26.04.1978
Neðri deild: 85. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3984 í B-deild Alþingistíðinda. (3241)

121. mál, áfengislög

Frsm. (Ellert B. Schram) :

Virðulegi forseti. Hv. allshn. hefur haft þetta mál til meðferðar og hefur eftir að hafa athugað það ákveðið að mæla með samþykkt þess.