25.04.1978
Sameinað þing: 70. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3872 í B-deild Alþingistíðinda. (3032)
232. mál, ljósmæðralög
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Lög nr. 39 1976 voru staðfest 25. maí það ár og tóku þá þegar gildi. Daginn eftir, hinn 26. maí 1976, voru staðfest lög nr. 29 1976, um kjarasamninga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, og tóku þau lög gildi 1. júlí 1976. Í samræmi við þau lög kvað kjaranefnd upp úrskurð 16. júlí það ár um sérkjarasamning fjmrh. og Ljósmæðrafélags Íslands tímabilið 1. júlí 1976 til 30. júní 1978. Er störfum ljósmæðra raðað þar í 4 launaflokka, þ. e. a. s. B 9, B 11, B 13 og B 15. Nýtt ákvæði er um 15% álag á laun þeirra ljósmæðra sem starfa á læknislausum starfsstöðum eða umdæmum. Þá er í úrskurðinum ákvæði um nefnd, sem ákveða skuli hvaða hluti úr fullu starfi teljist fylgja hverju ljósmóðurumdæmi samkv. ljósmæðralögunum frá 1933, sbr. lög nr. 39 1976.
Í lögum þeim, sem hér er spurt um, er enn fremur ákvæði til bráðabirgða. Þar segir að á árinu 1976 skuli hver sýslunefnd endurskoða skiptingu sýslunnar í umdæmi, gera tillögur um breytingar og leita samþykkis ráðh. á þeim. Rn. skrifaði öllum sýslumönnum landsins og kallaði eftir endurskoðun þessari og till. til breytinga, ef einhverjar væru. Svör bárust seint og illa. Eftir ítrekaðar fsp. rn. er þó svo komið nú, að af 18 sýslumönnum, sem skrifað var, hafa 14 svarað og yfirleitt viðrað till. til breytinga í þá átt, að störf ljósmæðra flyttust inn á heilsugæslustöðvar í viðkomandi sýslu. Þar til svo gæti orðið er yfirleitt lagt til að umdæmi stækki, enda vantar mikið á að öll umdæmi séu nú setin.
Eins og stendur er verið að vinna úr þessum svörum í rn. og þá að sjálfsögðu með það í huga, að störf þessi verði í framtíðinni fyrst og fremst tengd fæðingarstofnunum og heilsugæslustöðvum. Meðan við búum enn við kerfi umdæmisljósmæðra að einhverju leyti er nauðsynlegt að hafa reglur um ákveðið starfshlutfall til launa í hverju umdæmi, eins og ákveðið er í 8. gr. fyrrnefnds úrskurðar kjaranefndar.
Nefnd sú, sem skipuð var samkv. úrskurðinum, hefur skilað áliti. Hlutverk þeirrar nefndar var tvíþætt: Í fyrsta lagi að ákveða, hvaða hluti úr fullu starfi teljist fylgja hverju ljósmóðurumdæmi. Í síðara lagi að ákveða, hvaða umdæmi eða starfsstaðir ljósmæðra teljist læknislausir í skilningi 7. gr. ofangreinds úrskurðar kjaranefndar. Og nm. voru allir sammála um eftirfarandi :
Að viðhalda gildandi grundvelli fyrir útreikningi á launum ljósmæðra í umdæmum utan kaupstaða. Þrátt fyrir ýmsa galla á núverandi fyrirkomulagi fann nefndin ekki aðra heppilegri valkosti. Laun ljósmæðra í umdæmum utan kaupstaða verða því þannig frá 1. jan. á þessu ári. að miðað við að fjöldi íbúa í umdæmi sé allt að 300 er hlutfall starfs 9.51. Dæmi um annan fjölda íbúa: Séu 451–500 íbúar er hlutfallið 10.72 og séu 1101–1150 íbúar er það 14.66. Fyrir hverja 50 íbúa fram yfir 1150 fá þær 0.30%. Er ljósmóðir í umdæmi hefur gegnt starfi í 3 ár skal hún fá að auki greitt 1.01% mánaðarlauna, en 3.22% hafi hún starfað 6 ár.
7. gr. í úrskurði kjaranefndar hljóðar þannig: „Ljósmæður, sem starfa á læknislausum starfsstöðum eða umdæmum, skulu fá greitt 15% álag á föst laun meðan læknisleysið varir. Umdæmi eða starfsstaður telst læknislaus sé ekki séð fyrir daglegum aðgangi að læknisþjónustu við venjulegar aðstæður.“
Nefndin telur ekki ástæðu til að breyta þessari túlkun á læknislausum stöðum þar eð kjaranefnd hefur tjáð sig í því máli. Þessar niðurstöður nefndarinnar hafa nú væntanlega verið lagðar til grundvallar launagreiðslum til ljósmæðra í samræmi við úrskurð kjaranefndar. Nefndin starfar áfram og endurskoðar launagrundvöll árlega eða oftar, eins og í úrskurðinum er ákveðið.
Í nefndinni eiga sæti formaður frá heilbrrn„ Ingibjörg R. Magnúsdóttir deildarstjóri, frá landlækni Ingimar Einarsson fulltrúi, frá launadeild fjmrn. Brynjólfur Jónsson launaskrárritari og frá Ljósmæðrafélagi Íslands Ása Marinósdóttir ljósmóðir, Árskógsströnd, og Vilborg Einarsdóttir ljósmóðir, Höfn, Hornafirði. Eftir því sem formaður nefndarinnar tjáði mér var ekki ágreiningur í nefndinni um þessar till.