26.04.1978
Efri deild: 86. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3961 í B-deild Alþingistíðinda. (3102)
189. mál, búnaðarfræðsla
Frsm. (Steinþór Gestsson) :
Herra forseti. Ekki er það útilokað að mögulegt væri að fá mann sem héti Sæmundur, til þess að stjórna skóla í Odda aftur. Það þyrfti sennilega ekki að torvelda neitt stofnsetningu skóla og þess vegna ekki ástæða til að amast við svona hugmyndum. En það, að í 6. gr. er tilgreint hvar skólinn skuli vera, er einfaldlega. vegna þess að um það var á sínum tíma tekin ákvörðun, að þar skyldi skólinn vera. Sérstök nefnd var skipuð til þess að gera till. um það og ákvörðun var síðan tekin um að hann skyldi vera í Odda.
Það er náttúrlega eins og með fleiri ákvarðanir, sem menn taka, að þessu er hægt að breyta.
En ég hygg að þetta sé sett þarna inn fyrir það, að það er svo í gildandi búnaðarfræðslulögum. Ég hef ekki önnur svör við því, og ég er ekki að gera aths. við þá ráðstöfun.