26.04.1978
Neðri deild: 85. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3998 í B-deild Alþingistíðinda. (3250)
268. mál, Iðntæknistofnun Íslands
Páll Pétursson:
Virðulegi forseti. Ég vil taka það fram, að ég hygg að hér sé um allgott frv. að ræða og mun að sjálfsögðu greiða því atkv. En eins og hv. 1. þm. Norðurl. e. hef ég vissar efasemdir um eitt atriði í frv., þ. e. a. s. ég dreg nokkuð í efa hvort heppilegt sé að leggja niður Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins í þeirri mynd sem hún er í nú og láta hana verða byggingardeild og mannvirkjadeild í Tæknistofnun Íslands. Ég hygg að Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins. sem á sér orðið nokkra sögu, hafi þróast mjög heppilega og veiti byggingariðnaðinum mjög veigamikla aðstoð, mjög dýrmæta aðstoð. Ég óttast að með skipulagsbreytingu geti svo farið, eða það sé tekin a. m. k. nokkur áhætta með því að þjónusta í byggingariðnaðinum verði ekki eins góð. Auk þess sýnist mér að Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins sé í sjálfu sér nógu stór stofnun, alveg nógu stór, og sé þetta sameinað allt undir einum hatti sé sett upp æðimikið bákn í tæknilegum efnum.
Þetta frv. verkar þannig á mig, að mér sýnist að hér sé fremur um „teknologiska“ stofnun að ræða, þ. e. a. s. eins og nafnið bendir til, Tæknistofnun, og rannsóknaþátturinn, þó að hann sé að vissu leyti hafður hér með í upptalningu á verkefnum tæknistofnunarinnar, sé í hættu, hann verði út undan. Þá er illa farið, því að rannsóknaþátturinn hefur skilað mjög verulegum árangri einmitt hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins. Það hefur komið fram líka í þessum umr., að Rannsóknaráð ríkisins mun vera á þeirri skoðun að tekin sé áhætta hvað varðar þennan rannsóknaþátt.
Hins vegar mun ég eins og hv. 1. þm. Norðurl. e. greiða þessu frv. atkv. mitt. En ég mundi fagna því ef Ed. sæi sér fært að gera breytingu á þessu. Sjálfur mun ég ekki standa að brtt. úr því að n. sá sér ekki fært að hafa þar frumkvæði.
Hvað varðar heiti stofnunarinnar get ég ekki verið samþykkur þeirri brtt. sem hér kemur fram, að kalla hana iðntæknistofnun. Mér finnst tæknistofnun í sjálfu sér ágætt orð og ástæðulaust að vera að rjála þar neitt við.