26.04.1978
Neðri deild: 85. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3991 í B-deild Alþingistíðinda. (3246)
268. mál, Iðntæknistofnun Íslands
Frsm. minni hl. (Benedikt Gröndal) :
Virðulegi forseti. Aðeins til skýringar er rétt að taka fram, að ég stend einn að minnihlutaáliti um málið, en hinir um. mynda meiri hl. og standa svo sumir að brtt.
Ég er algerlega samþykkur meginefni og tilgangi þessa frv. í þeirri von, að öflug tæknistofnun verði íslenskum iðnaði stoð og stytta í framtíðinni. Því miður hafa þær stofnanir, sem hér á að sameina, ekki getað samþykkt það allar, en við skulum láta í ljós þá von, að engu að síður takist vel til um þessa stofnun og að sá ágreiningur leysist fljótlega.
Nál. bæði meiri hl., og minni hl. um þetta frv. voru skrifuð og lögð fram um síðustu helgi. Þá stóðu sakir svo, að ekki hafði verið flutt frv. um jöfnunargjald, sem kom fram á fundinum í dag, fyrir nokkrum klukkustundum, en þetta gjald er veigamikið atriði í frv. um tæknistofnun. Ég sá mér því ekki fært annað en benda á þetta með sérstöku minnihlutaáliti, þar sem ég tel að það sé fráleitt að Alþ. samþykki sem þýðingarmikinn tekjustofn fyrir veigamikla stofnun skatt sem ekki er til og þá hafði ekki einu sinni verið lagt fram frv. um og stjórnarandstaðan a. m. k. hafði í einstökum atriðum ekki hugmynd um. Við þessar aðstæður var ómögulegt að mér fannst, að leggja blessun sína yfir 9. gr. Nú eru þessar aðstæður óðum að breytast, þó að ekki hafi verið langur tími til þess að átta sig á jöfnunargjaldinu þessar þrjár klukkustundir eða svo síðan frv. um það kom fram.
Í sambandi við jöfnunargjaldið munu vakna margar spurningar. Ég mun leitast við að ræða það ekki nema bara í beinu samhengi við frv. um tæknistofnunina því að það verður frekar til umr. síðar.
Í fyrsta lagi á jöfnunargjaldið ekki að ganga til tæknistofnunar eða iðntæknistofnunar, eins og ég vona að hún verði kölluð, fyrr en í byrjun næsta árs. Samt sem áður á að byrja að innheimta þetta gjald og munu koma inn um 678 millj. kr., að því er áætlað er, á þessu ári. Þá vaknar sú spurning, hvernig iðnaðurinn eigi að njóta þess eða hluta af því. Nú stendur í frv. um jöfnunargjaldið, að á þessu ári muni því fyrst og fremst verða varið til þeirra viðfangsefna á sviði iðnaðar sem upp eru talin í fjárl. fyrir árið 1978. Öll viðfangsefni á iðnaðarsviði, sem fé er veitt til í fjárl., þar með talið iðnaðar- og orkumálaráðuneytið, kosta 727 millj. eða eitthvað nálægt því, svo að ríkissjóður fær öll útgjöld sín, sem eru á iðnaðargreininni í fjárl., að heita má upp bætt með þessu gjaldi. Þá vaknar sú spurning, sem rædd er í grg. þessa sama frv., hvort ætlunin sé að greiða iðnaðinum uppsafnaðan söluskatt. Stendur þar, að það muni verða gert, svo að ætla má að þessir peningar, sem þarna renna inn í ríkissjóð, muni þá fara til þess. Það er kannske ekki tímabært að spyrja um, hvernig ætlunin sé að framkvæma það, fyrr en hitt frv. verður rætt.
Þá vil ég benda á að jöfnunargjaldið á ekki að vera í gildi nema til ársloka 1980 og iðntæknistofnunin gefur því ekki notið þess sem tekjustofns nema í tvö ár. Að því leyti til finnst mér að tekjuöflunargreinin öll sé nokkuð völt og veiti stofnuninni ákaflega lítið framtíðaröryggi. Að vísu vitum við ekkert um það í dag, hversu mikið af þessu gjaldi stofnunin á að fá. Þær þrjár stofnanir, sem verið er að sameina í eina, fá ekki nema 276 millj. á þessu ári samkv. fjárl., en jöfnunargjaldið er áætlað að gefi um 1 milljarð á ársgrundvelli þegar það kemur til framkvæmda. Spurningin er þá: Á þessi skemmri skírn að duga eða hafa forráðamenn iðnaðarmála gert sér einhverja grein fyrir því, hvernig þessi stofnun á að halda áfram að vaxa í sama mæli eftir þessi fyrstu tvö ár? Ég verð að segja, að mér finnst þetta allt vera nokkuð laust í reipunum og væri ekkert óeðlilegt þó að iðnaðurinn væri ærið tortrygginn þegar ekki er betur um hnútana búið en þetta.
Ég vil sem sagt benda á að þrátt fyrir þessar skýringar, sem fram hafa komið, koma margar spurningar upp í huga manns varðandi tekjuöflunina og þá sérstaklega jöfnunargjaldið, t. d. hvernig meðferð þess á að vera á þessu ári. Hér er ekki um neina smápeninga að ræða. Það á að taka af almenningi 678 millj. kr. á þessu ári í hækkuðu verði á innfluttri iðnaðarvöru. Ég er hins vegar alveg sammála því, að grundvallarreglan um áhrif söluskattsins á þessi mál er rétt, en það eru þessar tvær hliðar á málinu, að peningarnir verða teknir af almenningi í landinu og svo milljarður á næsta ári eftir þeirri áætlun sem hér er um að ræða.
Virðulegi forseti. Ég hef áskilið mér rétt til þess að fylgja brtt. og hef raunar gerst meðflm. með hv. 3. þm. Reykv., Vilborgu Harðardóttur, að þremur till., sem hún mun gera hér grein fyrir á eftir og ég þarf því ekki að fjölyrða um. Ég vil taka það fram, að ég tel að nafnið eigi að vera Iðntæknistofnun Íslands, en ekki tæknistofnun, því að það er tækni víðar en í iðnaði. Ég tel að það sé til bóta, að deildaskiptingin sé skilgreind betur, og ég tei mjög þýðingarmikið að fulltrúi starfsfólks verði í stjórn þessarar stofnunar.