27.04.1978
Efri deild: 88. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4005 í B-deild Alþingistíðinda. (3259)

301. mál, orlof húsmæðra

Frsm. (Þorv. Garðar Kristjánsson) :

Herra forseti. Félmn. Ed. hefur verið beðin að flytja frv. þetta og n. hefur orðið við óskum félmrh. um það án skuldbindingar um fylgi við málið.

Með frv. því, sem hér liggur fyrir, er lagt til að breytt verði gildandi lagaákvæðum um framlög sveitarfélaga til orlofs húsmæðra. Miðar frv. að hækkun þessara framlaga og að þau miðist að nokkru við vísi,ölu framfærslukostnaðar á hverjum tíma. Framlag til Orlofssjóðs húsmæðra hefur hingað til miðast við fjölda húsmæðra, en í þessu frv. er gert ráð fyrir að miðað verði við fólksfjölda í hverju sveitarfélagi. Ætti þessi breyting að verða til hagræðis við ákvörðun framlags af hálfu sveitarfélaga.

Í frv. er gert ráð fyrir að lágmarksframlag sveitarfélags verði fjárhæð sem svari minnst 100 kr. á hvern íbúa sveitarfélagsins, en það er samkv. gildandi lögum 150 kr. fyrir hverja húsmóður. Þessi breyting mundi hafa í för með sér talsverða hækkun á framlögum sveitarfélaganna. Þá felst í frv. það nýmæli, að hið nefnda lágmark framlags breytist á ári hverju til samræmis við breytingar á vísitölu framfærslukostnaðar. Þetta er ákvæði sem forvígiskonur í orlofsmálum húsmæðra hafa löngum haft áhuga á að koma í lög.

Ef frv. þetta verður að lögum munu breytingar þær, sem í því felast, verða til mikillar eflingar orlofsstarfsemi fyrir húsmæður í landinu, en hún er mikils metin af konum og hefur átt vaxandi vinsældum að fagna. Lögin um orlof húsmæðra og sú starfsemi, sem innt er af höndum samkv. þeim, hafa veitt margri húsmóðurinni kost á hvíld og tilbreytingu sem hún hefði ekki getað notið ella. En jafnan ber að leggja á það áherslu, að þessi aðstaða til orlofs standi fyrst og fremst til boða þeim konum sem hafa hennar mesta þörf og við erfiðust kjör búa.

Ég tók það fram í upphafi máls míns, að félmn. hefði fallist á að flytja þetta frv. án skuldbindingar um fylgi við málið. En ég vil taka það fram, að sá fyrirvari af hálfu n. felur ekki í sér að n. sé neikvæð í þessu máli. Hann felur einfaldlega það í sér, að n. hefur ekki athugað málið efnislega og vill því ekki taka efnislega afstöðu til málsins fyrr en það verður gert. Hins vegar er það ósk af hálfu félmrh., að mál þetta fái afgreiðslu á þessu þingi, og þess vegna geri ég ráð fyrir að n. leitist við að afgreiða málið fljótt.

Ég geri það að till. minni, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til hv. félmn.