26.04.1978
Neðri deild: 83. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3978 í B-deild Alþingistíðinda. (3174)

276. mál, vöruhappdrætti Sambands íslenskra berklasjúklinga

Frsm. (Ólafur B. Óskarsson):

Virðulegi forseti. Fjh: og viðskn. þessarar hv. d. hefur rætt frv. um vöruhappdrætti Sambands ísl. berklasjúklinga.

Í aths. við lagafrv. þetta kemur fram að Samband ísl. berklasjúklinga var fyrst heimilað að reka vöruhappdrætti árið 1949 og síðan hefur þessi heimild verið framlengd á 10 ára fresti. Með frv. þessu er lagt til að heimildin verði enn framlengd til ársloka 1989. Ágóða af happdrætti þessu skal samkv. lögunum varið til þess að greiða stofnkostnað við byggingarframkvæmdir vinnuheimilisins að Reykjalundi, til uppbyggingar og rekstrar vinnustofa fyrir öryrkja og til annarrar félagsmálastarfsemi Sambands ísl. berklasjúklinga sem viðurkennd er af ríkisstj.

Óþarft er að fjölyrða um þá þýðingu sem þetta happdrætti hefur haft fyrir Samband ísl. berklasjúklinga og fyrir heilsugæsluna í landinu yfirleitt. Nál. er á þskj. 697, og n. leggur einróma til að frv. verði samþykkt.