02.11.1977
Neðri deild: 11. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í B-deild Alþingistíðinda. (308)
7. mál, hlutafélög
Flm. (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Við þm. Alþfl. í þessari hv. d. leyfum okkur að flytja á þskj. 7 frv. til l. um breyt. á l. um hlutafélög, nr. 77 frá 27. júní 1921.
Frv. þetta eða frv. sama efnis hefur áður verið flutt í þessari hv. d. Það var á síðasta Alþ., að þá fluttum við, þessir sömu flm., frv. til l. um atvinnulýðræði á þskj. 315, en einn kaflinn í því frv. fjallaði um breyt. á l. um hlutafélög, nr. 77 frá 1921. Frv. það, sem hér er flutt, er efnislega samhljóða þeim kafla. Málið hefur þó verið einfaldað nokkuð frá upphaflegri gerð, m.a. í þá átt að fella niður nákvæm fyrirmæli um framkvæmd kosninga á fulltrúum starfsmanna í stjórn hlutafélaga og verksvið kjörnefnda. Slík nákvæm fyrirmæli voru í kafla þeim í frv, til l. um atvinnulýðræði, sem við fluttum í fyrra, og voru sniðin eftir norskum ákvæðum um sambærileg efni. Nú er gert ráð fyrir því í þessu frv, að ráðh. setji nánari fyrirmæli um slík framkvæmdaatriði í reglugerð, þannig að málið hefur nokkuð verið einfaldað frá því er það var flutt á síðasta Alþingi.
Í umr. þeim, sem urðu í fyrra um frv, til l. um atvinnulýðræði, komu einnig fram ábendingar um að æskilegt væri að hafður yrði annar háttur á flutningi málsins en þá var, en í því frv. var gert ráð fyrir breyt. á allmörgum lögum, auk þess sem í upphafskafla frv, var fjallað um samstarfsnefndir, sem er nýjung og á ekki heima í annarri lagasetningu. M.a. vegna þessara ábendinga, sem fram komu frá þm. sem annars vildu stuðla að framgangi þessara mála, hefur sú leið nú verið valin við endurflutning málsins í þessari hv. d. að flytja það, sem fólst í frv. til l. um atvinnulýðræði, sem fjögur sjálfstæð þingmál að þessu sinni, þ.e.a.s. frv. það sem hér er lagt fram, frv. til l. um samstarfsnefndir, frv. til l. um breyt. á l. um Áburðarverksmiðju ríkisins og frv., til I. um breyt. á l. um Sementsverksmiðju ríkisins. Aðeins einn þáttur stendur þá eftir af frv. til l. um atvinnulýðræði, sem flutt var á síðasta Alþ., en það er IV. kafli þess frv., sem fjallar um breyt. á l. um samvinnufélög. Samvinnuhreyfingin hefur nú þegar tekið ákveðið frumkvæði um þessi mál með því að heimila starfsfólki Sambandsins að kjósa til setu á fundum stjórnar þess fulltrúa með málfrelsi og að ég held tillögurétti einnig. Fastlega má því ætla að ef frv. þetta, sem hér liggur fyrir, um breyt. á hlutafélagalögum, nær samþykki, breytt eða óbreytt, muni samvinnufélögin af eigin hvötum fylgja því fordæmi. Verði svo ekki er auðvitað hægur vandi fyrir Alþ. að koma slíku í kring með sambærilegum breyt, á lögum um samvinnufélög og e.t.v. yrði gerð á lögum um hlutafélög, er þetta frv. lýtur að.
Rétt er einnig að benda á að einmitt þessi sami háttur var á hafður í Noregi, þegar hlutafélagalögum var breytt þar árið 1971–1972 og það gert að skyldu að starfsmenn hlutafélaga í Noregi öðluðust rétt til þess að kjósa úr sínum hópi fulltrúa í stjórn þeirra. Þá var með vilja ekki gerð sambærileg breyt. á lögum um samvinnufélög, heldur beinlínis sagt í grg. með frv. því, sem samþ. var á norska Stórþinginu, að ef samvinnufélögin fylgdu ekki að eigin frumkvæði því fordæmi, sem löggjafinn var þar að setja, mundi það verða tekið til sérstakrar skoðunar og breyt. gerð á samvinnufélagalögunum um sambærilegt efni.
Um tilgang þessa frv., sem hér um ræðir, er óþarft að fara mörgum orðum. Megintilgangurinn er sá, að fyrsta skrefið verði stigið í þá átt að viðurkennt verði að sköpun verðmæta byggist framar öðru á vinnuframlagi manna og þeir, senn vinnuna leggi fram, eigi því að sjálfsögðu að hafa áhrif á ráðstöfun verðmætanna. Með því að veita vinnandi fólki rétt til aðildar að stjórn fyrirtækis, sem það starfar fyrir, er stefnt í átt til atvinnulýðræðis, en lýðræði í efnahags- og atvinnumálum er vitaskuld aðeins eðlilegt framhald sams konar þróunar á sviði stjórnmála og félagsmála. Á sama hátt og ekkert samfélag er frjálst þar sem frelsi er takmarkað við aðeins einstaka þætti mannlegra samskipta getur ekkert samfélag talist lýðræðislegt nema það sem virðir og viðurkennir sömu grundvallarreglur lýðræðis jafnt í efnahags- og atvinnumálum sem í félags- og stjórnmálum. Tilgangurinn með frv. þessu er sá, að fyrsta skrefið verði stigið í þá átt. Jafnvel þó að frv, yrði samþ. verði ekki hægt að segja að atvinnulýðræði væri á komið á Íslandi. Aðeins væri hægt að segja að fyrsta skrefið hefði verið stigið í þá átt.
Ég ætla ekki að tala frekar um almenn markmið með flutningi þessa frv. Í grg. með frv. því, sem ég gat um áðan, frv. til l. um atvinnulýðræði, sem við fluttum Alþfl.-menn í þessari d. í fyrra, var ítarlega um það atriði fjallað, og vil ég vísa til grg. og umr. sem urðu um atvinnulýðræði almennt á þinginu í fyrra og prentað er í þingtíðindum.
Meginatriðin eru náttúrlega þau, að hér er um einfalt mannréttindamál að ræða. Hér er um það að ræða að færa vinnandi fólki aukinn atkvæðisrétt til íhlutunar og áhrifa um málefni samfélags síns. Við skulum gera okkur grein fyrir því, að ekki er langt síðan það varð skilyrði fyrir kosningarrétti til sveitarstjórna og Alþ. að viðkomandi einstaklingur væri nokkurs konar hluthafi í þjóðfélaginu, að hann ætti ákveðnar lágmarkseignir til þess að hann gæti öðlast rétt til að kjósa fulltrúa til Alþ. eða sveitarstjórna. Fræg er sagan af því t.d. að Jón Sigurðsson forseti þótti ekki kjörgengur þar sem hann var ekki nægilega efnum búinn til þess að vera slíkur hluthafi í þjóðfélaginu, og sagan segir að stuðningsmenn hans hafi slegið saman og gefið honum litla jörð vestur á fjörðum. Þessi saga er raunar ekki rétt, en hún sýnir okkur að stærsti og mikilhæfasti stjórnmálamaður okkar Íslendinga, það lék vafi á því hvort hann væri kosningabær og kjörgengur vegna þess að hann þótti ekki nægilega stór hluthafi í þjóðfélaginu á þeim tíma. Það má segja að þetta ákvæði hafi verið numið úr kosningalögum fyrir allnokkru. Þó eimdi talsvert eftir af því að litið var þannig á, að menn yrðu að hafa eignast ákveðin veraldleg gæði til þess að fá notið pólitísks atkvæðisréttar. Eitt af fyrstu verkum Alþfl. á Alþ. var einmitt að afnema síðustu leifarnar af þeim efnalegu takmörkunum sem settar voru á atkvæðisrétt manna hvað pólitískum kosningum viðvíkur. Þess vegna er það mjög eðlilegt að einmitt sami flokkur, Alþfl., hafi nú forustu um það á Alþ. og frumkvæði um það að atkvæðisréttur verði færður út og látinn ná til fólks ekki aðeins varðandi pólitískar kosningar, heldur einnig varðandi áhrif á efnahagsog atvinnumál.
Ekki er réttlátt að hlutafjáreign í þjóðfélaginu sé skilyrði fyrir pólitískum atkvæðisrétti. Það er ekki heldur rétt að hlutafjáreign í fyrirtækjum sé skilyrði fyrir efnahagslegum eða atvinnulegum atkvæðisrétti. Hinn vinnandi maður leggur ekki minna fram, þvert á móti, hann leggur fram meira en sá sem aðeins Leggur fram fjármagn, peninga, dauða hluti, til framleiðslustarfanna. Þess vegna er rétt að hinn vinuandi maður hafi a.m.k. ekki minni rétt til áhrifa á þróunina í efnahags- og atvinnumálum en maðurinn sem aðeins nýtur atkvæðisréttar í krafti efnalegrar velgengni sinnar. Ef við teljum rétt og sjálfsagt atkvæðisrétturinn sé jafn á hinu pólitíska sviði, án tillits til þess hvaða þjóðfélagsstöðu maðurinn gegnir eða án tillits til þess hverjar eru hans efnalegu aðstæður, þá hljótum við einnig að vera sammála um að sömu grundvallarlýðræðisreglur eigi að ríkja í efnahags- og atvinnumálum. Þar eigi menn að hafa sem jafnastan rétt, án tillits til þess hvaða störfum þeir gegna í þágu atvinnulífsins, án tillits til þess hvaða eignir þeir hafa undir höndum. Jöfnum atkvæðisrétti í stjórnmálum hlýtur að fylgja jafn atkvæðisréttur í efnahagsmálum, vegna þess að til lengdar getur ekkert samfélag þrifist þar sem aðeins eiga að gilda lýðræðisleg vinnubrögð á ákveðnum, takmörkuðum sviðum samfélagsins, en gamaldags og úrelt viðhorf á öðrum jafnvel mikilvægari sviðum samfélagsins heldur en stjórnmálavettvangurinn er.
Þótt við Íslendingar getum staðist samjöfnuð við ýmsar nágrannaþjóðir okkar hvað varðar lýðréttindi á sviði stjórnmála og félagsmála er ástandið í þessum etnum, í atvinnu- og efnahagsmálum, svo forneskjulegt hjá okkur að um margt minnir á lénsskipulag á miðöldum. Á sama tíma og allir Íslendingar, án tillits til efna og ástæðna, eiga a.m.k. í orði kveðnu sama rétt til íhlutunar um opinber mál, um stjórn landsins og sveitarfélags síns, er hnefaréttur fjármagnsins algjörlega einráður um málefni atvinnulífsins. Þar er sá nánast algjörlega réttlaus sem aðeins hefur fram að bjóða orku hugar og handar. Ég vil taka það fram, að það er mikill misskilningur að afskipti ríkisvaldsins af efnahags- og atvinnumálum og starfsemi einstakra atvinnufyrirtækja breyti hér einhverju um. Þau afskipti, þ.e.a.s. afskipti ríkisvaldsins, geta verið góð eða ill, mikil eða lítil eftir atvikum, en þau geta aldrei komið í staðinn fyrir lýðræðisleg réttindi einstaklingsins til beinna áhrifa á atvinnumál og á stefnumótun þess fyrirtækis sem einstaklingurinn vinnur hjá. Ríkisvaldið getur ekki gætt hagsmuna starfsfólks fyrirtækja varðandi lýðræðislegan meðákvörðunarrétt með opinberri afskiptasemi af stjórnendum eða eigendum fyrirtækja fremur en ríkisvaldið getur tryggt hagsmuni sama fólks varðandi stjórn landsins með því t.a.m. að taka að sér að greiða fyrir það atkvæði í kosningum.
Atvinnulýðræði og ríkisforsjá í atvinnu- og efnahagsmálum er því tvennt ólíkt og fer oft alls ekki saman. Það, sem hið opinberlega vald hins vegar getur gert og á að gera, er að tryggja landsmönnum öllum jafnrétti til áhrifa í atvinnu- og efnahagsmálum sambærilegt því sem þeir njóta í félags- og stjórnmálum. Þetta þarf að sjálfsögðu að gera með sama hætti í báðum tilvikum, þ.e.a.s. með lagasetningu. Þannig hefur málum verið hagað í þeim nálægum löndum, sem vitnað hefur verið til þegar þessi atvinnulýðræðismál hafa verið til umr. hér á Íslandi. Reynsla okkar kennir okkur einnig að með þeim hætti verðum við Íslendingar að halda á málum, ef árangur á að nást. Aðrar leiðir skila engum árangri. Það sést best á því, að nú eru 12 ár liðin frá því að atvinnulýðræðismálum var fyrst hreyft hér á Alþ. Í öllum þeim tilvikum, sem slíkar till. hafa komið til afgreiðslu og umr. hér, hafa þær verið látnar óafgreiddar, t.d. með tilvísun til þess að verið væri að athuga möguleika á samkomulagi um þessi mál milli aðila vinnumarkaðarins.
Þrátt fyrir vilja Alþýðusambands Íslands og annarra launþegasamtaka til þess að samkomulag af slíku tagi gæti náðst í viðræðum aðila vinnumarkaðarins hefur aldrei af því orðið, og má t.d. segja að nefnd, sem sérstaklega var skipuð til þess árið 1973 að leita eftir slíku samkomulagi, hafi gefist algjörlega upp við störf sín. Mér er ekki kunnugt um að sú nefnd hafi haldið fund nú hátt í fjögur ár. Þetta er okkar reynsla af því að reyna að leysa þessi mál á þessum grundvelli sem hér um ræðir, þ.e.a.s. með samkomulagi í samningum milli aðila vinnumarkaðarins. Sama reynsla hefur einnig orðið í öllum öðrum löndum. Einmitt þess vegna hefur þar verið brugðið á það ráð að fela löggjafanum málið til úrlausnar, enda er hér um að ræða hreint og klárt löggjafaratriði sem er algjörlega sambærilegt við önnur slík um aukin lýðréttindi á sviði félagsmála eða stjórnmála.
Engum hefur komið til hugar, að t.d. pólitískur kosningarréttur eigi að vera samkomulagsatriði einhverra aðila úti í þjóðfélaginu. Allir eru sammála um að þær breyt. sem gerðar séu í þeim efnum, séu breyt, sem eigi að gera á lögum, sem þessi stofnun eigi að gera. Og auðvitað er hér um að ræða algjörlega sambærilegt mál. mannréttindamál sem Alþingi á að afgreiða. Að halda því fram að löggjafinn eigi ekki að hafa önnur afskipti af réttindum vinnandi fólks til lýðræðislegra áhrifa í efnahags- og atvinnumálum en þau að staðfesta samkomulag, sem e.t.v. kynni með tíð og tíma að vera gert milli verkalýðshreyfingar og atvinnurekenda, t.d. í tengslum við vinnudeilur, — að halda slíku fram er ósköp svipað og að segja að löggjafinn ætti ekki að hafa önnur afskipti af hugmyndum um að veita yngra fólki en tvítugu kosningarrétt en þau að staðfesta samkomulag, sem e.t.v. yrði einhvern tíma gert milli verkalýðshreyfingarinnar og ríkisvaldsins um það efni í tengslum við launamál, eða kannske milli stúdenta annars vegar og hæstv. menntmrh. hins vegar í tengslum við lánamálin.
Auðvitað er hér um að ræða pólitíska ákvörðun, réttindaveitingu sem einhverjir aðilar úti í þjóðfélaginu eiga ekki að taka í samningum, sem ekkert á skylt við samninga aðila vinnumarkaðarins um kaup og kjör. Hér er um að ræða réttindaveitingu, veitingu mannréttinda, sem Alþ. á að ákvarða. Að sjálfsögðu er rétt að Alþ. hafi samráð um slík mál t.d. við Alþýðusamband Íslands og önnur launþegasamtök. En fyrst og síðast er hér um að ræða verkefni Alþ., en ekki verkefni annarra aðila úti í samfélaginu, enda hefur bæði reynsla okkar og allra nálægra þjóða orðið sú, að slík vinnubrögð, þegar á að leggja það á herðar verkalýðshreyfingarinnar og vinnuveitenda að semja um slík mál, skila aldrei árangri.
Ég held ég þurfi ekki að halda langa tölu um hvernig þessu er fyrir komið í nálægum löndum. Flestallir þm. þekkja til þess. En það má rekja þessa sögu allt aftur til ársins 1912. Þá var byrjað að hreyfa þessum málum í Noregi, þeim málum sem verið er að ræða núna árið 1977 á Alþingi Íslendinga, og það er langt síðan sett voru lög, þæði í Noregi, Danmörku og Svíþjóð um ýmisleg réttindi launþegum til handa í þessa veru. Og nú hafa verið í gildi, eins og ég segi, frá árinu 1972 í Noregi lög um hlutafélög, þar sem sú skylda er lögð á herðar hlutafélaganna að veita starfsmönnum sínum beina aðild að æðstu stjórn viðkomandi fyrirtækja. T.d. er norska stórfyrirtækið Elkem-Spigerverket eitt af þeim fyrirtækjum sem frá árinu 1972 hafa haft fulltrúa starfsmanna sitjandi í æðstu stjórn sinni, en eins og menn vita er það þetta fyrirtæki sem Íslendingar eru að semja við um málmbræðslu á Grundartanga í Hvalfirði, þannig að a.m.k. þessum frændum okkar, Norðmönnum, sem við munum hefja samstarf við um atvinnumál innan tíðar eða raunar er þegar hafið, þeim kemur það sjálfsagt á óvart þegar þeir kynnast hvers konar fornaldarvinnubrögð eru hér viðhöfð hvað varðar rétt launþega til áhrifa í atvinnulífi.
Ég er hér t.d. með úrklippu úr Arbeiderblaðinu norska, frá 16. mars 1977, þar sem rætt er við bæði málmiðnaðarmenn og almenna ófaglærða verkamenn sem eiga sæti í æðstu stjórn Elkem-Spigerverket, og þeir lýsa reynslu sinni. Ég hef hér í höndum ýmis gögn, sem út eru gefin af menningar- og fræðslusambandi alþýðu í Noregi, eða sambærilegri stofnun við Menningar- og fræðslusamband alþýðu hér, þar sem eru leiðbeiningar til forustumanna verkalýðsfélaga, verkafólks, faglærðs og ófaglærðs, um hvernig bað á að fara að til þess að fá fulltrúa úr sínum hópi kjörna í stjórnir ýmissa helstu stórfyrirtækja Noregs. Ég er hérna með nýjar till., sem ræddar eru í norskri verkalýðshreyfingu, um breytingar á þessum málum, svo nokkuð sé nefnt.
Hér á Íslandi hefur verið dregið saman talsvert magn efnis með upplýsingum um hvernig þessum málum er hagað í næstu nágrannalöndum og var því lýst á Alþ. í fyrra og ætla ég mér ekki að rekja það frekar.
Það sem gerst hefur einna merkilegast erlendis í þessum málum nú upp á síðkastið er það, að í janúarmánuði s.l., í janúar árið 1977, rétt í þann mund sem 1. umr. fór fram um frv. til l. um atvinnulýðræði, sem ég minntist á hér áðan, kom út á vegum viðskrn. í London mikil skýrsla ásamt till. frá sérstakri nefnd skipaðri af verslunarráðherranum breska til þess að gera till. um skipan atvinnulýðræðismála í því landi. Hér er um að ræða talsvert mikla bók, tæplega 200 bls., þar sem gerð er úttekt á stöðu þessara mála í öllum nálægum löndum: Efnahagsbandalagslöndunum, Skandinavíulöndunum og víðar, rætt við fjölmarga forsvarsmenn bæði atvinnurekenda stórfyrirtækja og verkalýðshreyfingar í þessum löndum og gerð grein fyrir áliti þeirra á tilhöguninni í hverju landi fyrir sig. Þar er einnig að finna almennar niðurstöður um gildi atvinnulýðræðis, bæði fyrir einstaklinginn, fyrir verkalýðsfélögin, fyrir þjóðfélagið í heild og fyrir atvinnureksturinn, og er mjög athyglisverð lesning að kynna sér það, því segja má að þeir séu ekki síður ánægðir með þessa niðurstöðu, sem spáðu verst í upphafi, en hinir, sem bjartsýnni voru þegar þessu var hrundið af stað.
Þá er það einnig mjög athyglisvert í þessari skýrslu hvernig þessi breska nefnd, sem er allfjölmenn, með 12 eða 13 nm., í aðfararorðum sínum í skýrslunni líkir saman annars vegar baráttunni fyrir framförum í atvinnulýðræði, sem nú eiga sér stað á þessum árum og áratugum, og hins vegar baráttunni fyrir framför í pólitísku lýðræði, sem átti sér stað fyrir mannsaldri eða svo. Það eru t.d. teknar upp blaðaúrklippur og ummæli ýmissa mætra manna frá gengnum kynslóðum þar sem varað er mjög eindregið við því, að fólk, sem ekki sé nægilega ábyrgir þjóðfélagsþegnar, m.ö.o. fólk sem eigi ekki nægilega miklar eignir, sé ekl:i skráð fyrir nægilega miklum eignum, það öðlist rétt til áhrifa á stjórn landsins. Það er varað mjög við þessu, talað um að ef slík ósköp gerðust, að eignalaus verkamaður fengi kosningarrétt, fengi að kjósa sér fulltrúa á þing eða í sveitarstjórn, þá væri sjálfri hinni óskráðu stjórnarskrá Stóra-Bretlands hætt. Þá mætti búast við því, að á fáum árum mundi hrynja í rúst hið mikla breska heimsveldi og öll sú lýðræðisarfleifð, sem Bretar byggja á, ef þetta eignasnauða verkafólk fengi að greiða atkv. eins og betri borgarar Bretlands.
Nákvæmlega sams konar viðbárur eru nú hafðar uppi gagnvart framförum í átt til atvinnulýðræðis. Nú koma synir eða sonarsynir eða kannske sonarsonarsynir þessara sömu manna og hér var vitnað til til þess að lýsa því hvaða ósköp mundu henda ef hlutafjáreignalaus verkalýður í þjónustu einhverra stórfyrirtækja fengi að taka ákvarðanir um stefnu þessara fyrirtækja og ráðstöfun fjármála þeirra með svipuðum hætti og stóreignamaðurinn, sem ætti fyrirtækið og hefði byggt það upp, að því er manni skildist af eigin rammleik. Og það er mjög athyglisvert að lesa það í aðfararorðum þessarar bresku skýrslu, hvernig þeir bera þetta saman og líkja saman viðbárunum eða andmælunum, sem við þekkjum nú við framförum til efnahags- og atvinnulýðræðis, — hvernig þeir líkja því saman og stilla því upp við hliðina á andmælunum sem voru algeng fyrir 50 eða 100 árum gegn því að eignalaust fólk fengi að kjósa sér fulltrúa til Alþ. eða sveitarstjórna. Og auðvitað er þetta rétt ábending því að hér er um að ræða grein af sama stofni. Hér er um að ræða að rýmka atkvæðisrétt sem þegar er fenginn varðandi pólitískar kosningar, að rýmka hann svo úr verði efnahags- og atvinnulýðræði.
Það eru einnig ýmis nýmæli í sjálfum till. í þessari Bullock-skýrslu. Að vísu klofnaði nefndin í meiri hl. og minni hl., ekki um aðfararorðin, ekki um hinar almennu niðurstöður, heldur aðeins um leiðirnar til þess að ná því markmiði sem nefndin setti sér, að auka áhrif launþeganna á stjórn og ráðstöfun stórfyrirtækja. Nefndin klofnaði ekki um markmiðið, aðeins um leiðirnar til að ná markmiðinu. Og það er mjög athyglisvert að kynna sér till. þessarar nefndar um atvinnulýðræði eða um fyrirtækjalýðræði, eins og er e.t.v. réttara að orða það, vegna þess að þær eru talsvert frábrugðnar því sem við þekkjum t.d. frá næstu nágrannalöndum. T.d. eru áhrif verkalýðsfélaga gerð miklu meiri í till. þessarar bresku skýrslu heldur en þessi áhrif eru t.d. í Svíþjóð, Noregi og Júgóslavíu og Vestur-Þýskalandi. Það kemur m.a. til vegna þeirra sérstöku viðhorfa sem eru í Bretlandi, að ekki eru allir starfsmenn í stórfyrirtækjum félagsmenn í verkalýðsfélögunum. Talsvert stór hópur starfsmanna í fyrirtækjum er ófélagsbundinn. M.a. þess vegna hafa þeir valið þá leið að auka völd og áhrif verkalýðssamtakanna í þessum málum með því að láta ekki starfsmennina sjálfa kjósa fulltrúa í stjórnir fyrirtækjanna, heldur haga því á annan hátt. Í fyrsta lagi fer fram atkvgr. um það, hvort starfsmennirnir ætli að nota sér þennan rétt til að kjósa fulltrúa í stjórnir viðkomandi fyrirtækja, sem þessar till. mundu veita þeim. Ef niðurstaða slíkrar kosningar verður jákvæð, þ.e.a.s. ákveðið verður að nota þennan rétt, þá er það verkalýðsfélaganna að taka næsta skrefið og láta félagsmenn sína kjósa fulltrúa annað hvort úr röðum félagsbundinna manna eða helst úr röðum trúnaðarmanna á vinnustað til þess að setjast í stjórnir þeirra fyrirtækja eða skipa þá beint. Samkv. þessum till. nefndarinnar ætti verkalýðshreyfingin í Bretlandi t.d. að geta skipað stjórnarmenn í viðkomandi fyrirtækjum úr hópi verkafólks án þess að það færu fram kosningar um hvaða menn þar ættu að vera. Það er ekki skilyrði samkv. þessum till., svo dæmi sé nefnt, að stjórnarmennirnir starfi hjá fyrirtækinu, þeir gætu verið starfsmenn verkalýðsfélaganna, þeir gætu starfað hjá einhverjum öðrum fyrirtækjum o.s.frv.
Þessar till. eru athyglisverðar, einkum og sér í lagi vegna séraðstæðna í Bretlandi og vegna þess hve mikið kapp þær leggja á að styrkja völd og ítök verkalýðshreyfingarinnar sem stofnunar í bresku þjóðlífi. Hins vegar efast ég um að þessi aðferð henti vel íslenskum aðstæðum. Réttara væri að starfsfólkið kysi sína stjórnarmenn beint úr sínum hópi, þó að verkalýðshreyfingin hafi að sjálfsögðu hönd í bagga með því, eins og lagt er til í frv. því sem hér um ræðir.
Ég ætla ekki að fara öllu fleiri orðum um almenn markmið frv. eða þær hugmyndir og aðgerðir sem uppi eru í nálægum löndum um þetta efni, nema aðeins að vekja enn og aftur athygli á því, að jafnvel þó að við höfum reynt að feta í fótspor ýmissa nágrannaþjóða okkar varðandi félagsmál og stjórnmál og lýðræðislegar framfarir í þessum málaflokkum, þá hafa aðgerðir á sviði efnahags- og atvinnumála, sem eru skyldar þessum lýðræðislegu, pólitísku framförum, algjörlega setið á hakanum hér, og því miður hafa allt of litlar umr. og athuganir átt sér stað á þeim, bæði í röðum stjórnmálamanna, atvinnurekenda og verkafólks. E.t.v. hefur það verið vegna þess, hve við Íslendingar erum niðurnjörvaðir af umr. um bein kaup- og kjaraatriði, en höfum raunar ekki gefið okkur tíma til þess að ræða önnur atriði sem geta varðað almenna velferð launþega ekki síður, jafnvel frekar en hversu margar krónur þeir bera úr býtum fyrir unna vinnustund.
Frv., sem hér um ræðir, skýrir sig að mestu eða öllu leyti sjálft, enda eru ítarlegar útskýringar við hverja grein í grg. og ætla ég ekki að fara mörgum orðum um það.
1. gr. frv. er um stjórn hlutafélaga, hluthafafundi o.fl. Þær breyt., sem ætti að gera við þann kafla í hlutafélagalögunum, eru aðeins orðalagsbreytingar. Stafliður a er aðeins smávægileg orðalagsbreyting til þess að hægt sé að koma því við að kjósa stjórnarmenn hlutafélags annars staðar en á hluthafafundi, þ.e.a.s. á kjörfundi starfsmanna, og töluliður b er efnislega óbreyttur frá því sem nú er.
1. mgr. 32, gr. hlutafélagalaganna kveður á um hvaða skilmála menn verða að uppfylla til þess að geta verið kjörnir í stjórn hlutafélaga, telur upp sem skilmála að slíkur maður verði að vera lögráða og fjár síns ráðandi, eiga hlut í félaginu og fullnægja lögmæltum skilyrðum til þess að reka í sínu nafni þá atvinnu sem félagið rekur eða ættar að reka. Ef þessu væri ekki breytt yrði þetta líka að vera skilyrði gagnvart þeim starfsmanni sem kosinn yrði í stjórn hlutafélagsins af starfsmönnum þess. Því er gerð sú till. um orðalagsbreyt., að þessum skilmálum sé skipt í tvennt. Annars vegar séu þeir almennir skilmálar um stjórnarmenn í hlutafélagi, að stjórnarmennirnir séu lögráða og fjár síns ráðandi, og eigi þetta jafnt við um fulltrúa í stjórn kosna af hluthöfum og fulltrúa í stjórn kosna af starfsmönnum. Hins vegar bætast þau skilyrði við varðandi þá stjórnarmenn, sem kjörnir eru á hluthafafundi, að þeir eigi hlut í félaginu og fullnægi lögmæltum skilyrðum til að reka í sínu nafni þá atvinnu, sem félagið rekur og ætlar að reka o.s.frv. Hér er sem sé um orðalagsbreyt. að ræða sem ekki breytir neinu um stöðu stjórnarmanna, sem kjörnir eru af hluthöfum, frá því sem nú er.
Meginefni frv, er svo í 2. gr. þess, sem er á þá lund, að inn í hlutafélagalögin bætist sérstakur kafli, er hljóti fyrirsögnina: „Um aðild starfsmanna að stjórn hlutafélaga.“ Það er sagt í þessum kafla, í stuttu máli, að starfsmenn hjá hlutafélagi, sem er af vissri stærð, þ.e.a.s. þar sem 10 eða fleiri starfsmenn vinna, miðað við starfsmenn í hálfsdagsstarfi eða meira, — að starfsmenn slíks hlutafélags öðlist rétt til þess að kjósa úr sínum hópi a.m.k. tvo stjórnarmenn í hlutafélaginu, en þó aldrei færri en sem nemur 1/3 hluta stjórnarmanna. Hér er um það að ræða að starfsmenn öðlist rétt, — þeir eru ekki skyldaðir til þess að kjósa úr sínum hópi stjórnarmenn, heldur öðlast þeir slíkan rétt. Til þess að geta notað þennan rétt eru síðan ákveðin ákvæði í þessum kafla, en menn geta óskað hans með tvennum hætti: annars vegar ef meira en helmingur starfsmanna óskar skriflega eftir því við stjórn hlutafélagsins að fá að notfæra sér þennan rétt eða ef verkalýðsfélög þau, sem trúnaðarmenn eiga á vinnustað sem félagið starfrækir, óska þess. Sem sé, óskir geta komið ýmist frá starfsmönnunum sjálfum eða viðkomandi verkalýðsfélögum. Síðan eru ákvæði um að stjórnarmennirnir, sem kjörnir eru af starfsmönnunum, skuli sitja í stjórn viðkomandi hlutafélags með öllum sömu réttindum og aðrir stjórnarmenn, þ. á m. hafa sama kjörtímabil. Ég fer ekki frekar út í þessa sálma, nema hvað þessi ákvæði, sem lögð eru til í frv., eru mjög sniðin eftir norskum lögum um sambærilegt efni.
Nú er það svo, að lagt hefur verið fram í Ed. Alþ. frv. til l. um breyt. á lögum um hlutafélög, þar sem gert er ráð fyrir að endurnýja algjörlega lagasetningu um hlutafélög, sem er orðin, eins og ég sagði áðan, talsvert gömul. frá 27. júní 1921 að stofni til. Hér er um að ræða mjög miklar og víðtækar breyt. sem lagt er til að gerðar verði, — breyt. sem ég er sannfærður um að almennt njóta mikils fylgis, vegna þess að það mun vera flestra manna mál að hlutafélagalögin séu orðin gömul og úr sér gengin og þurfi að gera á þeim mjög verulegar breyt. til bóta, og slíkar breyt. er lagt til að gerðar verði í því stjfrv. sem hér um ræðir. Þar munu m.a. vera ákvæði sem tryggja minni hl. í hlutafélagi ákveðna aðstöðu til áhrifa sem skort hefur á í núgildandi lögum. Hins vegar er mér ekki kunnugt um að þar séu lögð til sambærileg eða sams konar ákvæði og frv, þetta gerir ráð fyrir. Ég mundi fagna því mjög ef sú n., sem um þessi mál fjallar í hv. Ed. og fær það frv. til meðferðar sem þar er til umr. og afgreiðslu, tæki af eigin hvötum eða að beiðni eða ósk hæstv. ráðh. einmitt þessi mál til athugunar og athugaði hvort ekki væri hægt að fella inn í það frv. efnisatriði þess frv. sem ég mæli fyrir hér. Verði sú ekki raunin mun ég að sjálfsögðu reyna að koma því fram með flutningi brtt. við það frv. þegar það kemur fram í þessari hv. deild.
Herra forseti. Ég hef þessi orð svo ekki fleiri, en legg til að að lokinni þessari umr, verði frv. vísað til 2. umr. og hv. allshn.