25.04.1978
Sameinað þing: 70. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3885 í B-deild Alþingistíðinda. (3051)
275. mál, síldarverksmiðja ríkisins á Skagaströnd
Páll Pétursson:
Herra forseti. Það er nú ansi gott að hv. þm. Sverrir Hermannsson skyldi fara að vanda um við okkur. Hann hefur sannarlega efni á því. Ég held að hann sé eini maðurinn sem hefur staðið í 9 klukkustundir í þessum ræðustól án þess að segja orð af viti. Þar fyrir utan er hann búinn að þvæla um á fund eftir fund og sagt þar margt skemmtilega að vísu, en misviturlega.
Hvað varðar feimnismál í kjördæmum manna, þá vil ég benda hv. þm. Stefáni Jónssyni á það, að ég held að það séu engin feimnismál á Skagaströnd og ég veit raunar ekki um þau á Norðurl. v. Og ég fagna því, ef hv. þm. og þm. og við allir erum sammála um endurbyggingu verksmiðjunnar á Skagaströnd, því að ég held að þetta þjóðfélag eigi að mínum dómi að byggjast á atvinnulífi eins og er á Skagaströnd núna, ekki atvinnulífi eins og var á Skagaströnd í tíð viðreisnarmanna. Þá hafði hv. 1. landsk. þm. tíma til þess að koma á framfæri ákvarðanatökum sínum í atvinnumálum dreifbýlisins og þjóðarinnar allrar og öðrum framkvæmdum.