25.04.1978
Sameinað þing: 70. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3888 í B-deild Alþingistíðinda. (3056)
Umræður utan dagskrár
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson) :
Herra forseti. Ég vona að mér leyfist að víkja nokkuð að því, sem hv. fyrirspyrjandi bar hér fram, áður en ég svara beint spurningum hans, því að þar ræddi hann almenns eðlis mál og byggði ekki á mikilli þekkingu, enda er ég ekkert hissa á því, þó að svo væri.
Hv. 5. þm. Norðurl. v. taldi að ríkisstj. hefði ekkert gert landbúnaðinum til stuðnings nú á þessu eða s. l. ári. Hv. þm. telur að það hafi ekki verið til stuðnings landbúnaðinum, að á miðju sumri í fyrra voru niðurgreiðslur auknar um 1500 millj. kr., sem varð til þess að auka sölu á innanlandsmarkaði. Hann telur að það hafi ekki heldur verið til stuðnings landbúnaðinum þegar ákveðnar voru ullarniðurgreiðslurnar. Þær hafa staðið í nokkur ár, en hafa þó verulega verið hækkaðar á s. l. og þessu ári og eru nú um 650 millj. kr. sem í það eiga að fara, eða um 400 kr. á hvert ullarkg. Þetta þýðir að kjötið á innanlandsmarkaði hefur lækkað.
Enn fremur hafa nú fyrir stuttu verið auknar niðurgreiðslur á kjöti á innanlandsmarkaði um 1300 millj. kr. Þessar tölur mínar, sem ég hef hér farið með eru miðaðar við ársverðlag. Enn fremur hefur nú um nokkurra mánaða skeið farið fram útsala á smjöri sem hefur gert það að verkum, að nokkur hundruð tonn af smjöri hafa selst, en smjörsala var algerlega komin í kyrrstöðu. Hér er um að ræða fjárhæð sem mun nema a. m. k. um eða yfir 200 millj. kr. Þegar þetta er tekið saman, þá er um 3 milljarða kr. að ræða. Er það verulega hærri fjárhæð en hinn margumtalaði söluskattur sem hv. þm. talaði um.
Hv. þm. vitnaði svo til afkomu bændastéttarinnar og viðmiðunarstéttanna. Ég hef áður látið í ljós þá skoðun og byggt hana á rökum, að hér er ekki um haldgóðan samanburð að ræða vegna þeirrar breytingar sem gerð var á skattframtölum annars vegar og þessum samanburði. En nú ætla ég ekki að fara langt aftur í tímann, heldur hverfa til ársins sem er nýliðið, þess árs sem hv. þm. miðaði við og nefndi eitt mesta vandræðaárið.
Ég hafði óskað eftir því, að Þjóðhagsstofnun gerði úrtak á tekjum bændastéttarinnar eins og gert er hjá öðrum stéttum: Hún hefur framkvæmt þetta. Þetta svar barst mér í dag. 200 bændur voru teknir til athugunar og var einungis tekið mið af þeim bændum sem höfðu landbúnað að aðalatvinnu. Athugun var gerð í öllum skattumdæmum landsins nema Reykjanesi. Og hver er niðurstaðan? Með leyfi hæstv. forseta er hún þessi:
„Niðurstöður þessara athugana leiddu í ljós verulega hækkun tekna bænda á milli áranna 1976 og 1977 eða á bilinu 60–70% eftir því við hvaða tekjur er miðað. Þannig hækkuðu hreinar rekstrartekjur á landbúnaðarmeðaltali um 68%, heildartekjur bænda um 60% og nettótekjur um 65%. Athugun Þjóðhagsstofnunar á tekjum annarra stétta á árina 1977, úrtak úr skattframtölum í Reykjanes- og Reykjavíkurskattumdæmi, bendir til þess, að heildartekjur og nettótekjur hafi hækkað mun minna eða um 44–45%.“
Þessar athuganir renna stoðum undir þá skoðun Þjóðhagsstofnunar, sem sett var fram í jan. s. l. og birtist sem viðauki í skýrslu verðbólgunefndar að tekjur bænda hafi á síðasta ári hækkað mun meira en tekjur annarra stétta. Hv. 5. þm. Norðurl. v. virðist ekki hafa kynnt sér þetta, enda fsp. í öðrum tilgangi gerð.
Út af fsp. vil ég segja það, að í bréfi, sem mér hefur að vísu ekki borist hingað enn þá, en ég fékk að heyra efni þess í morgun, kom eftirfarandi fram hjá forráðamönnum Stéttarsambands bænda, með leyfi hæstv. forseta. Þetta stendur í upphafi bréfs, sem er dags. 14. apríl og hafði verið sent rn., en er ekki komið hingað enn þá:
„Eins og frá hefur verið greint á fundum í vetur og komið hefur fram í fréttum margsinnis, er ljóst að útflutningsbótaréttur bænda hjá ríkissjóði mun engan veginn nægja á þessu ári.“
Út af þeirri ákvarðanatöku, sem hv. 5. þm. Norðurl. v. spyr um, skal það tekið fram, að hún er gerð af framkvæmdanefnd Framleiðsluráðs, en hana skipa formaður, framkvæmdastjóri og Oddur Andrésson. Þar var þessi ákvörðun tekin. Þessi ákvörðun nefndarinnar var rædd á fundi í Framleiðsluráði sem haldinn var 21. þ. m. Þar kemur fram ágreiningur eða urðu skoðanaskipti hjá framleiðsluráðsmönnum um þessa tryggingu sem sett er til þess að öruggt sé að jafnar útborganir verði til sl aurleyfishafa, því hætta geti verið á því, að þeir, sem hafi minnst, geti verið búnir að selja allar sláturafurðir sínar og geti þess vegna ekki innt þetta gjald af hendi eða það gjald sem kynni að þurfa að inna af hendi ef til þess kæmi. Í þessu bréfi, sem mér var afhent í morgun, kemur þetta fram, með leyfi hæstv. forseta:
„Ingi Tryggvason spurðist fyrir um hvort ekki hefðu komið til umr. önnur úrræði til tryggingar en að leggja þetta fé á bankabók. Formaður upplýsti að Seðlabankinn hefði ekki léð máls á öðrum tryggingum en þessum. Agnar Tryggvason taldi að leita bæri til landbrh. um liðveislu, sem gæti t. d. verið fólgin í því, að unnt væri að dreifa innheimtunni hjá sláturleyfishöfum á lengri tíma. Ingi tók undir þetta. Hann taldi nauðsyn á að innheimtunni yrði dreift meir en gert er ráð fyrir samkv. ákvörðun framkvæmdanefndar. Ingi lagði til, að haft yrði samband við landbrh., og óskaði þess, að hann freistaði þess að gera ráðstafanir sem draga mætti og dreifa innheimtu útflutningsgjalds á lengri tíma en nú er gert ráð fyrir.
Till. var borin undir atkv. og samþykkt.“ Þetta bréf barst mér í morgun. Til frekari skýringar á þessu máli vil ég geta þess, að snemma í þessum mánuði ræddi ég ásamt deildarstjóranum í landbrn. við bankastjóra Seðlabankans, m. a. um rekstrarlán þau, sem í hönd fara, og svo hitt, að ljóst væri af tali þeirra, sem best væru að sér í þessum málum, að útflutningsuppbætur mundu ekki nægja á þessu ári, þ. e. að 10% skalinn yrði sprengdur. Hins vegar væri það ekki séð enn þá, hvort þetta reyndist rétt eða líkur væru á því eða hversu mikla fjárhæð væri hér um að ræða. Eitt af því, sem ég fór því fram á í þessum umr., var að Seðlabankinn innheimti ekki afurðalánin af þeim vörum sem út væri búið að flytja og ekki væri búið að greiða útflutningsbætur á. Þessi háttur var á hafður árið 1956 þegar greiðslur á útflutningsuppbótum voru svo mjög á eftir, eins og kunnugt er og þá var umtalað. Kannske var ekki svo mikið gert úr þessu máli þá, en mikils virði var það. Seðlabankinn hefur nú svarað því til, að þetta muni hann gera. Hann muni ekki innheimta þessi lán af þeim vörum sem út úr landinu hafa verið fluttar og útflutningsbætur væru ekki á greiddar. Hins vegar mun það hafa komið til tals í umr. milli formanns og framkvæmdastjóra Framleiðsluráðs, að þetta væri auðvitað gert gegn því, að Framleiðsluráðið ábyrgðist að greiðslan færi fram, þó að útflutningsbæturnar nægðu ekki. Mun hafa komið fram í umr. þeirra á milli, að rétt væri að binda fé til tryggingar þessu, svo að Framleiðsluráðið stæði ekki félaust uppi. Samkv. þeim upplýsingum, sem ég hef þegar fengið, er talið að eftir standi kannske um 500 millj. sem þarna munar á næstu 4 mánuðum, sem Seðlabankinn hefur lánað umfram það sem tekið er til trygginganna.
Því að athuga möguleika á, hvort hægt væri að lengja þennan frest eða draga þessar greiðslur, hef ég að sjálfsögðu ekki haft neinn tíma til þess að sinna, þar sem mér barst ekki þessi ályktun fyrr en í morgun og hún var ekki gerð í samráði við landbrn., enda er það ekki rn. sem ber ábyrgð á greiðslunni ef fjármuni skorti. Hins vegar mun að sjálfsögðu verða leitast við að draga úr þessu til þess að átta sig betur á því, að hve miklu leyti eða hvort þarf að nota þetta fé til þess arna, eins og þarna er stefnt að. Hér er því ekki um gjaldtöku að ræða, eins og hv. 1. þm. Norðurl. v. vildi vera láta, nema ef þetta brestur, heldur er hér um tryggingu að ræða, ef svo skyldi fara að útflutningsverðmætin yrðu meiri en bótarétturinn er. T. d. var á s. l. hausti farin þessi leið, að taka þá slíkt gjald, en því var skilað aftur þar sem tókst, ég vil segja fyrir góða frammistöðu stjórnvalda, að koma þannig fyrir útflutningsbótaréttinum, að fullar útflutningsbætur náðust þá. Það leit um tíma út fyrir að það yrði nokkur upphæð sem þar vantaði, en það reyndist svo, að hún náðist að fullu.
Nú er mér ljóst að ekki er hægt að taka neina ákvörðun um þennan þátt núna. Það getur ekki orðið fyrr en séð er hvernig málum kann að ljúka þegar upp verður staðið og verðlagsárið er búið. Mér er einnig tjáð að það séu nú líkur fyrir því, að jafnvel þótt taka yrði allt að því þetta gjald, þá mundi grundvallarverðið frá síðasta hausti nást. Þetta er mér tjáð, því að að sjálfsögðu hef ég ekki þekkingu á þessu.
Ég vil þá segja það út af því sem fram kemur í þessum spurningum, að ríkisstj. hefur unnið mikið að þessum málum, eins og ég hef þegar bent á, með margvíslegum aðgerðum. En auk þess sem ég hef talið, þá hefur setið að störfum síðan í fyrra nefnd til að fjalla sérstaklega um markaðsmálin. Í ræðu þeirri, sem forseti Búnaðarþings flutti, og einnig minni ræðu við setningu Búnaðarþings í febrúar 1977, þá kom fram einmitt sú ósk, að þessi mál yrðu sérstaklega tekin til meðferðar. Það var gert og hefur nefnd verið að störfum síðan. Sú nefnd heldur fundi á hverjum þriðjudegi og í fsp.- tíma nú fyrir stuttu gerði ég grein fyrir störfum nefndarinnar að því leyti sem upplýsingar lágu þá fyrir.
Það hefur verið ljóst þeim sem best þekkja, að til þess gæti komið að salan innanlands á landbúnaðarafurðum nægði ekki og farið yrði fram úr útflutningsuppbótaréttinum. Það er ekki svo, að aukist hafi framleiðsla á landbúnaðarvörum á öllum sviðum. En sérstaklega var það á s. l. ári, m. a. á mjólkinni. Það er núna ör aukning í mjólkurframleiðslunni. Útflutningsbótaréttinum er skipt á milli þessara greina og hvernig ráðstafað er tekjum þeim, sem þar eru umfram, er komið undir ákvörðun Framleiðsluráðs. Þess vegna held ég að ljóst sé, að það hafi verið mikið að þessum málum unnið. Það er líka ljóst, það hefur sýnt sig, að það hefur borið árangur. Það sýna tekjutölurnar frá s. l. ári. Einnig hefur sýnt sig, að salan á kjöti innanlands jókst um 10–15%, a. m. k. nú í marsmánuði, frá því sem var á árinu áður. Ég vil enn fremur minna á að afurðalán út á landbúnaðarafurðir á s. l. hausti urðu meiri en nokkru sinni fyrr og það svo, að í lok marsmánaðar voru lánin, sem þá stóðu úti, 73% hærri en á sama tíma í fyrra. Þess vegna er mikils virði að nú sé gengið að því að endurgreiða þessi lán ef útflutningsbæturnar nægja ekki til, en samkv. frásögn eða útreikningum Framleiðsluráðs er búið að greiða það miklar útflutningsbætur fyrir sauðfjárafurðir það sem af er þessu ári, að þeir telja sig þurfa að tryggja sig gagnvart þeim vanda sem hér er við að fást.
Ég tel mig þá hafa upplýst að verulegu leyti það sem fram kom í fsp. hv. 5. þm. Norðurl. v. Ég vil endurtaka það, að ákvörðun framkvæmdanefndar Framleiðsluráðsins um gjaldtökuna er tekin til þess að tryggja að jöfnuður verði á milli sláturleyfishafa, en það leggist ekki allt á þá sem hafa mestar afurðir að selja, ef til þess þyrfti að grípa, sem ég geri ráð fyrir eftir þeim upplýsingum sem fyrir liggja, að taka aukagjald vegna þess að útflutningsuppbætur skorti. En að sjálfsögðu mun það verða mál sem stjórnvöld kunna að fjalla um á komandi hausti þegar dæmið liggur alveg fyrir.