27.04.1978
Efri deild: 88. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4015 í B-deild Alþingistíðinda. (3267)
272. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins
Jón G. Sólnes:
Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., er ætlað til þess að einhverju leyti að létta undir með þann vanda sem Stofnlánadeild veðdeildar hefur vegna þess mikla fjármagnskostnaðar sem deildin býr við og er vissulega mikið vandamál.
Í sambandi við þetta langar mig til að vekja athygli á því, að við rekstur slíks fyrirtækis sem Stofnlánadeild landbúnaðarins er, því hún er orðin allumfangsmikil stofnun, eru fleiri útgjöld en vaxtakostnaður eingöngu. Það er líka verulegur kostnaður við rekstur deildarinnar almennt.
Því minnist ég á þetta atriði, að á sínum tíma, þegar Framkvæmdabankinn var lagður niður, var sett á fót stofnun sem nefnd er Framkvæmdasjóður Íslands. Var þeim sjóði ætlað svipað hlutverk og Framkvæmdabankinn hafði gegnt áður, sem var að annast um stofnlán til hinna ýmsu stofnsjóða í þjóðfélaginu. Mér áskotnaðist sá heiður, að ég átti sæti í stjórn þessa framkvæmdasjóðs í nokkur ár — mig minnir að það hafi verið tvö kjörtímabil. Þá var það, að oft kom til umræðu, þegar fyrrgreindur sjóður starfaði og var verið að úthluta upphæðum til hinna ýmsu stofnlánasjóða, að kostnaðurinn við rekstur Stofnlánadeildarinnar þótti ekki vera í neinu samræmi við það sem eðlilegt gæti talist. Að þessu var fundið, ég held í hvert skipti sem úthlutun á fjármagni til deildarinnar var til umr., og það var rætt um það innan stjórnar Framkvæmdasjóðsins, að brýna nauðsyn bæri til að ræða um það við stjórnendur Búnaðarbankans, sem þá um leið voru stjórnendur Stofnlánadeildarinnar, að þessi mál væru athuguð. Og ég vil segja það, að hafi engin lagfæring verið gerð á því hlutfalli, sem ríkti á þessum árum sem ég er nú að ræða um um kostnaðarhlutdeild Stofnlánadeildar landbúnaðarins í almennum kostnaði við rekstur Búnaðarbanka Íslands, þá er þar um miklar upphæðir að ræða.
Nú háttar svo til, að lagt hefur verið til að vísa þessu frv. til hv. landbn. þessarar d. til meðferðar. Ég á ekki sæti í þeirri n. Ég vildi því gjarnan beina þeim tilmælum til þeirra aðila, sem eiga sæti í hinni virðulegu landbn., að þegar þetta mál verður tekið til umfjöllunar í n. verði reynt að afla upplýsinga um það, hvað rekstrarkostnaður Stofnlánadeildarinnar er mikill, hver rekstrarkostnaður deildarinnar hefur t. d. verið undanfarin 5–6 ár, hversu umfangsmikil starfsemi deildarinnar er og hvort sá hluti rekstrarkostnaðar, sem færður er á reikning Stofnlánadeildarinnar, sé í eðlilegu samræmi og hlutfalli við hinn almenna kostnað við rekstur Búnaðarbankans. Ég er þeirrar skoðunar, að hér sé um svo mikilvægt atriði að ræða, sem hafi svo stórkostlega fjárhagslega þýðingu, að það sé fyllsta ástæða til að kanna þetta mál ofan í kjölinn. Ég tel því rétt að koma þessum óskum mínum á framfæri. Nú skal ég taka það skýrt fram, að ég vil á engan hátt verða til þess að tefja afgreiðslu þessa frv., því mér skilst að þetta sé stjfrv. sem hafi verið ákveðið að næði fram að ganga, en mér finnst að þessi athugun geti ekki tekið langan tíma og ætti að vera auðvelt að fá þær upplýsingar sem ég hef verið að biðja um.