27.04.1978
Sameinað þing: 72. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4039 í B-deild Alþingistíðinda. (3292)
39. mál, flugsamgöngur við Vestfirði
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Það er margt sem við Vestfirðingar þurfum að reyna á hv. Alþ., t. d. þá afgreiðslu sem hv. allshn. Sþ. hefur látið frá sér fara varðandi þetta mál.
Í sambandi við nál. og það, sem fram kemur í því, ásamt hinni rökstuddu dagskrá, sem hér er lögð til í nál. allshn., þá vil ég í fyrsta lagi segja það, að mér þykja þetta furðuleg vinnubrögð af hálfu n., hvernig hún leggur málið nú fyrir og leggur til að það verði afgreitt. Frsm. n., hv. þm. Ellert B. Schram, gerði grein fyrir því áðan, að þessi afstaða n. byggðist á umsögn frá flugmálastjóra, og hann las hana upp. Ég vil vekja athygli á því, að hvergi kemur fram í þessu bréfi flugmálastjóra, að þessi athugun verði gerð á því sumri sem nú er gengið í garð. Það er rétt að lesa bréf flugmálastjórnar aftur, þannig að hv. þm. geti þá alveg áttað sig á því. Ég vil leyfa mér að lesa það, með leyfi forseta:
„Bréf yðar varðandi umsögn um till. til þál. um athugun á úrbótum í flugsamgöngum við Vestfirði, 39. mál, var lagt fyrir 931. fund flugráðs og samþykkt að flugmálastjórn veiti umbeðna umsögn um þær úrbætur, sem getið er um í tillögunni.“
Það er einungis um það að ræða, að flugmálastjórn ætlar að veita umsögn. Kannske ber að skilja þetta svo, að flugmálastjórn hafi ekki getað veitt umsögn um þessar tilteknu úrbætur, sem till. felur í sér að athugaðar verði, vegna þess að málið sé ókannað, en ég vil í því sambandi aðeins benda á, að sams konar þáltill. var flutt á síðasta Alþ. og hafi verið vilji fyrir því hjá flugmálastjórn eða flugráði að framkvæma athugun sem þessa, þá gat hún gert það á s. l. sumri. En það var ekki gert. Í besta skilningi má skilja þessa afstöðu flugráðs á þann veg, að það muni velviljað því að framkvæmd sé þessi athugun á komandi sumri — því sumri sem nú er nýgengið í garð. En það er ekkert, sem bindur það, að athugunin skuli gerð. Hér er því einungis um það að ræða, að þetta verkefni ætti það undir ákvörðun eða duttlungum embættismanna hvort það yrði framkvæmt eða ekki, ef þáltill. verður afgreidd eins og hv. n. leggur hér til.
Hér er því ekki um það að ræða, að fyrir liggi ótvírætt að þessi athugun verði gerð. Ég vil að sjálfsögðu líta með velvilja á þetta bréf flugmálastjórnar eða flugráðs, en ég sé ekki nokkuð sem mælir gegn því, að enn þá léttara verði fyrir flugmálastjórn eða flugráð að framkvæma þessa athugun eftir að samþykkt hefur verið á Alþ. þessi þáltill. um að þetta verði gert, þ. e. a. s. að vilji Alþ. liggi fyrir um að þetta verði gert, en ekki sé einungis treyst á að þessi aðili kunni hugsanlega að láta af þessu verða, ekki síst vegna þess að það hefur liðið heilt sumar án þess að neitt verði gert, þó að sams konar till. hafi legið fyrir á síðasta Alþ. Ég verð því að segja að það er köld kveðja allshn.-manna til Vestfirðinga, að þessi till. skuli fá þá afgreiðslu hjá hv. n., að hún skuli leggja til að málinu verði vísað frá. Það er engu líkara en það þyki svo mikið við liggja í sambandi við þetta, að Vestfirðingar eða Vestfirðir verði áfram jafneinangraðir og þeir hafa verið um áraraðir, að ekkert minna skal duga en það, að komi slíkt mál upp á Alþ. skuli því vísað frá, þó að ekki sé um að ræða annað en athugun á því, hvað æskilegt sé að gera til úrbóta í þessum málum.
Ég hef oft vikið að því á Alþ., og margir fleiri raunar, að Vestfirðir séu sér á parti að því er varðar allar samgöngur, bæði innan héraðs og við aðra landshluta. Þetta er sá landshluti, sem í öllum tilvikum er langsamlega verst settur með samgöngur. Varðandi flugsamgöngur er það svo, að hann er líklega eini landshlutinn sem hefur ekki lýstan flugvöll sem hægt er að fljúga til á hvaða tíma sólarhrings sem er. Einungis á þrjá staði í Vestfjarðakjördæmi hefur Flugfélag Íslands áætlunarflug þ. e. á Ísafjörð, Þingeyri og Patreksfjörð. Þannig er nú málum háttað um flug á Ísafjarðarflugvöll, kringumstæður eru á þann veg af guði gerðar, að þó að hið besta veður sé á svæðinu hagar þannig til vindátt og er slíkt misvindi á þeim stað sem flugvöllurinn er á, að varla má í vissri átt blakta hár á höfði að ekki sé ófært að lenda á þeim flugvelli. Og það eru mörg dæmi þess, að flug hafi legið niðri svo dögum skiptir um Ísafjarðarflugvöll einmitt vegna þessara kringumstæðna, bara vegna þess að það er ekki hin rétta vindátt svo að hægt sé að lenda á vellinum, en hið besta veður — og má raunar segja blíða — að öðru leyti. Við þetta bætist svo það, að Vestfirðir eru gersamlega einangraðir frá þjóðvegakerfinu, frá sambandi við aðra landshluta 7–9 mánuði á ári hverju, eftir því hvernig vetrar. Þá er skipaferðum einnig þannig háttað og hefur verið, að það líða allt að 13–14 dagar milli skipaferða.
Ég hélt að slíkar staðreyndir væru nægjanlegar til þess, að alþm. almennt gerðu sér ljóst að þessar kringumstæður eru þess eðlis, að allt mælir með því að þessi landshluti njóti forgangs í framkvæmdum í samgöngumálum eins og mál standa og hafa raunar staðið alllengi. En staðreyndin er sem sagt sú, að þegar beðið er einvörðungu um athugun á úrbótum á máli, þá rísa hv. þm. upp hver á fætur öðrum og sameinast um það í n. að leggja til að slíku máli skuli vísað frá.
Ég segi það strax sem mína skoðun í þessu, að ég mun greiða atkv. gegn þessari till. allshn. Ég tel að hún eigi engan rétt á sér — bókstaflega engan rétt á sér. Það mælir allt með því, að þessi þáltill. verði samþ. og sú samþykkt Alþ. standi á bak við það, að þessi athugun verði gerð, en ekki einungis á það treyst, að vera kunni velvilji hjá flugráði eða flugmálastjórn til að kanna þetta. A. m. k. sakar ekki að vilji Alþ. liggi fyrir í málinu.
Ég vildi mjög gjarnan vænta þess, og raunar fara þess á leit við hv. form. allshn. Sþ., hv. þm. Ellert B. Schram, og aðra nm. í allshn., að þeir taki þessa afstöðu sína til endurskoðunar. Ég skil ekki að nein rök séu fyrir því, að málið sé afgreitt með þessum hætti. Það má vel vera að flugmálastjórn eða flugráð þurfi þennan tíma fyrir sér til þess að senda þá umsögn, sem um var beðið, og ætli sér að vinna að henni á komandi sumri. En að minni hyggju styrkir það að athugunin verði gerð, að Alþ. hafi tekið af skarið í málinu og samþykkt till. Það á að gera slíka samþykkt. Ég vænti þess því og beini þeim eindregnu tilmælum til hv. form. allshn., að hann boði til fundar aftur í n. og taki málið til endurskoðunar í ljósi þessa. Ég er ekki kunnugur mjög þingstörfum á Alþ. En mér þykir ólíklegt að þess finnist mörg dæmi, að með mál hafi verið farið eins og hér er lagt til að gert verði, nema þá því aðeins að það sé skoðun þeirra manna, sem leggja þetta til, að Alþ. eigi alls ekki að ákvarða neitt í þessu máli, það skuli vera í höndum embættismanna.
Ég skal ekki, herra forseti, hafa fleiri orð um þetta að sinni, en ég fer þess eindregið á leit við hv. n., að hún taki þetta mál til endurskoðunar og endurmeti afstöðu sína til þess, því að það er skoðun mín, að þessa þáltill. eigi skilyrðislaust að samþykkja nú á þessu þingi, þannig að tryggt sé að þessi athugun eigi sér stað á þessu sumri.