðs? Kæmi þá ekki til greina að leggja fast gjald ofan á fasteignaskatt til að lækka vexti Húsnæðismálastofnunar ríkisins? Þannig mætti lengi telja, ef aðrir ættu að fara inn á þá sömu braut sem hér er haldið. Raunar mismunar þetta 1% gjald bændum sjálfum, því að það styður þá, sem eru skuldugir, á kostnað hinna, sem lítið skulda.
Hv. frsm. meiri hl. landbn. og formaður hennar sagði að vegna byrðarinnar, sem þeir verða að bera er standa í framkvæmdum væri óþolandi misræmi fyrir hendi í landbúnaðinum, og skal ég svo sannarlega ekki mótmæla því. Mér er fullkomlega ljóst, að sérstaklega ungir menn, sem hyggja á stofnun býla, eiga mjög erfitt. En misræmi af þessu tagi er fyrir hendi í öllum stéttum og öllum starfsgreinum þjóðfélagsins. Því má hv. meiri hl. ekki gleyma. Þetta misræmi er á milli þeirra, sem standa nú í framkvæmdum og verða að taka lán, hvort sem er í atvinnuvegum eða til einkanota, t. d. húsbygginga, gagnvart öðrum sem hafa lokið slíkum framkvæmdum fyrir nokkrum árum.
Jöfnunargjaldið leggur þunga hárra vaxta á neytendur, en dregur að sama skapi úr þeim áhrifum sem hljóta að vera tilgangur hávaxtastefnunnar, ef hún hefur þá nokkurn tilgang, að draga úr framkvæmdum og þar með hugsanlega aukinni framleiðslu á sama tíma sem offramleiðsla í landbúnaði er viðurkennt vandamál. Með því að leggja þetta jöfnunargjald á heildsöluverð búvöru hækkar að krónutölu álagning smásöluaðila á þessar vörur. Við það hækkar verðið til neytenda meira en sem gjaldinu nemur.
Annað meginatriði þessa frv. er að flytja allar lánveitingar til íbúðarhúsa í sveitum til Húsnæðismálastofnunar ríkisins. Það tel ég vera skipulagslega skynsamlegt, enda þótt um ýmislegt, t. d. stærð íbúða, þurfi að gilda aðrar reglur varðandi húsnæði í sveitum en í þéttbýli. Hins vegar er ekki eitt orð um það í frv. eða grg. Þess, hvar Húsnæðismálastofnunin á að fá fé til að standa undir þessum lánveitingum. Er gert ráð fyrir, miðað við meðaltal nokkurra síðustu ára, að reistar séu um 100 íbúðir á ári í sveitum, en lán til þeirra mundu við núverandi aðstæður nema um 360 millj. kr.
Fram kom á nefndarfundum að Húsnæðismálastofnun ríkisins er hlynnt því, að allar lánveitingar til íbúðarbygginga séu á einum stað, og er því reiðubúin til að taka að sér umrætt verkefni, en með því skilyrði, að henni verði séð fyrir fé til að geta veitt bændum jafngóða þjónustu í þessum efnum og Stofnlánadeildin hefur gert til þessa. Ég tel það vera mikinn ábyrgðarhluta að afgreiða þetta mál þannig að í raun og veru sé ekkert gert til þess að tryggja fjármuni svo að Húsnæðismálastofnunin geti staðið undir þessu nýja verkefni.
Einn af tekjustofnum Húsnæðismálastofnunar ríkisins er skyldusparnaður, nema hvað í sveitum rennur skyldusparnaðurinn til Stofnlánadeildarinnar. Ekki er gert ráð fyrir að breyta þessu þótt lánveitingar til íbúðarhúsa í sveitum verði fluttar. Um þetta eru ákvæði í lögum um Húsnæðismálastofnun ríkisins. Allt þetta stuðlar að því, að ég hef ekki treyst mér til þess að styðja frv.
Ég vil að lokum minna hv. stjórnarsinna á, að þeir eru, að því er við í stjórnarandstöðunni best fáum séð, orðnir býsna léttúðugir er þeir leggja sífellt á ný gjöld. Það er hvert gjaldið á fætur öðru að birtast og öll þessi gjöld, sem e. t. v. eru ekki veigamikil í þjóðarbúskapnum hvert fyrir sig, hlaðast á herðar neytenda og þau lyfta vísitölunni og verðbólgunni upp. Í dag er jöfnunargjald í sambandi við Stofnlánadeild landbúnaðarins, og hv. frsm. meiri hl. var svo heiðarlegur að boða það, að honum virtist að fljótlega mundi verða þörf á því að hækka það. Samkv. öðru frv., sem var hér á dagskrá fyrr í dag, en kom ekki til umr., á að leggja nýtt gjald á iðnaðarvörur sem ekki liggja neinar upplýsingar fyrir um. Og ég vil benda á að þessi eilífa gjaldlagning er veigamikill þáttur í stöðugri verðbólgu og að menn ættu að hugsa um það, þegar verið er að leggja gjöld á, hvort sem er þetta gjald eða önnur, hve mikil tilhneiging er til þess að halda gjöldunum áfram og afnema þau aldrei þegar einu sinni er búið að leggja þau á. Það er hætta sem menn skyldu hafa í huga. Því hefði ég talið skynsamlegt að fara ekki inn á þá braut að leggja á ný gjöld í þeim tilgangi sem hér er um að ræða.