27.04.1978
Efri deild: 88. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4018 í B-deild Alþingistíðinda. (3272)
200. mál, sala eyðijarðanna Kroppsstaða og Efstabóls í Mosvallahreppi
Steingrímur Hermannsson:
Herra forseti. Við 1. umr. vil ég þegar láta koma fram nokkrar aths. við þetta mál. Ég skal þó reyna að vera stuttorður.
Hér er um að ræða, eins og fram kemur á þskj., sölu tveggja eyðijarða í Önundarfirði til bónda sem er leiguliði á næstu jörð, Kirkjubóli. Eyðijarðir þessar hafa verið leigðar öðrum bónda þar í nágrenninu, á Veðrará. Á Veðrará er landrými mjög lítið og byggir hann búskap sinn að verulegu leyti á þessum tveimur eyðijörðum.
Um þetta mál hafa orðið miklar deilur, óvenjumiklar satt að segja þegar um sölu eyðijarða er að ræða, í hv. Nd. Hafa umsagnir um málið verið mjög á tvo vegu. Jarðanefnd og hreppsnefnd hafa mælt með þessari sölu. Hins vegar hafa ráðunautar á svæðinu eindregið mælt gegn henni, og sömuleiðis liggur fyrir bréf frá fyrrnefndum bónda á Veðrará þar sem hann lýsir þeim erfiðleikum sem þetta muni valda honum, jafnvel svo að hann muni þurfa að bregða búi. (StJ: Jarðanefnd var klofin í málinu.) Já, það er rétt sem hv. þm. segir. Jarðanefnd var klofin í málinu, en meiri hl. mælti með þessu engu að síður.
Ég vil láta koma fram, að ég teldi það mikið óráð að selja á þessu stigi þessar tvær eyðijarðir, eins og þarna er gert ráð fyrir. Í Önundarfirði er nægilegt landrými fyrir báða þessa bændur. Þarna eru fleiri eyðijarðir sem ég þarf ekki að nefna hér, t. d. eyðijörðin Hestur og reyndar fleiri. Það er vafalaust að báðum þessum bændum má búa ákjósanleg búskaparskilyrði þarna í firðinum. Ég er því þeirrar skoðunar og vil beina því til hv. landbn., sem eflaust fær þetta mál til meðferðar, að þetta mál verði athugað betur, en ekki afgreitt í flýti með verulegum deilum, sem það mun hafa í för með sér innan þessa svæðis, og þeim vandræðum, sem ég hef lýst. Ég vil því biðja n. að athuga þá leið að vísa málinu til ríkisstj. með tilmælum um að það verði athugað hvernig megi leysa vanda þessara bænda beggja farsællega. Ég leyfi mér að fullyrða að það er hægt. Vandalaust er að gera það og gæti landbrn. falið jarðanefnd að gera till. um það.
Þetta vildi ég láta koma fram þegar við 1. umr. þessa máls.