26.04.1978
Neðri deild: 85. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3997 í B-deild Alþingistíðinda. (3249)

268. mál, Iðntæknistofnun Íslands

Kristján Ármannsson:

Virðulegi forseti. Eins og fram kom í framsöguræðu form. n. var hún ekki sammála um afgreiðslu málsins og nm. áskildu sér rétt til að flytja brtt. Ég hef ekki flutt brtt. við þetta mál, en vil samt með örfáum orðum gera ofurlitla grein fyrir afstöðu minni.

Það, sem ég hafði einkum við að athuga, var í 13. gr. og í framhaldi af því í 15. gr. frv., um Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins. En ástæðan fyrir því, að ég flutti ekki í þessari d. ákveðna brtt., var að ég treysti því að þegar og ef til afgreiðslu kæmi í hv. Ed., þá yrði þetta mál tekið til betri athugunar en var gert hjá okkur, enda ekki mikill tími til. Ég vil ekki stuðla að því, að Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins sé þarna talin með eins og gert er ráð fyrir. Í 13. gr. segir, með leyfi forseta:

„Stofnunin tekur við starfsemi og eignum, réttindum og skyldum Rannsóknastofnunar iðnaðarins, Raunsóknastofnunar byggingariðnaðarins og Iðnþróunarstofnunar Íslands.“

Ég tel að ýmsar forsendur hafi breyst fyrir því, að ástæða sé til þess að þarna sé Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins með í dæminu.

Þetta var sú aths., sem ég gerði í n., er ég áskildi mér rétt til að flytja brtt., sem ég þó eigi gerði. En ég vænti þess, eins og ég sagði áðan, að þegar til frekari afgreiðslu kemur verði þetta tekið mjög til athugunar. Að öðru leyti er ég tilbúinn að fylgja þessu frv. Einnig vil ég lýsa því yfir, að ég er tilbúinn að fylgja brtt. hv. þm. Vilborgar Harðardóttur og Benedikts Gröndals um breytingu á nafni stofnunarinnar og það verði Iðntæknistofnun Íslands.

Ég vildi aðeins, vegna þess að brtt. kom ekki fram frá mér, gera grein fyrir þessari afstöðu. Ég vona að tillit verði tekið til hennar við afgreiðslu í hv. Ed. þegar þar að kemur.