26.04.1978
Neðri deild: 85. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4001 í B-deild Alþingistíðinda. (3254)

45. mál, Iðnþróunarstofnun Austurlands

Frsm. minni hl. (Vilborg Harðardóttir) :

Hæstv. forseti. Ég hef mælt með samþykkt þessa frv. vegna þess að ég er fylgjandi þeirri stefnu að færa sem mest af stefnumótun og framkvæmdavaldi út í landshlutana sjálfa. En fyrst og fremst var ég þó á móti því að vísa málinu til ríkisstj., sem ég tel algjörlega gagnslaust og jafngilda því að henda málinu út í ystu myrkur, því það sem fer þangað, kemur aldrei aftur, því verður aldrei nokkurn tíma sinnt meira. Ég tel að það væri betra að fjalla um málið hér í deildinni. Ég geri ráð fyrir að flm. sjálfur mæli fyrir því, ef hann telur þörf á, umfram það sem hann gerði við 1. umr. og það sem fram kemur í grg. En ég legg alla áherslu á að mál séu afgreidd í d. af þm., því það er meiri von til að þau fái þá einhverja afgreiðslu heldur en ef þeim er vísað til ríkisstj. Og mér finnst það í raun og veru óheiðarlegt og sýndarmennska af meiri hl. að vilja afgreiða málið á þennan hátt í staðinn fyrir að leggja til þá frekar að það verði fellt hér.