03.11.1977
Sameinað þing: 13. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í B-deild Alþingistíðinda. (325)
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Ég tel óhjákvæmilegt við fjórðu og síðustu stefnuræðu forsrh. að minna á orð hans í upphafi stjórnartíma hans. Forsrh. gaf þá góð fyrirheit um markmið í efnahagsmálum og mörg loforð. Eitt meginmarkmiðið og áhersluloforð var að draga verulega úr verðbólgunni og skyldi hún ekki vera meiri en um 15% um áramótin 1975–1976. Einnig átti atvinnulífið að standa föstum fótum bæði til lands og sjávar. Iðnaður skyldi nú loksins fá það sem hann hafði lengi beðið eftir bætt skilyrði til rekstrar og lausn á miklum lánsfjárskorti. Sem sagt, allt atvinnulíf átti að fá að blómgast. Samfara þessu var lofað að ekki skyldu koma til auknar erlendar skuldir, og hafði einmitt hæstv. forsrh. sérstaklega gagnrýnt vinstri stjórnina fyrir óhóflegar erlendar lántökur. Á þeim tíma var greiðslubyrði vegna erlendra skulda þó aðeins 13–14%. Það ofbauð ráðh. þá, þegar hann var í stjórnarandstöðu. Hver er greiðslubyrði erlendra skulda í dag? Það er æskilegt að menn hafi samanburðinn, en hann er þannig: Nú fara um 19–20% þjóðartekna í vexti og afborganir af erlendum skuldum, en komst hæst hjá vinstri stjórninni í um 14%, hefur sem sagt aukist um fjórðung. Þetta geta menn kallað stjórnsemi.
Hæstv. forsrh. Geir Hallgrímsson sagði í ræðu á 21. landsfundi Sjálfstfl. vorið 1975, þetta, með leyfi forseta:
„Ríkisstj. hefur sett sér mikilvæg markmið í efnahagsmálum. Sumum þeirra verður þegar í stað að ná, en búast má við að lengri tíma taki að ná öðrum. En öllum þessum markmiðum er þannig farið, að aldrei má af þeim missa sjónir.“
Já, fallega var talað og áhugavert er að rifja upp loforðin, en ekki er það eins skemmtilegt. Ekki dylst það fyrir neinum landsmanni, er til vits og ára er kominn, að flest hefur farið úrskeiðis og verður ekki lengra gengið í öndverða átt við gefin loforð og yfirlýsta stefnu, bæði af hálfu ríkisstj. og beggja stjórnarflokkanna, Sjálfstfl. og Framsfl. Hvað veldur þessu? Ekki vantar sterkan meiri hl. hér á hinu háa Alþ. Ekki vantar sprenglærða ráðgjafa með doktorsnafnbótum með meiru og tölvur úti um allan bæ. Ekki veldur þessu slæmt árferði og lélegt verð á erlendum markaði. Við njótum nú með afbrigðum góðra verslunarkjara og uppgripaafla á loðnu sem bókstaflega kemur sem fundið fé til okkar og skapar marga milljarða í gjaldeyri.
Sjálfsagt eru margar samverkandi ástæður fyrir því, hversu mjög halloka við höfum farið á efnahagssviðinu. Ég vil þó fyrst telja að hreint agaleysi á æðstu stöðum og í embættismannakerfinu eigi mikinn þátt í þessu. Óhófseyðsla í mörgum myndum og bruðl með fjármuni hins opinbera veldur virðingarleysi hjá almenningi fyrir skynsamlegri ráðstöfun peninga, ásamt áhrifum frá óðaverðbólgu er hér hefur ríkt nú um sex ára skeið. Æðsta stjórn landsins er ekki fyrirmynd um neitt í aðhaldsátt. Verðbólgan afskræmir þjóðfélagið og flytur fjárráðin í ægilega stórum stíl á milli þegnanna er geta litlum vörnum við komið.
Eins og ég sagði áðan, var eitt meginmarkmið þessarar ríkisstj. að hafa hemil á verðbólgunni, og sjálfur fjmrh. lýsti því opinberlega yfir, að hlutverk sitt væri að stíga á hemlana. Þetta hefur mistekist því að verðbólgan hefur verið samkv. opinberum tölum þannig: 1974 53%, 1975 37%, 1976 32% og nú á þessu ári verður hún um 35%. Í raun hefur þó almenn kostnaðaraukning verið öllu meiri en þessar tölur segja til um og koma þar til áhrif frá beinum gengisfellingum, sem eru orðnar margar á þessum tíma, og nú stöðugu gengissigi eða gengisaðlögun, eins og það heitir nú hjá hinum orðhögu seðlabankamönnum. Þetta er óþolandi þróun og verður að beita öllum ráðum til þess að hefta verðbólguna.
Samkv. upplýsingum frá Seðlabankanum var sparifé landsmanna 30. sept. s.l. rúmlega 52 milljarðar og skiptist þannig: Á almennum bókum 38.2 milljarðar, hámark 16% vextir, og 14.2 mill,jarðar á vaxtaaukabókum með 26% vexti. Þar sem verðbólgan verður á þessu ári ekki undir 35%, miðað við almenna kostnaðaraukningu, liggur í augum uppi að sparifjáreigendur sæta um 14 milljarða verðrýrnun á eign sinni í bankakerfinu á þessu ári og alls mun verðrýrnun sparifjár vera um 30–40 milljarðar á s.l. 4 árum, á ríkisstjórnartímanum. Já, takið eftir þessum tölum. Þetta er svo ægileg staðreynd, að allt annað bókstaflega bliknar í samanburði við þetta.
Ríkisstj., sem unir slíku ástandi í efnahagsmálum eins og þetta ber vitni um, verður að víkja. Efnahagslífið er helsjúkt og almenningur á meira en réttmæta kröfu á því, að ríkisstj. víki sem fyrst. Þó sjást þess ekki nokkur merki, heldur skal sitja meðan sætt er. Og vitleysan heldur áfram óhindruð.
Þessi æðisgengnu verðbólgueinkenni koma glögglega fram í fjárl. frá ári til árs. Þan hafa hækkað um rúmlega 100 milljarða nú á þremur árum. Lengra verður ekki gengið í verðþensluátt. Þessi verðrýrnun yfirfærist sem ávinningur til þeirra er skulda og fá að nota inneign sparifjáreigenda. Slík eignatilfærsla sem þessi er gersamlega óþolandi og verður almenningur að gera sér grein fyrir þessu. Ekki gerir ríkisstj. það. Ekki gerir verkalýðsforustan það heldur. Hún hefur brugðist í baráttunni við verðbólguna.
Mig langar til að tilfæra hér smádæmi um hversu verðrýrnun peninganna hefur verið vitfirringsleg s.l. 26 ár. Árið 1951 var fastakaup háseta á vöruflutningaskipi 1478 kr, á mánuði, en er nú rétt hundrað sinnum hærra. Ég vil spyrja: Er þetta hægt? Hvert stefnir hjá þjóð er ekki stjórnar fjármunum sínum betur en þetta? Það þarf ekki mikinn spámann til þess að sjá að allt eðlilegt mat á verðmætum og rökrétt dómgreind um ráðstöfun fjármuna víkur við slíkar aðstæður. Við, sem viljum fara gætilegar í sakirnar hér á hinu háa Alþ., erum settir til hliðar og loforðaflaumurinn ræður ríkjum hjá hinum með fyrrgreindum afleiðingum. Ósvífnasta eignaupptaka eða meðferð sparifjár er viðurkennd og skuldakóngarnir margverðlaunaðir. Smásárabætur til gamla fólksins með ellilífeyri eru hreint grín eftir að margra ára strit þess er að engu gert á fáeinum árum. Fyrir unga fólkið rís verðbólguveggurinn ægihár og virðist ókleifur með öllu. En við fljótum áfram á náðarlánum erlendis frá. Slík er efnahagsleg reisn Íslendinga á því herrans ári 1977.
Herra forseti. Eins og jafnan fyrir alþingiskosningar koma flokksleiðtogar fram og segja margt álitlegt við fólkið, og skal það á hlýða og ettir fara. Svo mun einnig eiga sér stað nú við komandi kosningar. Ég vil leyfa mér að vitna hér í orð fyrrv. forsrh., Jóhanns Hafsteins, er Morgunblaðið birti yfir þvera síðu laugardaginn 29. maí 1971 þessi orð: „Kjósendur beiti valdi sínu af kostgæfni og íhugun.“ Þetta á við enn í dag, en er miklu mikilvægara nú en oftast áður vegna þeirra atriða sem ég hef nefnt. En hvernig getur þá kjósandinn beitt valdi sínu af kostgæfni og íhugun? Hefur hann möguleika á því við gildandi kosningalög? Aðeins mjög takmarkað.
Öllum er vel kunnugt um að vaxandi kröfur eru gerðar um aukin áhrif kjósenda við val frambjóðenda til Alþingis. Vilja menn með því reyna að fá ábyrgara val þm. hér inn í þingsali. Hér liggur nú fyrir frv. frá þm. Jóni Skaftasyni, og efni þess frv. er vel ljóst. Það gerir ráð fyrir að á kjörseðli verði frambjóðendum raðað eftir stafrófsröð, og vilji kjósandinn breyta til skal hann setja tölustafi framan við nöfn viðkomandi frambjóðenda. Í grg. frv. segir:
1. Lýðræði ykist með auknum rétti kjósenda til þess að velja þm., og áhugi almennings á stjórnmálum glæddist væntanlega við það.
2. Með því fyrirkomulagi, sem frv: gerir ráð fyrir, yrði komist næst kostum persónubundinna kosninga án þess að taka upp einmenningskjördæmin, sem illa henta hér sökum fámennis.
3. Þingkosningar og prófkjör fara í raun fram samtímis.“
Það hefur komið fram í sjónvarpi og nú hér á Alþ. að allir segjast flokksforingjarnir vilja koma á auknum rétti kjósenda við alþingiskosningar. Nú mun á það reyna, hvort enn sé aðeins um blekkingatal að ræða eða raunhæfan stuðning við gott og vel tímabært frv. Jóns Skaftasonar. Samþykkt á þessu frv. er réttlætismál, og til þess að flýta fyrir framgangi þess má vel hugsa sér að almenningur láti frá sér heyra nú þegar um málið og stuðning við það. Mörg fordæmi eru um það þegar góð mál eru á ferðinni. Nú er kjörið tækifæri fyrir hinn almenna borgara að láta áhrif sín ná inn í þingsalina, því að næsta tækifæri verður ekki fyrr en eftir fjögur ár. — Þökk þeim er hlýddu. Góða nótt.