27.04.1978
Sameinað þing: 72. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4037 í B-deild Alþingistíðinda. (3289)

54. mál, tónmenntafræðsla í grunnskóla

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu hennar á þessu máli. Ég get þó ekki neitað því, að sú brtt., sem n. gerir, olli mér mikilli hryggð. Ég mun í örstuttu máli leitast við að skýra þá hryggð mína og afstöðu mína til afgreiðslu nefndarinnar.

Það er réttilega á það bent í nál. frá allshn., að samkv. umsögnum þeirra aðila, sem fjölluðu um till. sem umsagnaraðilar, er bent á að skortur á tónmenntakennurum og að vísu einnig skortur á fjármagni standi tónmenntinni fyrir þrifum. Þetta er mergurinn málsins. Ég álít, að ef niðurlagsgrein till., þar sem farið er fram á að tónmenntin komi sem valgrein inn í Kennaraháskóla Íslands, sé kippt burt, þá sé um leið kippt fótum undan mögulegri framkvæmd á meginefni till. Ég hygg að þetta sé svo skýrt og augljóst að ekki þurfi að fara um það mörgum orðum.

Ég vil benda á að í umsögn menntmrn. er fjallað um þennan tónmenntakennaraskort. Það er ekki einungis að þetta eigi við um skólana úti á landsbyggðinni, heldur er bent þar á, að í mörg ár hefur ekki fengist tónmenntakennari að hinu mikla skólasetri á Laugarvatni. Menntmrn. hefur ár eftir ár auglýst eftir tónmenntakennara án árangurs. Einu sinni hefur tekist að fá þangað erlendan kennara og mun brugðið á það ráð nú aftur. Ég vil líka benda á að það eru núna á landinu starfandi 70–80 tónmenntakennarar í 225 grunnskólum og skólamönnum hvar sem er á landinu, ekki síður í Reykjavík en utan Reykjavíkur, er bent á þetta sem meginvanda með framkvæmd tónmenntafræðslunnar, að það séu ekki til tónmenntakennarar. Tónmenntakennaraskóli Íslands framleiðir mjög hægt kennara. Á þeim 15 árum, sem hann hefur starfað, hefur hann brautskráð 70 kennara. Þessir kennarar leita fyrst og fremst út í tónlistarskólana sjálfa, sérskólana þar sem kennsla er auðveldari og meira í samræmi við þeirra menntun.

Með tilliti til þessa og með tilliti einnig til þess, sem hv. frsm. benti á í umsögn frá Kennaraháskólanum, þá vil ég vænta þess að hv. allshn. taki nú til nánari athugunar afstöðu sína. Og í þeirri von og af því að ég hef orðið vör við skilning og vinsemd bæði hjá formanni og öðrum nm. í garð þessa máls, þá tel ég ástæðu til þess að vera bjartsýn um að n. endurskoði þessa afstöðu sína, — í þeirri von hef ég leyft mér að bera fram brtt. á þá lund, að síðasta mgr. till. fái að vera inni nokkuð breytt. Brtt. hljóðar á þá leið:

„Þá verði og tónmenntafræðsla felld svo fljótt sem unnt er“ o. s. frv. — „Svo fljótt sem unnt er“ er þarna bætt inn í til nokkurs konar málamiðlunar svo að Kennaraháskóli Íslands hafi meira svigrúm en í tillgr. felst nú til þess að taka upp þessa kennslu.

Í umsögn Kennaraháskólans, sem hv. frsm. las upp, kemur einmitt fram, að þessa kennslu tónmennta sem valgreinar í Kennaraháskólanum væri hægt að framkvæma með því að hafa samvinnu við aðra aðila uns úr væri bætt heima fyrir í Kennaraháskólanum, sem er mjög þröngt um hvað húsnæði snertir. Það er einmitt þetta atriði sem ég hef í huga, að tónlistarskólinn yrði þarna samvinnuaðill. Ég hef í samtölum bæði við rektor Kennaraháskóla Íslands og starfsmenn og kennara við Tónlistarskólann komist að raun um að þetta er atriði sem í rauninni hefur verið gert ráð fyrir, og þetta, sem við förum fram á í okkar till. ætti að gera það mögulegt. Og ég vil benda á að hvað menntaskólana varðar hafa nemendur þar allmargir tekið tónmennt sem valgrein innan menntaskólanna og stundað tónmenntanám í Tónlistarskólanum. Ég held sem sagt að enda þótt vandkvæði séu nokkur fyrir Kennaraháskólann að taka upp þessa kennslu, þá sé mjög ákveðinn vilji ráðamanna þar og Tónlistarskólans einnig til þess að auka framleiðslu tónmenntakennara með þessum hætti.

Ég vil leyfa mér að leggja fram þessa brtt. sem mun þurfa afbrigða við. Hún er skrifleg og vænti ég þess, að hún megi koma til umr. og afgreiðslu.