03.11.1977
Sameinað þing: 13. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í B-deild Alþingistíðinda. (322)
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana
Gils Guðmundsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur, Fjórða ár ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar er hafið. Fjórða loforðasyrpan hefur verið þulin í eyru alþjóðar. Fjórða fjárlagafrv. liggur hér á borðum þm.
Fyrir tæpum fjórum árum komu tveir Matthíasar, hvor á fætur öðrum, upp í þennan ræðustól. Þeir voru helstu fjármálaspekingar Sjálfstfl. og eru það víst enn. Erindið hingað upp í stólinn var að lýsa hneykslun sinni og forundrun yfir því hófleysi vinstri stjórnarinnar að ætla sér að samþykkja fjárlög sem nálguðust 29 milljarða kr. Fullyrtu þessir menn, að lafhægt væri að lækka þessi fjárlög um 4–5 milljarða a.m.k.
Út á þessa fjármálaspeki auk annarra verðleika urðu Matthíasarnir báðir ráðh. í núv. ríkisstj. Senn verða afgreidd fjórðu fjárlög þessara snillinga og félaga þeirra, og það eru ekki 29 milljarða fjárlög, því síður önnur lægri, sem nú á að afgreiða. Nei, ólíklegt verður að teljast að hæstv. núv. fjmrh. sleppi með 129 milljarða fjárlög að þessu sinni. Þau verða líklega hærri. M.ö.o.: í stað 4–5 milljarða lækkunar hefur komið a.m.k. 100 milljarða hækkun.
Þegar núv. ríkisstj. tók við völdum héldu ýmsir að komin væri hin sterka borgaralega stjórn sem þeir höfðu þráð. Tveir stærstu stjórnmálaflokkar þjóðarinnar stóðu að ríkisstj. Hún hafði 42 þm. að baki og 2/3 hlutar kjósenda höfðu veitt þeim umboð í síðustu kosningum.
Hin nýja og að því er virtist sterka stjórn kvaðst til þess kjörin að snúast af alefli gegn verðbólgunni og leysa efnahagsvanda þjóðarinnar. Í dag mun það næsta útbreidd skoðun, ekki síður innan stjórnarflokkanna en utan, að sjaldan hafi setið hér dáðlausari ríkisstj. né slappari þingmeirihl. reikað um þessa sali. Og menn eiga ekki torvelt með að benda á staðreyndir: Ferföldun niðurstöðutalna fjárl. frá 1971 eða rúmlega það, geigvænleg skuldasöfnun erlendis, stóraukin skattheimta, 30, 40, jafnvel 50% árleg verðbólga.
En er nú alls kostar sanngjarnt að kenna dugleysi ríkisstj. og stjórnarflokka um þessa þróun? Var nokkurn tíma ætlun þeirra að hamla gegn verðhækkunum, draga úr þenslu? Var það ekki megintilgangurinn með ákvörðunum þessarar ríkisstj., þótt annað væri látið í veðri vaka, að tr,yggja með tiltækum ráðum öfluga aðstöðu þeirra þjóðfélagshópa sem sterkust eiga ítökin í stjórninni: handhafa auðmagnsins, þeirra sem hyggjast græða á vinnu annarra? Launamenn mega síst af öllu gleyma því, að þegar máttarstólpar Sjálfstfl. og Framsfl. leggjast á eitt og stjórna landinu saman er um að ræða ríkisstj. hins sameinaða fjármála- og atvinnurekendavalds á Íslandi. Það eru að sjálfsögðu hagsmunir atvinnurekenda og stórfyrirtækja, burðarásanna í valdakerfi stjórnarflokkanna, sem núv, ríkisstj. hefur verið að efla og tryggja allan þennan tíma, og í því efni hefur henni óneitanlega orðið töluvert ágengt.
Er það ekki deginum ljósara, að í stað þess að draga úr verðbólgunni hefur þessi ríkisstj. beinlínis rekið verðþenslustefnu, framkvæmt markvissa verðhækkana- og skattahækkanapólitík til þess að rýra rauntekjur launafólks, til þess að flytja milljarðatugi í þjóðfélaginu frá hinum vinnandi manni til handhafa auðmagns og fyrirtækja. Og hefur ríkisstj, ekki verið býsna skelegg í látlausri styrjöld sinni við hagsmunasamtök launafólks? Og þó að hæstv. ríkisstj. hafi ekki hrósað sigri í síðustu átökum við launafólkið, hvorki við verkalýðshreyfinguna í vor né samtök opinberra starfsmanna í haust, þá var viljaleysi ekki um að kenna. Skýringin er einfaldlega sú, að þessi tvenn fjöldasamtök launþega eru orðin svo sterk að það er ekki hægt og á ekki heldur að vera hægt að stjórna þessu landi í fullri andstöðu og jafnvel fjandskap við fólkið sem þjóðarauðinn skapar.
Óneitanlega er það nokkuð mikil kröfuharka hjá köppunum í hægra armi Sjálfstfl. sem nú húðskamma ríkisstj. sína fyrir undanlátssemi við launafólk, fyrir lélega frammistöðu í þágu viðskiptalífsins, fyrir of lítið athafnafrelsi fjáraflamanna. Þetta er mesta ræktarleysi, því að ég fæ ekki betur séð en ríkisstj. hafi gert það sem hún gat fyrir fjármálafólkið — viljann skorti ekki.
Það er svo annað mál, að hinir fjölmörgu launþegar, sem veittu núverandi stjórnarflokkum brautargengi við kjörborðið fyrir rúmum þremur árum, hafa fengið mörg og mikilvæg tækifæri til þess að sjá í réttu ljósi þau stéttaátök sem eiga sér stað á Íslandi um þessar mundir. Og hafi ýmsir þeirra haldið, eins og ástæða er til að ætla, að flokkar stórfyrirtækja og peningamanna væru svo rúmgóðir og forustumennirnir svo víðsýnir að þeir tryggðu jafnt hag fólksins og fyrirtækjanna, þá ættu þeir nú að vera reynslunni ríkari. Ég veit að ýmsir stjórnarþm. bíða með nokkrum geig eftir dómi fólksins — vonandi ekki að ástæðulausu.
Þegar núv. ríkisstj. var mynduð kom það engum á óvart að broddar Sjálfstfl. sæktu það fast að komast á ný í stjórnarráðið og hnekkja stefnu vinstri stjórnarinnar á sem flestum sviðum. Hitt þótti mörgum torskildara, hvers vegna leiðtogar Framsfl. ákváðu að harðlæsa öllum hliðum sem leitt gætu til áframhaldandi vinstra samstarfs, en vörpuðu sér nær umsvifalaust í fletið til íhaldsins, Þeir tóku að vísu að nafninu til þátt í stjórnarmyndunarviðræðum við verkalýðsflokkana, en notuðu fyrsta tækifæri til að slita þeim og semja við Sjálfstfl. Þeir samningar tókust á undraskömmum tíma og var vist aldrei deilt um málefni, heldur aðeins um ráðherrastóla, þar sem allt féll þó í ljúfa löð samkv. helmingaskiptareglu. Var margur stuðningsmaður Framsfl. meira en lítið undrandi á því, hve áhugi og raunar ákafi forustumanna flokks þeirra var mikill að mynda stjórn með Sjálfstfl. Slík virtist óþreyja þessara framsóknarhöfðingja í tilhugalífinu að helst varð lýst með orðum Þrymskviðu:
„Át vætur Freyja
átta nóttum,
svo var hún óðfús
í Jötunheima.“
En oddvitar Sjálfstfl. sáu til þess, að ekki yrðu Framsóknarleiðtogarnir án allrar næringar. Þeir máttu gera svo vel að éta ofan í sig drjúgan hluta af stefnu flokksins og læra jafnframt að halda uppi vörnum fyrir algerlega gagnstæða stefnu sem nú skyldi um flest verða stefna hinnar nýju ríkisstj.
Hvergi hefur samvinna Framsóknar við íhaldið tekið á sig átakanlegri mynd en í herstöðvamálinu. Þar féllust Framsóknarforingjarnir á að sporðrenna flokksstefnunni eins og hún lagði sig, en tóku jafnframt að sér að framkvæma algerlega gagnstæða stefnu. Þær eru nú orðnar býsna margar sendiferðirnar sem hæstv. utanrrh. Einar Ágústsson hefur farið síðustu þrjú árin til að framkvænta stefnu Sjálfstfl. í herstöðvamálinu. En a.m.k. jafnoft ef ekki oftar hefur ráðh. lýst því yfir, að þetta sé ekki sinn vilji, hann sé enn sama sinnis og á vinstristjórnarárunum. Hæstv. utanrrh. er nýkominn úr einni Bandaríkjaförinni, þar sem honum var gert að ræða við hershöfðingja og skoða hersveitir og hergögn. Þá mátti hann og enn einu sinni lýsa fyrir stjórnmálamönnum vestur þar hersetustefnu Sjálfstfl., stefnunni sem ríkisstj. Íslands fylgir nú, en hlaut að þegja þunnu hljóði um eigin skoðanir á því máli. Minna þessar píslargöngur Einars Ágústssonar átakanlega á það, þegar Sturla Sighvatsson var leiddur berfættur milli allra kirkna í Rómaborg, eins og segir í Sturlungu: „Bar hann það drengilega, en flest fólk stóð úti og undraðist, barði á brjóstið og harmaði er svo friður maður var svo hörmulega leikinn.“
Ég vék að því áðan, að hvað eftir annað á valdaferli sínum hefur núv. ríkisstj, staðið í harðvítugum átökum um kaup og kjör við allan þorra þess fólks sem starfar hjá öðrum og tekur laun fyrir vinnu sína. Í hvert einasta skipti hefur staðið þannig á, að launafólkið hefur veríð að reyna að ná til baka hluta þeirrar kjaraskerðingar sem stjórnarstefnan hafði yfir það kallað. Undanfarna mánuði hafa málpípur ríkisvalds og atvinnurekenda klifað á því, að orsök vaxandi óðaverðbólgu séu samningar þeir við verkalýðshreyfinguna sem gerðir voru s.l. vor, og vart mun hörgull á því næstu vikurnar að margvíslegar verðhækkanir verði taldar afleiðing nýgerðra samninga við opinbera starfsmenn, Það er því nauðsynlegt að fara um það nokkrum orðum, hvort réttara sé að þessir kjarasamningar launafólks séu hinn eiginlegi verðbólguvaldur eða einungis óhjákvæmilegt andsvar við verðbólgustefnu ríkisstj. og bein afleiðing af henni.
Enda þótt þjóðartekjur lækkuðu lítið eitt á árunum 1974 og 1975, borið saman við metárið 1973, réttlætti það ekki á nokkurn hátt þá gífurlegu kjaraskerðingu sem ríkisstj. knúði fram með því að margfella gengið, stórhækka allt verðlag og afnema jafnframt vísitölutryggingu á kaupi. Það er og staðreynd, sem launþegar ættu að muna, að ekki voru allir látnir taka á sig fórnir vegna þeirra efnahagserfiðleika, sem komu upp árin 1974 og 1975. Rekstrarhagnaður stórfyrirtækja var mikill árið 1975 og hann var enn meiri í fyrra. Enginn heyrði þess getið, að milliliðnum væri ætlað að færa fórnir, ekki bönkum eða vátryggingafélögum, ekki olíufélögum. Viðskipta- og þjónustufyrirtæki, einkum hin stóru, græddu samkv, eigin framtali meira en nokkru sinni fyrr.
Nú um hríð hefur engum utanaðkomandi efnahagsáföllum verið til að dreifa. Árið 1976 jukust þjóðartekjur um 5.4% og aukast að líkindum á þessu ári um 7%. Við framleiðum meira, búum við hærra afurðaverð en nokkru sinni fyrr.
En það hefur hins vegar verið stefna ríkisstj., að allt mætti hækka nema kaupið. Þrátt fyrir síhækkandi afurðaverð átti fólkið að búa áfram við kjaraskerðinguna miklu, 20–30%, sem knúin var fram árin 1974 og 1975. Það er eins og segir í frægri bók: „Dollarinn skal standa.“
En launafólkið, jafnt innan verkalýðshreyfingar sem samtaka opinberra starfsmanna, seinþreytt til vandræða, snerist loks til varnar og hefur nú hnekkt að nokkru kjaraskerðingu ríkisstj. og skjólstæðinga hennar, atvinnurekenda og milliliða. Stéttarfélögum hefur verið sá einn kostur nauðugur að knýja fram umtalsverðar launahækkanir til þess að mæta að nokkru þeirri dýrtíð sem verðbólgustefna ríkisstj. hefur haft í för með sér. Athyglisverðar hugmyndir og ábyrgar till. verkalýðshreyfingarinnar um kjarabætur að hluta til í öðru formi en hækkuðu kaupi voru í vor að engu hafðar og fengust ekki ræddar af ríkisvaldsins hálfu. Var þó um að ræða viðleitni til að leita að lausn sem ekki væri verðbólguhvetjandi, en ríkisstj. var ekki til viðtals um neitt slíkt.
Þegar málpípur ríkisvaldsins og atvinnurekenda koma nú og segja: Það eru samningar verkalýðshreyfingarinnar frá í vor og opinberra starfsmanna frá í haust sem valda því að farið er að spá 50–60% verðbólgu á næsta ári — hljóta svör fólksins að vera eitthvað á þessa leið: Ekki bera almennir launamenn ábyrgð á því að gengið hefur verið fellt stórlega, að söluskattur hefur verið hækkaður, að sérstakt vörugjald hefur verið sett á og margframlengt. Ekki er launamönnum um að kenna þegar sjálft ríkisvaldið og ríkisfyrirtækin hafa gengið í fararbroddi um hækkanir á hvers konar vörum og þjónustu. Ekki bera launamenn ábyrgð á því að æ stærri hluti þjóðartekna hefur verið látinn streyma til stórfyrirtækja og milliliða. Ekki er það sök launafólksins þótt óhemjufjármunir hafi farið í stjórnlaust og lítt arðbært fjárfestingarkapphlaup ríkisins sjálfs, heildverslana, banka, umboðsaðila, tryggingafélaga, olíufélaga, flugfélaga, skipafélaga og einstaklinga. Steinsteypumusteri peningafurstanna hafa risið hvert á fætur öðru og eru mörg svo tilkomumikil að Morgunblaðshöllin hérna niðri við Aðalstræti fer að minna á gamlan hrútakofa borið saman við öll þau herlegheit.
Rétt er það, að launafólkið í landinu hefur í krafti samtaka sinna rétt hlut sinn að nokkru, eins og óhjákvæmilegt var. En hversu lengi endist slík leiðrétting? Er ekki þegar farið að hóta launafólki að kaupmátturinn verði á ný stórlega skertur? Örlaði ekki á slíkri hótun í stefnuræðu hæstv. forsrh. hér áðan? Og hversu dýrt getur það ekki orðið launafólkinu sjálfu og þjóðfélaginu öllu að neyðast til að heyja látlausa styrjöld um kaupmáttinn við sjálft ríkisvaldið? Eru engar aðrar leiðir til? Ég fullyrði að þær eru til og meira að segja vel færar, ef launþegar vilja fara þær eða þegar þeir vilja fara þær. Frumskilyrðið er að launafólkið hætti að styðja til valda þá flokka, sem eru í grundvallaratriðum andvígir kjarabaráttu launafólks, en taki að standa saman í eigin stjórnmálasamtökum, taki að ráða mestu um það sjálft hvernig þessu landi er stjórnað.
Ég held að naumast sé annað verkefni brýnna innan launþegasamtakanna en að gera sem flestum grein fyrir mikilvægi þess að hætta að styðja stéttaandstæðing til valda, en margefla þess í stað eigin samtök, bæði hin faglegu og hin pólitísku ekki síður. Þess er og að vænta að fólk dragi rétta lærdóma af stefnu stjórnarflokkanna, eins og hún er í reynd, og látlausri styrjöld þeirra við alþýðu. Sú staðreynd blasir við, að launþegar geta ekki rétt hlut sinn til frambúðar með kjarasamningum einum. Þeir verða einnig að smiða sér þau pólitísku vopn sem duga.
Barátta launþega að undanförnu við atvinnurekendur og ríkisvald hefur veríð lærdómsrík. Í ljós hefur komið, hversu háskalegt það er, þegar þjónar atvinnurekenda og óvinveitts ríkisvalds koma ár sinni fyrir borð innan launþegasamtakanna sjálfra. Þá er einatt hætta á ferðum. Frá mörgum flugumanni segir í fornum ritum. Einn þeirra var Þorbjörn rindill. Hann gerðist þjónn Guðmundar ríka og var falið að koma sér í mjúkinn hjá andstæðingi hans til þess að geta dregið þar lokur frá á örlagastundu. Sagan endurtekur sig. Íslensk launþegasamtök hafa síst af öllu farið varhluta af slíkum sendingum, og hefur hrekklaust fólk einatt verið helst til seint að átta sig á þessum fyrirbærum. Einn er þó sá áttaviti sem teljast má býsna öruggur. Það er aðalmálgagn Þorbjarnar rindils og Guðmundar ríka, Morgunblaðið. Kjass og blíðmælgi úr þeirri átt í garð áhrifamanna innan launþegahreyfingar ættu a.m.k. að vekja efasemdir og spurningar. Á hinn bóginn má hiklaust treysta því, að þegar fyrrgreint málgagn og önnur af svipuðum toga ráðast af mestu offorsi á forustumenn verkalýðs og annarra launþegasamtaka, þá eru þeir á réttri leið. Í síðasta mánuði hlotnaðist oddvitum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja sá sómi að vera hrakyrtir í Morgunblaðinu dag eftir dag. Er það ólíkt meiri og einlægari viðurkenning á myndarlegri frammistöðu en stórriddarakross með stjörnu.
Það er vafalaust að verulegur meirihluti íslenskra ríkis- og bæjarstarfsmanna hefur kosið núverandi stjórnarflokka við síðustu kosningar. Þessir flakkar hafa einnig átt mikið fylgi meðal verkalýðs og annarra launþega. Ekkert vil ég um það fullyrða, hvort einhver umtalsverð breyting hefur orðið á þessu. Hitt þykir mér sennilegt, að látlaus styrjöld núv. ríkisstj. og flokka hennar við nær allt launafólk í landinu hafi komið ýmsum til að hugleiða rækilegar en áður samhengið milli kjarabaráttunnar og stjórnmálaátakanna. Sé þessi grunur minn réttur, kann að vera að eitthvað fækki þeim launþegum, sem styðja flokka atvinnurekenda til áhrifa og valda. Margur maðurinn í röðum opinberra starfsmanna kynntist nýlega í fyrsta sinn stéttabaráttu af eigin raun, og hann er vís til að draga af þeirri reynslu gagnlegar ályktanir.
Íslensk verkalýðshreyfing og opinberir starfsmenn eiga að líkindum þróttmeiri stéttasamtök um þessar mundir en löngum fyrr. En á vettvangi stjórnmálanna skortir enn mikið á að alþýða landsins hafi smíðað sér þau vopn sem bíta nógu vel. Um þessar mundir er Alþb. sá stjórnmálaflokkur á Íslandi sem einn virðist hafa skilyrði til að verða sú stóra pólitíska fylking hins vinnandi fjölda sem á næstu árum kynni að geta boðið flokkum auðstéttarinnar byrginn. Þessa góðu haustdaga hafa komið til liðs við okkur í Alþb. margir nýir félagar víðs vegar um land, reiðubúnir að leggja hönd á plóginn. En þeir þurfa að verða miklu fleiri. Við Alþb.- menn fögnum hverjum liðsmanni sem vill vinna að því með okkur af einlægni og einbeitni að gera þennan eina umtalsverða flokk íslenskra sósíalista, íslensks launafólks, Alþb„ öflugri og betri flokk, hvassara vopn í baráttu alþýðu fyrir fegurra mannlífi, fyrir réttlátara þjóðfélagi á Íslandi.