26.04.1978
Efri deild: 86. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3962 í B-deild Alþingistíðinda. (3106)
170. mál, Þjóðleikhús
Utanrrh. (Einar Ágústsson) :
Herra forseti. Meðan hv. d. hefur ekkert annað að gera, þá getur hún lagt það á sig að hlusta á fáein orð frá mér nm þetta mál.
Það var í gær rætt um þessa grein ásamt öðrum brtt. frá hv. þm. Ragnari Arnalds. Ég sagði þá, að ég mundi að vissu leyti geta stutt sumar af þeim till. sem hann bar fram, Nú hefur hv. form. menntmn. þessarar d. lagt fram brtt. við 3. gr., sem ég tel koma nokkuð til móts við þær óskir sem settar hafa verið fram af hálfu Félags ísl. einsöngvara. Ég fyrir mitt leyti tel að ekki sé óeðlilegt að halda þarna orðinu „söngleiki“, eins og er í gildandi lögum, þó að „óperu“ sé þá bætt við. Maður verður að vona að það takist svo vel til, að hægt sé að framkvæma þessi lög, en í trausti þess lýsi ég því, að ég mun fylgja þessari brtt.