25.04.1978
Sameinað þing: 70. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3881 í B-deild Alþingistíðinda. (3044)
275. mál, síldarverksmiðja ríkisins á Skagaströnd
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Það eru einkar athyglisverðar upplýsingar sem hér hafa komið fram, að fyrir liggur að mikið á 3. hundrað millj. kr. eigi að setja í Skagastrandarverksmiðjuna svo nefndu og reyna að gera hana nothæfa En þetta er bara ein hlið á málinu. Einnig liggur fyrir sú staðreynd, að öll stærri skipin, sem mundu fyrst og fremst geta þjónað þessari verksmiðju, geta ekki flotið að verksmiðjunni. Það liggur fyrir hjá Vitamálastofnun núna beiðni um að dýpka höfnina þarna, sem að því er mér er sagt kostar tugi millj. kr. og mjög vafasamt er hvort hægt verður að sinna. Það liggur einnig fyrir að engin netaþjónusta er á þessum stað, en allir vita, sem hafa nálægt þeirri þjónustu komið, og einnig útgerðarmenn, að ekki er hlaupið að því að tryggja hana almennilega.
Þá var einnig upplýst fyrir rúmu ári, í ársbyrjun 1977, að 100 millj. vantaði til eða frá til þess að koma Þórshafnarverksmiðjunni í gang, en ómögulegt var að útvega það fé, þó að margar raddir hvettu til þess úr þessum ræðustól að gera það átak.
Mér finnst þetta alveg furðuleg ákvörðun. Það liggur einnig fyrir sem margyfirlýstur vilji þm., sem talað hafa úr þessum ræðustól, að hjálpa skuli þeim á Snæfeilsnesi til að koma af stað einni litilli verksmiðju þar. Þar renna verðmæti fyrir tugi millj. í sjóinn á hverri vertíð. En það er ekki hlustað á þá.
Þetta er ein spegilmyndin af því sem helst mætti kalla geggjaða ákvörðunartöku. Við ráðstöfun fjár á Íslandi virðist mér í öllu öfugt að farið. Hér eru slegnir erlendir peningar að láni. Það eru mörg ár þangað til þetta verður af viti gert, það fullyrði ég þegar í stað. — Og það var skrifuð ákaflega góð grein af einum reyndasta útgerðarmanni á Íslandi. Hann rökstuddi fullkomlega að fjarstæða væri að taka ákvörðun í þessu efni.