26.04.1978
Neðri deild: 85. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3993 í B-deild Alþingistíðinda. (3247)

268. mál, Iðntæknistofnun Íslands

Vilborg Harðardóttir:

Forseti. Ég vil gjarnan byrja á að leiðrétta þann misskilning, að ég hafi staðið að minnihlutanál. Ég stóð einmitt að meirihlutanál. Það er vegna þess að ég er í meginatriðum samþykk stefnu frv. þótt ég hafi flutt nokkrar brtt.

Eins og hv. þm. Benedikt Gröndal benti á, þá var svolítið vafamál hvort hægt væri að fylgja þessu frv. eins og að því var staðið í sambandi við tekjurnar. Ég vil því gjarnan gera fyrst grein fyrir brtt. minni á þskj. 711, um tekjurnar. Hún hljóðar svo:

„Við 9. gr. Upphaf greinarinnar orðist svo: Tekjur stofnunarinnar skulu vera sem hér segir:

a) Beint ríkisframlag á fjárlögum, sem skal nema 0.3–0 6% af áætluðu framleiðsluverðmæti íslensks iðnaðar (vergum tekjum á tekjuvirði) árið á undan fjárlagaárinu, enda hafi iðnrn. samþykkt starfsáætlun stofnunarinnar. Liðir c), d) og e) breytist aftur í b), c) og d).“

Það er rétt að segja frá því, að þessi till. um tekjuöflun er samhljóða því er var í frv. sem hv. þm. Magnús Kjartansson flutti fyrr í vetur, reyndar bæði á síðasta þingi og þessu, og upphaflega var flutt á 94. löggjafarþingi af iðnn. Nd. að beiðni þáv. iðnrh. og er 12. mál Nd. Ég bað um það við 1. umr. þessa máls, að n. athugaði þetta frv. um leið og hið nýja. Það hefur hún vinsamlega gert, eins og líka sjálfsagt er. En ég verð að átelja mjög þau vinnubrögð í þessu nýja frv. hæstv. ráðh., að þar er gert ráð fyrir sem tekjustofni hluta af jöfnunargjaldi sem er ekki í gildi, hvorki er í gildi né hafði séð dagsins ljós á Alþ. þegar frv. var lagt fram. ekki heldur þegar það var afgreitt í n. Við höfum fengið það hér á borðið hjá okkur í dag, og þó að ég hafi ekki athugað það náið, ekki haft tækifæri til að lesa mjög vel aths. við frv., þá þarf ekki annað en lesa 3. gr. þess til þess að sjá að þarna er allt mjög óráðið og ótilgreint. Það er sagt að tekjum af jöfnunargjaldi skuli ráðstafað í fjárl. ár hvert að hluta til eflingar iðnþróunar. Það er sem sagt ekki tiltekið að hvaða hluta né hvernig, og stendur ekkert um að ráðstafa eigi einhverju af þessum hluta til tæknistofnunarinnar. Þm. hafa því enn sem komið er ekki nokkra einustu hugmynd um hvernig gjaldið verður lagt á, hversu hátt það verður né hvernig því verður varið að öðru leyti. Mér finnst að ekki sé hægt að ætlast til þess, að Alþ. samþykki sem tekjustofn nýrrar stofnunar skattheimtu sem svona litlar upplýsingar liggja fyrir um. Þess vegna hef ég endurflutt till. frá fyrra frv., og ég vildi gjarnan fá að lesa úr grg. með henni á þskj. 12, en þar segir um þennan tekjustofn, sem ég tek til hérna, þ. e. a. s. beint ríkisframlag í ákveðinni prósentu af áætluðu framleiðsluverðmæti íslensks iðnaðar, — þar segir svo, með leyfi forseta:

„Rétt þykir að tiltaka neðri mörk ríkisframlags til þess að tryggja stofnuninni eðlilegt rekstraröryggi. Jafnframt þykir rétt að gera í lögum ráð fyrir nokkrum sveigjanleika í stærð framlagsins, t. d með tilliti til breytilegs ástands í efnahagsmálum. Slíkur sveigjanleiki er annars ekki verulegur að því er varðar ríkisstofnanir yfirleitt, því að löggjöf leyfir mjög litið svigrúm til breytinga á starfsmannahaldi þeirra. Mörk þau, sem frv. gerir ráð fyrir um fjárveitingar hins opinbera, hafa fyrst og fremst stefnumarkandi gildi. Aðhald verður hins vegar áfram í höndum rn. og auk þess hjá iðnaðinum sjálfum vegna áhrifa hans í stjórn og í skorum.“ — Ég skal taka það fram, að gert er ráð fyrir sérstökum skorum í starfsemi stofnunarinnar í fyrra frv. — „Að öllu athuguðu tekur fjárveitingavaldið því ekki á sig meiri eða ósveigjanlegri skuldbindingar með samþykkt þessa frv. en með hefðbundinni lagasetningu um svipaðar stofnanir.

Þar sem Iðntæknistofnun er ætlað að stuðla að íslenskri iðnþróun, sem birtist m. a. í framleiðslumagni, þykir eðlilegt að miða tekjur stofnunarinnar að einhverju leyti við það. Líklega væri eðlilegast að miða við virðisauka iðnaðarins (ratne added, verðmætasköpun). Sá hængur er þó á slíkri viðmiðun, að tölur um verðmætasköpun atvinnuvega á hverju ári liggja ekki fyrir fyrr en alllöngu eftir á. Þess vegna hefur sá kostur verið valinn að miða við framleiðsluverðmæti iðnaðar, en það er að sjálfsögðu nokkuð tengt verðmætasköpuninni. Nægilega áreiðanlegar tölur um framleiðsluverðmæti eiga að liggja fyrir í lok hvers árs, þ. e. áður en gengið er frá fjárlögum næsta árs, svo hægt sé að framkvæma ákvæði frv. snurðulaust “

Það er rétt að benda á að í þeim umsögnum um frv., sem n. hafa borist og form. n. hefur þegar gert grein fyrir, er yfirleitt lögð mjög þung áhersla á örugga fjármögnun stofnunarinnar og bent á víða að tekjuliðurinn sé alls ekki nægilega hugsaður og skýrari mörkunar fjármögnunar sé mikil þörf.

Aðrar brtt., sem ég hef flutt ásamt hv. þm. Benedikt Gröndal, varða í fyrsta lagi nafn stofnunarinnar. Brtt, er svo hljóðandi og er við 1., 5. og 11. gr., ákvæði til bráðabirgða og fyrirsögn: „Nafn stofnunarinnar verði Iðntæknistofnun Íslands.“

Þar sem lagafrv. á að öllu leyti við iðnað, stofnuninni er ætlað að annast alhliða tækniþjónustu í þágu iðnaðar og hún heyrir undir iðnrn. teljum við að nafnið Tæknistofnun Íslands sé alls ekki nógu afmarkað. Og eins og hv. þm. Benedikt Gröndal benti á, þá nær tækni til margra annarra þátta en iðnaðar.

Við 3. gr. frv. höfum við flutt svo hljóðandi brtt.:

„Upphaf greinarinnar orðist svo:

Stofnunin skiptist í aðaldeildir og sérdeildir.

Aðaldeildir séu fyrst um sinn þessar:

Iðntæknideild, sem annast tækniþjónustu við framleiðslu- og þjónustuiðnað.

Byggingatæknideild, sem annast tækniþjónustu við byggingaiðnað.

Stjórnunarmáladeild, sem annast þjónustu við allan iðnað á sviði stjórnunarmála og framleiðsluhagræðingar. Enn fremur sér deildin um skipulagningu og framkvæmd stöðlunarmála.

Fræðsludeild, sem skipuleggur og hefur umsjón með fræðslustarfsemi iðntæknistofnunarinnar. Er þá m. a. meðtalin fræðsla og þjálfun iðnverkafólks og annars faglærðs og ófaglærðs iðnstarfsfólks, almennt námskeiðahald og útgáfustarfsemi, upplýsingaþjónusta og kynning á starfsemi stofnunarinnar. Fræðsludeild sækir kennslukrafta og sérfræðiþekkingu til annarra deilda og til aðila utan stofnunarinnar eftir ástæðum. Fræðsludeild hefur í starfi sínu náið samstarf við iðnskólana í landinu og aðra þá, sem kunna að vinna að svipuðum verkefnum.

Tvær síðustu mgr. 3. gr. standi óbreyttar.“

Ég vil taka það fram, að í þessari till. er gert ráð fyrir að þrjár fyrst nefndu deildirnar taki í megindráttum við hlutverki þeirra þriggja stofnana sem þessari nýju stofnun, iðntæknistofnun eða tæknistofnun eða hvað sem hún kemur til með að heita, er ætlað að taka við af, þ. e. a. s. iðntæknideild tekur við hlutverki Rannsóknastofnunar iðnaðarins, byggingatæknideild tekur við af Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins og stjórnunarmáladeild af Iðnþróunarstofnun Íslands, sem hefur þó einnig gegnt væntanlegu hlutverki fræðsludeildar að nokkru leyti. Hlutverk fræðsludeildar verður þó mun víðtækara, enda ný eining.

Það er rétt að vísa í þessu sambandi til grg. fyrra frv. um iðntæknistofnun sem áður var getið, en þar segir um fræðslustofnun m. a., með leyfi forseta:

„Iðnskólar hafa að undanförnu ekki haft bolmagn til að sinna þjálfun iðnverkafólks og endurmenntun iðnaðarmanna sem skyldi. Ef Iðntæknistofnun reynist hins vegar þess megnug að bæta hér nokkuð úr, virðist óæskilegt að lagabókstafur verði því til hindrunar. Hér þarf þó að koma í veg fyrir tvíverknað og tryggja eðlilega samvinnu, og miðar síðasta ákvæði mgr. 8.4 einmitt að því. Til greina kemur að menntmrn. greiði hluta kostnaðar vegna þjálfunar iðnverkafólks. Telja verður eðlilegt, að fræðsludeild gangist fyrir námskeiðum úti um land eftir ástæðum.“

Ég vil leggja sérstaka áherslu á að þessi fræðsludeild verði tekin upp. Ég hef heyrt það á fólki, sem ég hef talað við um verkmenntun og um þessa stofnun, að það telur mjög mikilvægt að fræðsluhlutverkið falli ekki niður, en í þessu nýja frv., sem ráðh. hefur lagt fram, er mjög óverulega komið að þessari fræðslu. Það stendur að vísu í 2. gr. um hlutverkið, að „hlutverki sínu skal stofnunin gegna m. a. með því að vinna að ráðgjöf og fræðslu, öflun og dreifingu upplýsinga“ o. s. frv. En eins og mjög hefur komið fram nú á síðustu tímum, þá er mikill áhugi á því í þjóðfélaginu að efla verkmenntun alls konar og eins að stuðla að aukinni endurmenntun og fullorðinsfræðslu. Þarna held ég að þessi stofnun gæti hjálpað mjög til og þess vegna vil ég alls ekki láta falla niður í frv. að það komi beinlinís fram, að hún skuli sinna þessu fræðsluhlutverki og hafa til þess sérstaka deild.

Ég vil taka fram að till. um byggingatæknideildina er að sjálfsögðu flutt með tilliti til þess, að í afgreiðslu iðnn. er enn þá gert ráð fyrir að stofnunin taki við starfsemi og eignum, réttindum og skyldum Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins. Falli það ákvæði hins vegar brott í meðförum deilda þingsins, eins og margt virðist benda til, fellur að sjálfsögðu einnig á brott sérstök byggingartæknideild innan hinnar nýju stofnunar.

Þriðja brtt. okkar er við 4. gr. og er svohljóðandi: „Neðst í upptalningu fulltrúa í aðalstjórn bætist:

einn fulltrúa starfsfólks stofnunarinnar samkv. tilnefningu sameiginlegs fundar.“

Þetta er einnig ákvæði sem var í hinu fyrra frv. Ég held að með því hafi verið stigið visst spori átt til atvinnulýðræðis og finnst vera afturför að fella það niður.