25.04.1978
Sameinað þing: 71. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3892 í B-deild Alþingistíðinda. (3060)
140. mál, vegáætlun 1977-1980
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson) :
Herra forseti. Út af till. á þskj. 625 vil ég taka það fram, að ég er auðvitað alltaf reiðubúinn til þess að athuga nýjar leiðir til tekjuöflunar fyrir vegagerð. En ég tel að kosningasumar sé óheppilegt til þess að gera slíka athugun. Það, að búið væri að leggja slíkt fyrir nýkjörið þing, tel ég alls óhugsandi. Miklu eðlilegra væri, að nýkjörið þing kynni að á kveða svona mál heldur en þing sem situr að störfum síðustu dagana sem umboð þess nær yfir. Þess vegna segi ég nei.